Á döfinni

Á döfinni-fréttir

23.4.2012

Vegna próflestrar verður afgreiðslutími safnsins frá 25. apríl til og með 13. maí eftirfarandi:

mánud. – fimmtud.    8:00 – 22:00
föstudaga:                 8:00 – 19:00
laugardaga:             10:00 – 19:00
sunnudaga:              10:00 – 22:00

Opið 1. maí 10-22.


11.4.2012

Skólanum berast gjarnan góðar gjafir í tengslum við nemendaskipti og hvers kyns heimsóknir. Oftar en ekki eru gjafirnar í formi bóka sem kynna land gefandans, bækur og nýsigögn bætast að sjálfsögðu við bókakost bókasafnsins. Núna í vetur höfum við t.d. fengið gögn um Færeyjar, Litháen, Noreg, Rúmeníu, Spán og Ungverjaland.  T.d. gáfu spænskir nemendur skólanum spænskar léttlestrarbækur.


23.3.2012

Nú blasir við og hefur verið í gangi verkefnavinna nemenda.  Að venju er bókasafnið vel nýtt og reynt að finna til gögn sem nýtast við þá vinnu.  Jafnvel er veitt aðstoð þegar kemur að prentun og frágangi, heftarar og gatarar verða líka vinsælli á þessum tíma.


28.2.2012

Hundruðir væntanegra framhaldsskólanema heimsóttu bókasafnið og fengu á því stutta kynningu á opnu húsi í síðustu viku. Sumum fylgdu foreldrar og systkini, yngri og eldri, jafnvel fyrrverandi nemendur. Kærar þakkir fyrir komuna.


21.2.2012

Næsta fimmtudag, 23. febrúar verður opið hús í skólanum frá kl. 17-19. Nemendur og þeirra foreldrar/forráðamenn fá þá tækifæri til að skoða skólann og það sem hann hefur að bjóða. Bókasafnið verður að sjálfsögðu opið á þessum tíma og bjóðum við gesti velkomna til okkar á fjórðu hæðina á fimmtudaginn.


6.2.2012

Hið árlega nemendamót er búið þetta árið og heppnaðist vel. Lífið á safninu hefur því sinn vanagang á ný. Litaprentarinn eini er aftur kominn í gagnið eftir þriggja vikna viðgerðarfrí, við biðjum þá nemendur velvirðingar sem þurftu að leita annarra leiða við prentun í millitíðinni.


30.1.2012

Að venju verður bókasafnið - ásamt tölvustofum - lokað vegna hátíðar nemenda og starfsfólks VÍ, nemendamótsdagana 2. og 3. febrúar 2012. Miðvikudaginn 1. febrúar verður bókasafninu / tölvustofum lokað kl. 16:00.

Einnig verður lokað laugardaginn 4. febrúar, tölvustofur og bókasafn eins og undanfarin ár. Mánudaginn 6. febrúar hefst hefðbundinn afgreiðslutími.


5.1.2012

Gleðilegt nýtt ár!
Fimmtudaginn 5. jan. og föstudaginn 6. jan. verður safnið opið til kl. 16:00. Vegna endurtektarprófa í næstu viku verður safnið opið lengur um helgina: laugard. 7. jan. kl. 13-17 og sunnud. 8. jan. kl. 13-19.


19.12.2011

Síðasti afgreiðsludagur safnsins fyrir jól verður 20. des., þann dag lokar safnið  kl. 16:00. Gleðileg jól!


23.11.2011

Prófin byrja í næstu viku og því breytist afgreiðslutími safnsins. Frá mánud. 28. nóv. til og með þriðjud. 13. des. verður afgreiðslutími lengri:

mánud. til fimmtud. 8:05 - 22:00
föstud. 8:05 - 19:00
laugard. 10:00 - 19:00
sunnud. 10:00 - 22:00

 

14.11.2011

Hópur grunnskólanemenda kom í heimsókn í skólann í síðustu viku og litu inn á bókasafnið. Alltaf gaman að fá góða gesti á safnið.

Enn bætast fleiri jólabækur í safnkostinn og eigum við von á nokkrum góðum bókum í viðbót á safnið þegar þær koma loksins út. Gaman er að sjá hve margir eru í leshugleiðingum. Góða skemmtun!

 

21.10.2011

Nú eru jólabækurnar farnar að tínast á safnið.

 

07.10.2011

Nokkrir danskir nemendur og kennarar þeirra hafa verið í vikuheimsókn í skólanum. Sýning var sett upp með dönsku efni safnsins til heiðurs gestunum.

Í dag er VÍ- MR dagurinn og því mikil spenna í loftinu.

Bókasafnið verður lokað í vetrarfríinu: 14.okt.2011-17.okt.2011

 

23.09.2011

Minningarsjóður dr. Jóns Gíslasonar, fyrrum skólastjóra Verzlunarskóla Íslands, gaf Bókasafni VÍ myndarlega gjöf, Íslenska listasögu í fimm bindum sem út kom á dögunum. Bókasafnið þakkar gjöfina sem á eftir að nýtast jafnt kennurum sem nemendum.

15. 09.2011

Þann 16. september verður bókasafninu lokað klukkan 14:45 vegna haustferðar starfsmanna. Það verður opnað aftur laugardaginn 17. september klukkan 13:00

9.09.2011

Bókasafnið er mjög vel sótt og nýnemar flykkjast hingað og nýta sér aðstöðuna, ásmt þeim eldri.

1.09.2011

Haustið byrjar vel og aðsókn á safnið er frábær!

25.08.2011

Hefðbundinn afgreiðslutími safnsins hefst mánudaginn, 29. ágúst. Sjá: Opið safn.

3.08.2011

Bókasafnið verður opið frá 08-16 þar til hefðbundinn afgreiðslutími hefst síðar í ágúst. Sjá Opið safn.

16.06.2011

Bókasafn VÍ verður lokað vegna sumarleyfa frá og með 22. júní - 3. ágúst 2011.

Gleðilegt sumar.

31.05.2011

Þann 7. júní verður opið hús í Verzlunarskólanum frá kl. 15:00-18:00. Bókasafnið verður að sjálfsögðu opið og við bjóðum alla velkomna.

23.05.2011

Útskriftin var glæsileg að venju. Það var gaman að sjá þennan stóra hóp sparibúinn á sviðinu í Háskólabíói og óskum við þeim og aðstandendum þeirra til hamingju. Við eigum eftir að sakna þeirra.

05.05.2011

Próf standa nú yfir og nóg að gera hér í VÍ.

 

15.04.2011

Gleðilega páska!!

 

 

01.04.2011

Nú fer alvaran að  taka völdin þegar prófin byrja en þetta er alltaf  sérstakur tími þegar uppskeran kemur í ljós. Afgreiðslutíma bókasafnsins í vorprófunum má sjá undir tenglinum: Opið safn.

