Danskar F-16 vélar komu í loftrýmisgæslu þann 2. mars 2010

Fjórar F-16A frá danska flughernum lentu á Keflavíkurflugvelli um 15.45 á þriðjudaginn og hefst þar með ´loftrýmisgæsla að nýju. Ekki er á þessari stundu
ljóst hve lengi henni verður haldið áfram, en dönsku vélarnar fjórar verða hér til 30. mars.
Hér eru einnig myndir af öðrum vélum sem á ferðinni voru frá 15.00 til 18:00 þennan dag.
Neðst eru síðan þrjár myndir sem vinur minn Hörður Geirsson tók á Akureyri í dag, 4. mars, en fyrsti staðurinn sem þeir heimsóttu var vitaskuld Akureyri. Þetta
var snemma í morgunn í erfiðum birtuskilyrðum en síðan frétti ég að eftir hádegi hefðu hinar tvær vélarnar tekið snertilendingu á Akureyri og heyrst hátt
í afturbrennaranum þegar þeir tóku flugið aftur.


Akureyri 4. mars. Ljósm. Hörður Geirsson

Akureyri 4. mars. Ljósm. Hörður Geirsson

Akureyri 4. mars. Ljósm. Hörður Geirsson