Beint í leiðarkerfi vefsins.
Innan náttúrufræðibrautar er boðið upp á tvær mismunandi leiðir innan kjörsviðs, þ.e. eðlisfræðisvið og líffræðisvið. Meginmarkmið brautarinnar er að búa nemendur undir frekara nám á háskólastigi í verkfræði, læknisfræði, raunvísindum og öðrum greinum þar sem stærðfræði og raungreinamenntunar er krafist. Á eðlisfræðisviði er áhersla lögð á stærðfræði og eðlisfræði. Á líffræðisviði er áhersla lögð á líffræði og efnafræði ásamt stærðfræði.
Lesa meiraBoðið er upp á tvö mismunandi svið: viðskiptasvið og hagfræðisvið. Áhersla er lögð á viðskiptagreinar og aðrar skyldar greinar þannig að nemendur geti haldið áfram námi í háskóla, í sérskólum á háskólastigi eða farið út á vinnumarkaðinn að loknu stúdentsprófi.
Lesa meiraInnan félagsfræðabrautar er boðið upp á eina leið innan kjörsviðs, þ.e. alþjóðasvið. Markmið námsins er að veita nemendum góðan grunn í sögu og menningu helstu viðskiptalanda okkar. Einnig er lögð áhersla á að kynna helstu alþjóðastofnanir og starfsemi þeirra. Nám á félagsfræðabraut veitir góða undirstöðu fyrir háskólanám í þjóðfélagsgreinum, viðskiptum, almannatengslum og fréttamennsku.
Lesa meiraMarkmið brautarinnar er að búa nemendur undir tungumála- og hugvísindanám á háskólastigi. Lögð er höfuðáhersla á helstu þjóðtungur Evrópulanda og að veita nemendum innsýn í fræðaheim málvísinda. Slíkur undirbúningur er góður grunnur fyrir háskólanám í tungumálum og býr nemendur undir þátttöku í heimi alþjóðasamskipta.
Lesa meira
Verzlunarskólinn er bekkjarskóli þar sem námið er fjölbreytt og krefjandi og félagslífið öflugtKynningavefur
Bókasafnið er upplýsingamiðstöð fyrir nemendur og starfsfólk skólans Bókasafnsvefurinn
Við Verzlunarskóla Íslands starfa þrír námsráðgjafar og tveir félagslífs- og forvarnarfulltrúarNemendaþjónusta