Við óskum öllum góðs gengis í prófunum.

Sýningar eru oft settar upp á safninu og vekja gjarnan mikla athygli. Þennan mánuðinn er ástin til sýnis. Ástin blómstrar á bókasafninu í ljóðum og sögum. Njótið!

 

15.02.2011

Nú er verkefna- og vinnutörn hjá öllum í skólanum. Ritgerðir, verkefni, próf og ýmislegt annað er í algleymingi núna og leita nemendur að sjálfsögðu til bókasafnsins.

 

1.02.2011

Bókasafninu verður lokað klukkan 16:00 miðvikudaginn 2. febrúar vegna árlegs nemendamóts. Það verður opnað aftur mánudaginn 7. febrúar klukkan 8:00.

25.01.2011

Mikið er um ritgerðir og verkefni og því nóg að gera hjá nemendum, kennurum og starfsmönnum bókasafnsins.

Nú nálgast Nemendamótið, auglýsingarnar komnar upp og allt í fullum gangi.

13.01.2011

Verkefnið "Lestur góðra bóka" er í fullum gangi og áhugasamir nemendur koma á bókasafnið og velja sér bók.

 

04.01.2011

Gleðilegt nýtt ár!

Venjulegur afgreiðslutími safnsins hefst á morgun. Sjá: Opið safn.

 

14.12.2010

Bókasafnið verður lokað frá og með 18. desember 2010.

Það verður opnað aftur þriðjudaginn 4. janúar 2011 og verður opið frá 08-16.

 

7.12.2010

Hið árlega jólabókaboð bókasafnsins verður föstudaginn 10. desember, frá 12:00 - 15:00. Hlökkum til að sjá ykkur!

 

29.11.2010

Nú standa prófin yfir og safnið er þéttsetið af áhugasömum nemendum. Í prófunum er safnið opið lengur og oftar en venjulega. Við óskum öllum góðs gengis!

15.11.2010

Nú er mjög mikið um verkefnavinnu og ritgerðir og eru nemendur mjög duglegir að koma á bókasafnið og afla heimilda.

Ung stúlka úr Valhúsaskóla kom til okkar á bókasafnið í starfskynningu og var hjá okkur hálfan daginn og var það mjög ánægjulegt.

Þann 16.11.2010 er "Dagur íslenskar tungu" og munum við í tilefni dagsins stilla upp bókum eftir Jónas Hallgrímsson.

Að lokum minnum við alla á leikritið sem Listafélag NFVÍ setti upp. Leikritið heitir "Blúndur og blásýra" og er virkilega skemmtilegt leikrit.

25.10.2010

Nú eru "jólabækurnar" farnar að berast í búðirnar og spennandi að sjá úrvalið.

Próf nálgast nú óðfluga og um að gera að lesa vel!

12.10.2010

Fimmtudaginn 14. okt. verður bókasafninu lokað kl. 16:00 en opnað aftur þriðjudaginn 19. okt. kl. 08:00.

 

16.09.2010

Nemendahópur frá Spáni er hér í heimsókn ásamt tveimur kennurum. Lítil sýning var sett upp með spænsku efni safnsins til heiðurs gestunum.

 

06.09.2010

Alvaran er byrjuð - nú gengur námið fyrir öllu og þar með kemur sér vel að vera á safninu. 

 

24.08.2010

Það var ánægjulegt að fá alla nýnemana í heimsókn á bókasafnið og vonandi mun það nýtast þeim vel í framtíðinni.

 

19.08.2010

Nú er skólaárið hafið og allir nýnemar boðnir í stutta kynningu á bókasafni skólans.

05.08.2010

Nú er sumarfríi lokið og safnið verður opið frá 8:00 til 16:00. Tilkynnt verður síðar um afgreiðslutíma í vetur.

16.06.2010

Bókasafn VÍ verður lokað vegna sumarleyfa frá og með 23. júní - 4. ágúst 2010.

Gleðilegt sumar.

 

10.06.2010

Þann 8. júní var "Opið hús" hér í VÍ og var aðsóknin góð. Margir skoðuðu aðstöðuna og komu í heimsókn á bókasafnið og virtist þeim vel líka.

Nú er safnið opið óreglulega og gott að fólk hringi á undan sér ef það ætlar að koma.

 

17.05.2010

Gjöf stúdenta ´90.

20 ára stúdentar gáfu Bókasafni VÍ veglega gjöf í tilefni 20 ára stúdentsafmælis síns. Það voru geisladiskar með ýmsu efni úr VÍ, m.a. nemendamótsefni, Hárið, skemmtikvöld og X´89. Kunnum við þeim miklar þakkir fyrir.

 

10. maí 2010

Enn og aftur biðjum við nemendur að skila bókum á bókasafnið sem allra fyrst.

 

4. maí 2010

Vorprófin ganga vel og safnið er þétt setið af áhugasömum nemendum í próflestri.

Mjög margir nemendur eiga eftir að skila bókum/gögnum á safnið og eru þeir hvattir til að skila og ganga frá sínum málum.

 

20. apríl 2010

Hér á bókasafninu er allt í fullum gangi, ótal verkefni, próf og ritgerðir. Prófin nálgast hratt og við aukum afgreiðslutímann sem sjá má undir tenglinum "Opið safn".

Nýtt efni berst jafnt og þétt og má sjá það á síðunni "Nýtt efni".

 

07. apríl 2010

Nú fara prófin að nálgast og vonandi verður uppskeran góð hjá ykkur öllum.

 

24. mars 2010

Frá og með laugardeginum 27. mars til og með þriðjudeginum 6. apríl verður Bókasafn VÍ lokað vegna páskaleyfis.

 

22. mars 2010

Frá Bókasafni VÍ.

Gettu betur lið - Finnur Ágúst, Stefán og Bjarki!!!

Til hamingju með að vera komnir í úrslit Gettu betur.

 

08. mars 2010

Verzlunarskólablaðið er komið út og er einkar glæsilegt. Nemendur færðu bókasafninu eintök af blaðinu og kunnum við þeim bestu þakkir.

 

23. feb. 2010

Verkefnavinnan heldur áfram og nemendur leita að heimildum, bæði rafrænum og prentuðum.

Bókasafnið verður að sjálfsögðu opið miðvikudaginn 24. febrúar frá klukkan 18-20 þegar forráðamönnum nemenda er boðið að heimsækja skólann.

Verið hjartanlega velkomin. 

 

16. feb. 2010

Nú er mjög mikið um verkefnavinnu og ritgerðir. Nemendur eru duglegir við að afla sér upplýsinga og fá alla þá hjálp sem þeir vilja á bókasafninu.

