Flugmódelfélagið Þytur 40 ára, sýning á Tungubökkum

10. júlí 2010 var haldin stórsýning á flugmódelum á Tungubakkaflugvelli í Mosfellsbæ. Veður var skaplegt til að byrja með, síðan kom stutt demba. Þá drifu menn sig inn í flugskýlin, sem opin voru, enda var þar stór sýning á líkönum sem ekki stóð til að fljúga. Að skúrinni lokinni hófst dagskráin aftur og stóð allt þar til lokaskúrin kom þegar listflug á Cap 10 vélinni TF-UFO var sýnt. Sú demba virtist engan endi ætla að taka og varð því sjálfhætt. Mörg skemmtileg atriði urðu veðrinu að bráð, en nokkuð ljóst samt að enginn fór heim vonsvikinn. Segja flestir að aldrei hafi stærri hópur áhorfenda sótt heim Tungubakkaflugvöll.