Múlakot, 1. og 2. ágúst 2009
Hér eru sýndar myndir úr þrem sérstökum ljósmyndaferðum,
þar sem ágætir flugvélaeigendur leyfðu mér að snúast með þá yfir
Markarfljótsaurum og
reyna að ná nokkrum góðum myndum af flugvélum þeirra. Fyrst af öllu fékk ég
snillingin Magnús Norðdahl til að fljúga Zlin listflugvélinni, TF-ABC og með honum fór
frændi hans og flugdellukarl, Eggert Norðdahl. Eggert fékk þá hugmynd að fá
TF-UFO með í för, og vildi svo til að Elías Erlingsson, einn eigenda var á
staðnum og var til í að fljúga með TF-ABC. Annar eigandi TF-UFO, Sigurjón
Valsson flaug með mig í nýju klúbbvélinni frá Mosó, Cessnu 170, TF-GMG. Snilldarlega
til fundið að fá þessar tvær fyrstu listflugvélar Íslendinga saman í flug, en
báðar tengjast þær Magnúsi Norðdahl. Næst fékk ég Jóhann Þórir Gunnarsson
með TF-BAA, en það er önnur Piper Apache vélin sem skráð var á Íslandi, en ásamt
þeirri fyrstu, TF-JMH eru þær einar eftir af alls tíu slíkum. Síðasta
flugið þann 1. ágúst var með Guðmundi Ásgeirssyni á Piper Tri Pacer, TF-GAG.
Sunnudaginn 2. águst fékk ég síðan Erlíng Jóhannesson til að fylgja mér
eftir á Boeing Stearman PT-17 Kaydet vél sinni, TF-KAU. Allar myndirnar eru í
stærðinni 1200x800 pixlar nema tvær þær neðstu sem eru 1280x1024.