 

2. feb. 2010

Bókasafninu verður lokað klukkan 16:00 miðvikudaginn 3. febrúar vegna árlegs nemendamóts. Það verður opnað aftur mánudaginn 8. febrúar klukkan 8:00.

1. feb. 2010

Verkefnavinnan er enn í gangi og gengur bara vel.

Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrverandi ráðherra færði bókasafninu bókagjöf. Þetta eru bækur sem hann sagði hafa verið notaðar á fyrstu árum Verzlunarskólans.

Í tilefni þess að 150 ár eru liðin frá fæðingu Einars H. Kvaran eru bækur hans sem bókasafnið á til sýnis.

 

19. jan. 2010

Nú stendur verkefnavinna sem hæst og kennir þar ýmissa grasa, m.a. eru mörg verkefni í íslensku og sögu. "Lestur góðra bóka" gengur mjög vel og nemendur eru áhugasamir.

9. nóv. ´09

Nú styttist óðum í jólaprófin og ég bendi nemendum á að nota tímann vel!

Nú er blómatími í útgáfu íslenskra bóka og þó nokkrar eru komnar á bókasafnið.

Allir velkomnir.

St.

 

 8. 10.09

 Það er mjög mikið um verkefnavinnu hjá nemendum skólans og eru þeir mjög duglegir að koma á bókasafnið og afla heimilda. Sem dæmi um verkefni má nefna, jarðfræði, félagsfræði, íslensku, mannkynssögu, listasögu og  menningafræði. Starfsmenn safnsins gleðjast mjög hversu mikil sókn er á safnið og hve nemendur eru duglegir að sækja sér aðstoð.

 

Margir gestir hafa heimsótt safnið undanfarið, m.a. erlendir gestir sem tengjast skólanum.

 

Nýnemar komu allir í heimsókn á bókasafnið í skólabyrjun og var það mjög ánægjulegt.  Þeir – og aðrir nemendur í skólanum – nota safnið mjög mikið og oft er fullsetinn bekkurinn.


Árni B. Sveinsson, fyrrum nemandi VÍ, gaf bókasafninu margar bækur í vor og kunnum við honum bestu þakkir.   Styttur Hallsteins  Sigurðssonar sem Árni gaf einnig eru á bókasafninu.  25 ára stúdentar gáfu Floru Islandica eftir Eggert Pétursson (eintak 182 af 500) og Gardner‘s  Art through  the ages.  Einnig gáfu 30 ára stúdentar peningagjöf.  Við þökkum gefendum hlýhuginn.

Ég hvet alla í VÍ til að skoða bæði bækur og styttur. 

 

9. júní 2009.

Opið hús

18. maí 2009.

Nú tekur uppskerutíminn við!

Fimmtudagur 14. maí 2009.

Enn eru nemendur að búa sig undir próf, sjúkraprófin eru á morgun.

Vonandi gengur öllum vel:-)

Mánudagur 11. maí 2009.

Fjaðrafok hér og á göngum í morgun, mjög margir að fara í próf...vonandi gengur öllum vel :-)

Föstudagur 8. maí 2009.

Það voru glaðir nemendur sem voru á safninu í dag - nú sér fyrir endann á prófunum í næstu viku!

Miðvikudagur 7. maí 2009.

Þétt setið á bókasafninu þennan daginn :-)

Í gær komu hressir herramenn sem eiga útskriftarafmæli og heimsóttu safnið sitt sérstaklega.

Einnig komu menn sem eru á námskeiði hér í heimsókn og var það hin ánægjulegasta stund.

 Þriðjudagur 5. maí 2009.

Í dag er próflaus dagur og nemendur nýta daginn og bókasafnið til hins ítrasta.

Mikið held ég að við söknum þeirra þegar prófum lýkur :-)

Sunnudagur 3. maí 2009.

Nú er sunnudagur og bókasafnið fleytifullt af iðnum nemendum í próflestri :-)

Þriðjudagur 28. apríl 2009.

Bókasafnið er fullt af nemendum að lesa fyrir próf og lesstofan líka.

Sunnudagur 27. apríl 2009.

Glæsileg dimission var á föstudaginn og allt til fyrirmyndar hjá 6. bekkingum. Ég þakka boðiið :-)

Nú er safnið fleytifullt og gaman að sjá krakkana lesa af miklum móð.

Nú er alvara á ferðum!

23. apríl 2009.

Gleðilegt sumar- takk fyrir veturinn.

22. apríl 2009.

Nú fara stúdentsefnin að búa sig undir próf og brottför.

Dimission er á föstudaginn nk. og verður mikil hátíð um daginn og kvöldið.

20. apríl 2009 .

Til hamingju með glæsilegan sigur í Morfískeppninni !

17. apríl 2009.

MORFÍS keppnin er í kvöld. Við óskum liðinu okkar góðs gengis!

15. apríl 2009.

Skólinn hefst að nýju og nú er lokaspretturinn að hefjast !

3. apríl 2009.

Gleðilega páska!

1. apríl 2009.

Nú nálgast páskar og vonandi njótum við þeirra öll.

31. mars 2009.

Auglýsing um páska/ lokað safn er birt í dag.  Hún var send öllum í tölvupósti  og er líka undir Opið safn.

Allt á fullu hér - við nám og störf !

30. mars 2009.

Til hamingju, allir sem náðu markmiði sínu- og hlutu kosningu.

25. mars 2009.

Kosningarnar til embætta NFVÍ standa sem hæst og mikið að gerast ! 

Margir sækjast eftir embættum og spennan í algleymingi :-)

24. mars 2009.

Hér er allt að gerast -og allir á fljúgandi ferð!

Námið er auðvitað númer eitt- en fleira kemur til.

Gettu betur er lokið hjá okkur- drengirnir okkar stóðu sig sannarlega vel, - svo kemur Morfís, kosningar til NFVÍ, utanlandsferðir nemenda og kennara og margt fleira.

17. mars 2009.

Nú er þröng á þingi á safninu, fróðleiksfúsir nemendur sækja mikið hingað !

16. mars 2009.

Verzlunarskólablaðið er komið út !

2. mars 2009.

Nú fer Verzlunarskólablaðið að koma út, líklega á morgun.

6. mars 2009.

Opna húsið í gær tókst afar vel og gestirnir sem voru margir voru sýnilega ánægðir og leist vel á. Bókasafnið var galopið og komu mjög margir þangað. Gaman var að sjá þar á meðal "gamla" nemendur út Hagaskóla og Versló sem ég hafði kennt- og þekkti aftur! Nú var verið að huga að framhaldsskóla fyrir börnin þeirra. Svona er þetta nú!  S.

5. mars 2009.

