Við Sigurjón Valsson fórum á Cap 10b,
TF-UFO sem leið lá austur á Fimmvörðuháls til að freysta þess að ná myndum af
flugvélum sem allan gostímann
hafa verið þarna á sveimi eins og mý á mykjuskán, og vakið talsverða athygli
ferðamanna á jörðu niðri. Við höfðum mælt okkur mót við Gunnar Arthúrsson
flugstjóra en hann var að fara í skoðunarferð á sinni gömlu vél, Cessna 170,
TF-GMG, sem er nú í eigu Flugklúbbs Mosfellsbæjar. Þegar austur kom voru
aðeins tvær þyrlur á svæðinu, en fljótlega heyrðum við í Diamond vél Geirfugls,
TF-FGB og sömdum um að fá að fljúga samhliða henni framhjá gígnum.
Skömmu síðar kom þar að Cessna 172 Skyhawk, TF-UTA og gerðum við samskonar
samkomulag við hann. Að lokum kom síðan TF-GMG og lukum við
ljósmyndafluginu samhliða honum.
Viðbætur 1. apríl, 2010. Bætti við nokkrum myndum úr fluginu, og hafði þær í
1280 pixla stærð, sem fyllir betur út í skjáinn hjá mörgum þám. mér. set þær
aftan við hinar.