Opið hús í dag, 5. mars - frá 18:00 til 20:00.

Allir hjartanlega velkomnir :-)

2. mars 2009.

Til hamingju með glæsilegan sigur, drengir í Gettu betur!

27. febrúar 2009. 

Hvetjum Gettu betur strákana okkar til sigurs á laugardaginn !

23. febrúar 2009.

Góðgerðarvikunni lauk með afreksgöngu bekkjarfélaganna í 4D frá Keflavík að VÍ.

Frábært hjá þeim !

18. febrúar 2009.

Áheit ! Nú er góðgerðarvikan hálfnuð og allt í fullum gangi.

Munið að þetta er tækifæri sem gefst ekki á hverjum degi!

16. febrúar 2009.

MUNIÐ GÓÐGERÐARVIKUNA :-)

13. febrúar 2009

"Í næstu viku er Góðgerðarvikan haldin til styrktar Mæðrastyrksnefnd og nemendafélaginu.  Á fimmtudeginum verður áskorendadagur með svipuðu sniði og í fyrra og því komið að ykkur að sýna hvað í ykkur býr og skora á samnemendur og kennara.  Með von um magnaða þátttöku. "

GVÍ.

Úr bréfi GVÍ, stytt.

10. febrúar 2009.

Skólakynningarnar fyrir 10. bekkinga grunnskóla eru komnar af stað aftur.

Við fögnum grunnskólanemum og fylgdarfólki þeirra ! 

9. febrúar 2009.

Nú er Nemendamótið búið og námið aftur fyrst á dagskrá !

Vonandi sækist ykkur námið vel !

4. febrúar 2009.

Gleði-og fræðsludagurinn er í dag. Fjölbreytt dagskrá hefst kl. 10:00 og margt forvitnilegt í boði.

Nemendamótið er á morgun! Sjáumst!

Skólinn er lokaður til mánudagsins 9. febrúar 2009.

2. febrúar 2009.

Nú styttist í Nemendamót VÍ - og undirbúningur í algleymi, miðasala hafin og eftirvænting í loftinu :-)

30. janúar 2009.

Nóg að gera við afgreiðslu, útlán, rukkanir og tiltekt á safninu.

29. janúar 2009.

Forvarnadagurinn er 4. febrúar nk.

Nú eru grunnskólanemendur að heimsækja okkur og við bjóðum þá hjartanlega velkomna.

27. janúar 2009.

Við unnum!   Til hamingju drengir!

26. janúar 2009.

Gettu betur liðið okkar keppir í kvöld við FG. Við óskum þeim og VÍ auðvitað SIGURS:-)

22. janúar 2009.

Starfsmannafundur bókasafsins var kl. 16:00 í gær og fór vel fram:-)

19. janúar 2009.

Opið hús hjá FJARNÁMINU var á föstudaginn hér í VÍ.

Nemendur hafa  komið sér í lærdómsgírinn og margir að lesa á bókasafninu.

Nú fer að styttast í Nemendamót VÍ- og andi þess svífur í loftinu :-)

16. janúar 2009.

Okkar strákar í Gettu betur unnu í gær. Til hamingju !

15. janúar 2009.

Nú fer Gettu betur af stað og okkar menn keppa í kvöld við MS.

Við óskum þeim sannarlega gæfu og gengis :-)

13. janúar 2009.

Nýtt efni á safni! 

12. janúar 2009.

Allt á fullu!

Nú er undirbúningur Nemendamótsins kominn nokkuð á veg...

7. janúar 2009.

Nú er skólastarfið að komast í gang og fólk að átta sig á nýjum aðstæðum.

 5. janúar 2009.

Farsælt nýtt ár og kærar þakkir fyrir hið liðna.

Nú hefst nýr kafli í skólalífinu og vonandi verður hann farsæll öllum.

****************************************************************

15. desember 2008.

Sjúkraprófin eru í dag, vonandi gengur próftökum vel :-)

11. desember 2008.

Nú fer prófum að ljúka og við vonum að allir hafi náð takmarki sínu :-)

8. desember 2008.

Jólabókaboðið okkar tókst mjög vel og mjög margir gáfu sér tíma til að skoða nýjar bækur og njóta veitinganna.

Við þökkum öllum sem komu og glöddust með okkur.

Kennararnir Ármann Halldórsson og Róbert Jack lásu úr riti sínu, Heimspeki fyrir þig, sem var gefið út í haust 2008 hjá Máli og menningu. Fannst mörgum eins og þeir væru að lýsa núverandi ástandi !

Við þökkum þeim einnig kærlega fyrir framlagið.

Takk fyrir :-)

S.

4. desember 2008.

Hið árlega jólabókaboð bókasafnsins verður á morgun, frá 12:00 - 15:00 !

Undirbúningur stendur sem hæst og tilhlökkunin er mikil.

********************************************

Hér er fleytifullt bókasafn af iðnu námsfólki sem hamast við að læra- enda ekki seinna að vænna. Það er virkilega notaleg tilfinning að vera á safninu og sjá og finna lærdómsandann sem þar ríkir. Sjálft safnið, lesstofan og margar kennslustofur eru í notkun frá morgni til kvölds. Ég læðist og reyni að láta lítið fyrir mér fara þegar ég er á ferðinni til að vita hvort fólki líði ekki vel og allt sé í góðu standi.

S.

***************************************************************************************************

3. desember 2008.

Safnið er fleytifullt af fróðleikfúsum nemendum í próflestri !

1. desember 2008.

Prófin byrjuðu í morgun - og við vonum að öllum gangi vel :-)

26. nóvember 2008.

Jóladótið okkar var tekið úr geymslunni í dag :-)

25. nóvember 2008.

Nú eru "jólabækurnar" að tínast inn á safnið og mikil eftirvænting!

Jólabókaboðið okkar fyrir samstarfsfólk er þann 5. desember nk. :-)

20. nóvember 2008.

Athugið!

Ákveðið hefur verið að fresta söfnuninni sem átti að vera um helgina til næsta árs.

*******************************************************************

Nú eru góðgerðamálin í brennidepli á laugardaginn. Notaður fatnaður og fleira til sölu hér til styrktar ABC barnahjálpinni.

Verzló - Skapandi skóli.

Núna á laugardaginn 22. nóvember næstkomandi mun svo kallaður Skapandi dagur vera haldinn í skólanum. Þá munu nemendur skólans halda flóamarkað á Marmaranum þar sem nemendur selja  gömul föt,skó,töskur o.s.frv. og einnig smákökur og annað góðgæti. Allur ágóði af sölunni mun renna óskiptur til ABC barnahjálpar í Kenýa sem var rænd á dögunum. Við hvetjum alla til þess að taka til í geymslunni og koma með dótið í skólann á mogun og fram að helgi í stofu BM-Vallá á Marmaranum. Dagskráin verður fjölbreytt og fer fram milli 12:00 og 16:00. Við vonumst til þess að sem flestir sjái sér fært um að mæta, gera góð kaup, fá sér smákökur í jólastemmningunni og um leið styrkja gott málefni.

Vonumst til þess að sjá sem flesta.

Góðgerðarráð VÍ og Verzlunarskóli Íslands.

****************************** 

Vælið var stórgott og framkvæmdin flott.

Til hamingju!

***************************************

14. nóvember 2008.

Við unnum Flensborg í Morfís keppninni sem var í gær.

Til hamingju, Hafsteinn Gunnar, Eva Fanney, Einar, Stefán Óli og félagar allir!

Nú er Vælið í kvöld!

12. nóvember 2008.

Mér fannst sérlega ánægjulegt að sjá vönduð vinnubrögð á leiksýningu VÍ í gær- og skemmti mér hið besta.

Það er margt í gangi núna, leikrit, Morfís og Vælið svo nokkuð sé nefnt.

Svo koma jólaprófin!

S.

10. nóvember 2008.

Leikritið er stórkostlegt og vel að verki staðið þar - hvet ég alla til að ná sér í miða og sjá það.

Svo kemur Vælið og ég á von á því að það verði frábært -að venju.

NFVÍ er sannarlega lifandi félag undir traustri stjórn!

S.

4. nóvember 2008.

Listavikan stendur yfir núna og kennir þar ýmissa grasa, t.d. sýningar á leikritinu 10 litlir negrastrákar!

3. nóvember 2008.

Nú er nóvembermánuður mættur og best að fara að hyggja að undirbúningi prófanna!

Læra, læra og læra!

31. október 2008.

Viljinn er 100 ára í dag!

Við óskum öllum í VÍ til hamingju með afmælið!

 28. október 2008.

Nú streyma nýjar bækur á bókasafnið!

*******************************

Ég mætti auðvitað á góðgerðaknattspyrnuleikinn á laugardagskvöldið !

Hann var skemmtilegur og við unnum sanngjarnan sigur!

S.

23. október 2008. 

Nú er margt í gangi í skólanum, Viljinn 100 ára og  bráðum fer góðgerðavikan af stað.

21. október 2008.

Hjólin byrja að snúast að nýju!

16. október 2008.

Skólinn verður lokaður í vetrarleyfinu.

Sjá : Opið safn.

15. október 2008.

Hér ómar tónlist um allar hæðir, Versló Waves stendur yfir og fer ekki framhjá neinum!

*********************************************************************

Aðeins örfáar "jólabækur" eru komnar út.

*********************************

9. október 2008.

Íþróttavikan gengur vel- og námslesturinn líka því safnið er yfirleitt fleytifullt af áhugasömum nemendum!

6. október 2008.

Starfsfólk bókasafnsins óskar öllum í VÍ til hamingju -og sérlega vinum okkar sem voru að keppa á föstudaginn  - og unnu !

Nú stendur yfir íþróttavika með öllu sem henni fylgir. Nóg við að vera!

3. október 2008.

Nýnemar hafa nú allir komið í stutta bókasafnskynningu og vonandi orðið margs vísari.

Það var mjög gaman að spjalla við nemendur :-)

2. október 2008.

Átta þriðju bekkir hafa nú komið í heimsókn á safnið  á kynningu. Nemendurnir hafa verið áhugasamir, spurt og spjallað og mjög gaman að ræða við þá.

Nú eru fjórir bekkir ókomnir og að því loknu lýkur kynningum fyrir nýnema þetta haustið.

29.  september 2008.

Nú hefjast kynningarnar á bókasafninu. Allir 3. bekkingar fá sent bréf frá bókasafninu og síðan koma nemendur í heimsókn á bókasafnið og ég spjalla við hópana sem eru alls 12.

Þetta eru yfirleitt hinar bestu stundir og tilhlökkunarefni.

S.

24. september 2008.

Hér er verkefnavinna - ýmsar greinar- í fullum gangi og má þar nefna jarðfræði, íslensku og alþjóðafræði o.fl.

Það er nóg að gera!

22. september 2008.

Ordabok.is  býður endurgjaldslaus afnot af dansk-íslenskri og íslensk-danskri orðabók á netinu skólaárið 2008-2009.  

ordabok.is

Það er flott boð og ættu allir að nýta sér það!.

Nú eru nýútkomnar bækur farnar að berast á bókasafnið,  - spennandi !

Söfnunin ( mænuskaða ) gekk mjög vel og er þeim nemendum VÍ sem lögðu henni lið þakkað af alhug. Sömuleiðis öllum þeim hér sem studdu málstaðinn.

19. september 2008.

 "Mænan er ráðgáta".

Söfnun á vegum Mænuskaðastofnunar Íslands stendur nú yfir og hafa nemendur skólans verið duglegir að selja "ráðgátur" til styrktar stofnuninni.

Þökk sé þeim - og kaupendum!

15. september 2008.

Steinunn sótti menntaþing á föstudaginn og leist mjög vel á það sem kom fram þar.

8. september 2008.

Margar nýjar bækur og önnur gögn hafa bæst við safnið síðustu daga.

5. september 2008.

Nú er allt að komast í fullan gang og allir að verða húsvanir.

1. september 2008.

Mannabreytingar á bókasafninu - barnsburðarleyfi.

Rósa björg Jónsdóttir, bókasafnsfræðingur leysir Klöru af í barnsburðarleyfi.

Rósa var nemandi í VÍ og vann mikið og gott starf á safninu árum saman.

Hún hefur verið búsett á Ítalíu en er nú hér heima- og var gripin þegar ljóst var að Klara færi í leyfi !

Við bjóðum Rósu velkomna  og óskum Klöru okkar alls góðs í barnsburðarleyfinu.

29. ágúst 2008.

Fyrsta skólavikan á nýju skólaári tókst vel og fólk ánægt.

25. ágúst 2008.

Allt að komast á fulla ferð og nýnemarnir okkar að ná áttum.

Megi skólaárið hér blessast öllum og verða til gagns og gæfu.

20. ágúst 2008.

Nú er allt að fara í gang og mikið um að vera !

19. ágúst 2008.

Skólasetning hefst kl 10:00.

Við bjóðum nýnema og eldri nemendur hjartanlega velkomna !

15. ágúst 2008.

Undibúningur fyrir veturinn er í fullum gangi, nýtt efni flokkað og skráð og miklar tilfæringar!

7. ágúst 2008.

Bókasafnið var opnað 11. ágúst 2008.

Opið frá 08-16 til 25. ágúst, - þá hefst venjulegur afgreiðslutími safns.

Sjá : Opið safn.

 

28. júlí 2008.

Skólasetningin er þann 19. ágúst.

19. júní 2008.

Innritun er lokið og skólastarfinu lýkur 20. júní.

Vinsamlegast skilið gögnum á bókasafnið!

S.

13. júní 2008.

Nú stendur inntaka nýnema yfir í skólanum.

11. júní 2008.

Mjög margir komu í heimsókn á bókasafnið um leið og þeir skoðuðu skólann -sumir innrituðu sitt fólk á staðnum -og vona ég að allir hafi notið þessarar heimsóknar.

Skólinn var í sínu fínasta pússi, tandurhreinn og glæsilegur að vanda.

Ég hitti marga gamla nemendur mína úr Hagaskóla og líka úr VÍ sem voru að fylgja börnum sínum og fannst mér það einstaklega ánægjulegt að sjá kynslóðirnar vaxa fram!

S.

10. júní 2008.

Í dag er "Opið hús" hér í VÍ og við bjóðum alla velkomna á bókasafnið!

Okkur er það mikil ánægja að sýna safnið og skólann.

3. júní 2008.

Endurtektarprófin standa yfir núna og ég óska öllum góðs gengis.

S.

30. maí 2008.

Nú eru endurtektarprófin eftir helgina. Við vonum að öllum gangi vel!

S.

29. maí 2008.

Ég yrði ósegjanlega glöð ef vanskilafólkið mitt hér í skólanum kæmi með bækurnar sem það er með af bókasafninu !

S.

26. maí 2008.

24. maí var frábær útskriftardagur, mikil gleði, sigrar og veislur.

24. maí 2008.

Hátíðisdagur í dag, útskrift stúdenta frá VÍ.

Til hamingju, stúdentar og fjölskyldur!

22. maí 2008.

Nú fer stóra stundin að renna upp, útskriftin sem allir bíða eftir!

Gott væri að fólk skilaði lánsbókum og öðrum gögnum!

21. maí 2008.

Til hamingju með verslunarprófið, 4. bekkingar!

20. maí 2008.

Það gengur vægast sagt illa að innheimta lánsgögn, öll  þessi vanskil  eru mér nánast óskiljanleg !

Nemendur góðir, það er enn hægt að skila !

S.

19. maí 2008.

Ég minni fólk á að skila gögnum á bókasafnið!

Verzlunarskólinn á bækurnar sem þið hafið fengið að láni!

Enn og aftur bið ég ykkur að skila gögnum sem þið hafið fengið að LÁNI !

S.

14. maí 2008.

Sjúkrapróf hjá 6. bekk -og rukkað í gríð og erg á bókasafninu. Mikil vinna við að ná lánsgögnum inn!

 Hér eru alltof margir sem skila ekki bókum eða öðrum lánsgögnum - og þykir okkur það leitt.

S.

13. maí 2008.

Sumir luku prófum í dag og til hamingju með það - en aðrir verða að bíða eftir föstudeginum!

Vonandi gengur öllum vel og uppskera ríkulega!

S.

9. maí 2008.

Allir bekkir í prófum í dag, -vonandi gengur öllum vel  - og ná settu marki!

7. maí 2008.

Nú eru prófin í algleymingi og mikið fjaðrafok á bókasafninu, bækur, blöð, glósur, vasareiknar og önnur hjálpartæki eru út um allt!  Vonandi gengur öllum vel þegar á hólminn er komið!     

4. maí 2008.

Sunnudagur - og ánægjulegt að sjá hversu margir nýta sér safnið. Fleytifullt bókasafn, lesstofa og margar kennslustofur.

Frábært!  Það er vilji skólastjórnenda og bókasafnsstjóra að nemendur hafi góða aðstöðu hér og mér sýnist hún  þakksamlega þegin !

S.

2. maí 2008.

Fleytifullt bókasafn af iðnum nemendum- og prófkvíðnum!

Allir að lesa og læra og andrúmsloftið magnþrungið!

Við óskum öllum góðs gengis!

30. apríl 2008.

Í gær var haldinn HÁTÍÐLEGUR hinn árlegi PEYSUFATADAGUR SEM TÓKST MJÖG VEL.

28. apríl 2008.

Safnið hefur verið þétt setið um helgina enda galopið !

Við þökkum 6. bekkingum fyrir mjög góða skemmtun!

Gangi ykkur allt í haginn.

S.

9. apríl 2008.

Enn og aftur er fólk beðið um að skila gögnum á bókasafnið - eða endurnýja lánið sé það hægt.

Það bíða ótrúlega margir eftir bókum !     

S.

 7. apríl 2008.

Því miður hafa gögn / bækur ekki skilað sér á bókasafnið þrátt fyrir ítrekuð tilmæli !

Nú er rétti tíminn til að skila gögnum á safnið- eða biðja um framlengingu!

 2. apríl 2008.

Það eina sem angrar okkur hér á safninu eru dræm skil sumra lánþega -sem sinna í engu ítrekuðum tilmælum um skil!   

Það sem gleður okkur ósegjanlega er hinn mikli meirihluti notenda safnsins sem alltaf skilar á réttum tíma- eða biður um framlengingu á láninu -og er til fyrirmyndar.

Nú eru allir nemendur beðnir að SKILA bókum og öðru sem þeir hafa fengið lánað af bókasafninu - eða koma og ræða endurnýjun !  

 Það eru 2296 færslur í hliðargrunni Gegnis frá okkur hér í VÍ og í Gegni eru nú komnar 10.462 færslur.

Klara vinnur ötullega að þessum málum og yfirfærslunni verður brátt lokið.

 S.

31. mars 2008

Nú er Hafsteinn Gunnar tekinn við sem forseti NFVÍ og veit ég að samstarfið við hann verður með miklum ágætum eins og það var við Árna Má fv. forseta. Til hamingju, Hafsteinn Gunnar og bestu þakkir, Árni Már!

Mér er sönn ánægja að þekkja og umgangast allt þetta úrvalsfólk sem hér er á ferð- og í raun alla nemendur skólans sem eru  sjálfum sér og heimilum sínum til sóma.

Til hamingju, forseti og stjórn NFVÍ, nefndarfólk og nemendur allir.      

S.

26. mars 2008.

Nú hefst skólastarfið að loknu páskaleyfi- og allir vel hvíldir og hressir.

14. mars 2008.

Gleðilega páska!

13. mars 2008.

Hvergerðingar komu í heimsókn í morgun og voru glaðlegir og kátir.

11. mars 2008.

10. bekkingar Valhúsaskóla og Breiðholtsskóla komu í heimsókn á bókasafnið í dag og var gaman að kynna safnstarfsemina stuttlega fyrir þeim - eins og reyndar öllum skólunum sem hafa komið þennan vetur.          

 7. mars 2008.

Nú eru færslurnar í Gegni orðnar 10.428 að sögn Klöru sem sér alfarið um þær og miðar mjög vel áfram.

Þá eru 2.321 færsla eftir í hliðargrunni og mun þeim fækka ört miðað við hraðann hjá Klöru!

6. mars 2008.

Það hafa mjög margir grunnskólanemendur komið í heimsókn á safnið þessa viku og er það vel.

3. mars 2008.

Við þökkum strákunum okkar frækilega frammistöðu í Gettu betur.

29. febrúar 2008.

Hlaupársdagur er í dag!

Vonandi verður þetta sigurdagur fyrir okkur í VÍ !

28. febrúar 2008.

Munið skilavikuna!

**************

Nú er Gettu betur á morgun, VÍ -MR.

Strákar - ykkur fylgja góðar óskir héðan af bókasafninu!

25. febrúar 2008. 

Frá Bókasafni VÍ.     

Sérstök skilavika á bókum og öðrum gögnum 25.-29. febrúar 2008.

Óvæntur glaðningur við skil!

19. febrúar 2008

Nú eru færslurnar í Gegni orðnar 10.368 samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Klöru sem á heiðurinn af flutningnum á milli kerfa.

******************************************************

Nú eru skólakynningar í fullum gangi og alltaf gaman að fá grunnskólanemendur í heimsókn.

Nemendur úr mörgum grunnskólum væntanlegir í dag.

15. febrúar 2008

Morfís keppni í kvöld, VÍ- MR !

12. febrúar 2008

Í dag koma grunnskólanemendur úr Foldaskóla í kynnisferð hingað og við tökum auðvitað vel á móti þeim sem og öllum sem hingað koma.

11. febrúar 2008

Starfsmannafundur bókasafnsins verður kl. 16:00 í dag.

********************************************

Vonandi hefur helgin verið öllum ánægjuleg.

Nemendamótssýningin var frábær og verður áreiðanlega vinsæl og sýnd oft.

6. febrúar 20008

Forvarnadagurinn er í dag og - mikil og áhugaverð dagskrá!

Góða skemmtun á Nemendamótinu og gangi ykkur vel.  

5. febrúar 2008

Nemendur eru eindregið hvattir til að skila bókum / gögnum strax á bókasafnið að lokinni notkun !

Takið tillit til annarra!

S.

4. febrúar 2008

Hér er mikið um að vera, nemendur eru að  afla efnis vegna fyrirlestra og vinna margs konar verkefni.

Fjör hér nú sem endranær- engin stöðnun enda fullt hús af ungu og tápmiklu fólki ! 

 30. janúar 2008

Okkar menn í Gettu betur fengu MR sem mótherja næst. Við óskum þeim Árna Má,  Stefáni og Finni að venju góðs gengis og sendum þeim hlýjar hugsanir.

Sendiherra Kína á Íslandi og fylgdarmenn hans sóttu Verzlunarskólann heim í gær, skoðuðu skólann - og bókasafnið sem flaggaði öllu sínu!- , sýndu myndir og snæddu hádegisverð með starfsfólkinu. Var heimsóknin mjög ánægjuleg.

Í gær flutti Ingólfur Ásgeir Jóhannesson mjög fróðlegt og skemmtilegt erindi hér fyrir starfsfólk.   Hann er prófessor við Kennaradeild Háskólans á Akureyri og hefur fengist við rannsóknir í menntunarfræði.

Gegnisfærslur okkar safns eru nú 10.340 alls.    

28. janúar 2008

Nú fer Nemendamótið að nálgast!

23. janúar 2008

Gegnisfærslur eru nú þessa stundina alls 10.317. Klara er iðin við kolann og hamhleypa til verka.

Helga er núna að rukka inn gögn sem komin eru í vanskil.

Það er alveg furðulegt að fólk skuli ekki skila á réttum tíma - eða biðja um framlengingu lánsins.

Þökk sé þeim sem standa alltaf í skilum, þeir eru sem betur fer fleiri en hinir!

S.

21. janúar 2008

Nú er lognið á undan storminum- og allir að læra!

17. janúar 2008

Versló waves hátíð stendur yfir núna, Gettu betur strákarnir okkar komnir áfram og það styttist í Nemendamótið :-)

Nóg að hlakka til og við að vera, - en NÁMIÐ má ekki gleymast!.

10.311 Gegnisfærslur í morgun.

Til hamingju, strákar með sigurinn í Gettu betur keppninni í útvarpinu.

14. janúar 2008

Gegnifærslunum hjá Klöru hefur heldur betur fjölgað. Þær eru nú orðnar 10296 og er þar vel að verki staðið!

11. janúar 2008

Hér eru nemendur að gera verkefni í stórum stíl um allt milli himins og jarðar, m.a. stjörnufræði, fugla og lönd!

9. janúar 2008

Mikið að gera hér á safninu, margir að skila og skipta um lesefni sem er gott.

8. janúar 2008

Skólastarfið komið á fullt skrið- og gott að sjá áhugasama nemendur á bókasafninu, nú á að taka námið með stæl!

7. janúar 2008

Nú hefst skólastarfið að nýju að loknu jólafríi og um að gera að taka námið föstum tökum strax!

4. janúar 2008

Gleðilegt nýtt ár og kærar þakkir fyrir hið liðna.

Velkomin öll til starfa á ný.

Nú eru Gegnisfærslur á gögnunum hér í VÍ orðnar 10238 sem er mjög gott.

20. desember 2007

Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Njótið jólaleyfisins.

Starfsfólk  Bókasafns VÍ.

___________________

Gegnisfærslurnar á bókasafninu eru nú 10.227.

18. desember 2007

Nú er prófum lokið og nemendur komnir í jólaleyfi.

Einkunnir verða afhentar fimmtudaginn 20. desember.

13. desember 2007 

Nú eru færslurnar í nýja kerfið, Gegni, orðnar 10.200.                                     

Þetta skotgengur!

12. desember 2007

Prófin ganga vel fyir sig og menn sjá fyrir endann á þessari prófahrinu; síðasta próf er á föstudag og sjúkrapróf á mánudaginn næsta.

10. desember 2007

Nú eru bókfræðifærslurnar í GEGNI orðnar 10.193 og ber svo sannarlega að fagna því.

6. desember 2007

Hér er fleytifullt bókasafn af iðnu námsfólki sem hamast við að læra- enda ekki seinna að vænna. Það er virkilega notaleg tilfinning að vera á safninu og sjá og finna lærdómsandann sem þar ríkir. Sjálft safnið, lesstofan og margar kennslustofur eru í notkun frá morgni til kvölds. Ég læðist og reyni að láta lítið fyrir mér fara þegar ég er á ferðinni til að vita hvort fólki líði ekki vel og allt sé í góðu standi.

S.

5. desember 2007

Prófin eru byrjuð og nóg að gera á öllum vígstöðvum!

30. nóvember 2007

Mikill atgangur hér á safninu við frágang verkefna og ritgerða.

Það örlar á kvíðatilfinningu hjá sumum því prófin færast óðfluga nær.

Lesið,  lærið, rifjið upp  - þá mun vel ganga.

26. nóvember 2007

Nú byrjar alvara lífsins! Jólaprófin nálgast!

Það var ánægjulegt að sjá hve margir nýttu sér bókasafnið í gær, sunnudag, til að lesa og læra.     

23. nóvember 2007

GVÍ dagurinn var frábær og tókst mjög vel í alla staði, samstaðan góð og skemmtunin líka. Áfram krakkar!

22. nóvember 2007

GVÍ dagurinn er í dag og gífurlegur undirbúningur skilar sér áreiðanlega í góðum árangri.

21. nóvember 2007

Góðgerðadagurinn er á morgun, ýmislegt í boði !

Áheit í gangi og ég mæli með að allir taki þátt.

S.     

19. nóvember 2007

Fundur í MS í dag hjá bókasafns-og upplýsingafræðingum í framhaldsskólum.

14. nóvember 2007

Dagur íslenskrar tungu er á föstudaginn, 16. nóvember.     

Nú er Klara búin að færa 10058 færslur í Gegni og miðar verkinu mjög vel.

12. nóvember 2007

Norræna bókasafnavikan er hafin, ýmislegt í gangi á söfnunum.

9. nóvember 2007

Norræna bókasafnavikan hefst á mánudag. Konan í norðri er þema ársins.

Bækur Sigrid Undset og Astrid Lindgren eru í brennidepli.

Þar eru m.a. Kristín Lafranzdóttir sem höfundur fékk Nóbelsverðlaun fyrir 1928 og Ronja ræningadóttir, Lína langsokkur og  margar fleiri eftir Lindgren.

6. nóvember 2007

Ég sá leiksýninguna í gærkvöldi og skemmti mér konunglega!

Mæli með henni og  hvet fólk til að fara.

Takk fyrir skemmtunina.

S.

5. nóvember 2007

Nú er rukkunarherferð í gangi á gögnum safnsins; það er of mikið um að fólk fái gögn safnsins að láni fljótt og vel en  dragi að skila þar til í óefni er komið.  Þá bíða of margir of lengi!

Síðasta sýning á leikritinu mun vera í kvöld, ég hvet þá sem eiga eftir að sjá sýninguna til að fara.     

1. nóvember 2007

Frumsýningin á leikritinu er í kvöld!

30. október 2007 

Nú fer að koma að leiksýningu ársins hér í skólanum, frumsýning er næsta föstudag.

Allir hvattir til að mæta!

29. október 2007

Nú fer að styttast í prófin og um að gera að athuga sinn gang svo allt fari nú vel ! Verið dugleg að lesa og læra!

Gegnisfærslur eru nú orðnar 9885.

Tveir nemendur í fræðunum komu í heimsókn á föstudaginn og fengu hér upplýsingar sem við vonum að komi að gagni.

Nú hefur Klara okkar á bókasafninu lokið BA prófi sínu í bókasafns-og upplýsingafræði ásamt uppeldis-og menntunarfræði frá HÍ. Við fögnum því og óskum Klöru hjartanlega til hamingju.

25. október 2007

Hingað komu góðir gestir frá Þýskalandi og skoðuðu skólann og m.a. bókasafnið.

24. október 2007     

Nú eru nýjar bækur óðum að bætast við!

23. október 2007

Mikið fjör í verkefnavinnu af ýmsu tagi!

22. október 2007

Nú koma allir glaðir og endurnærðir að loknu vetrarleyfi!

Gegnisfærslurnar eru orðnar 9873.  

19. október 2007

Bókasafnið verður lokað í vetrarfríinu eins og auglýst hefur verið og einnig tölvustofurnar.

Hittumst hress og kát mánudaginn 22. október 2007!

16. október 2007 

Gegnisfærslur VÍ er nú 9800, það er vel að verki verið hjá Klöru.  Þá eru einungis 2.800 færslur eftir í hliðargrunni !

Versló waves ´07 er í fullum gangi þessa viku! :-)

Nóbelsverðlaun í hagfræði.

Bandaríkjamennirnir Leonid Hurwicz, Eric Maskin og Roger Myerson fá Nóbelsverðlaunin í hagfræði  í ár. Frá þessu greindi sænska nóbelsakademían í morgun. Verðlaunin fá þremenningarnir fyrir að hafa lagt grundvöllinn að kenningu um kerfisskipulagningu markaða. Í yfirlýsingu frá sænsku akademíunni kemur fram að kenning þremenninganna hafi aukið skilning hagfræðinga á eðli markaða og hvernig hægt er að greina þá. Þá segir ennfremur að kenningin um kerfisskipulagningu markaða leiki stórt hlutverk á mörgum sviðum hagfræðinnar og hafi einnig haft áhrif á stjórnmálafræði. (Vísir.is -16.10.2007).

Málþinginu um landsaðgang Íslendinga lauk í gær, við Klara erum nú margs vísari!

S.

15. október 2007

Báðir bókasafnsfræðingar VÍ sitja nú málþingið:

Fortíð metin – framtíð rædd.
Málþing um landsaðgang Íslendinga að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum
Staður og tími: Grand Hotel, Reykjavík, 15. október 2007 kl. 8:30-16:30
 
Kl. 08:30–09:00
Skráning
Kl. 09:00-09:15
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra: Ávarp
Kl. 09:15-09:30
Sigrún K. Hannesdóttir, formaður Upplýsingar: Inngangur og saga

Aðgengi – notkun – reynsla: Fundarstjóri: Sveinn Ólafsson
Kl. 09:30-10:00

Sander Verboom
, Elsevier, Account Development Manager: 
ScienceDirect in Iceland - A Ten-Year Subscription to Growth

Kl. 10:00-10:30
Kaffihlé

Kl. 10:30-10:50
Pálína Héðinsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur: 
Bókasöfn í breyttu umhverfi
Kl. 10:50-11:30
Matthías Kjeld, læknir og efnameinafræðingur, og
Helga Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og háskólakennari/prófessor:
Reynsla notenda
Kl. 11:30-11:50  Dagrún Ellen Árnadóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur:    
Upplýsingaöflun nemenda í framhaldsnámi á háskólastigi

 Kl. 11:50-13:00 Hádegisverðarhlé

Aðgengi – eldra efni – varðveisla: Fundarstjóri: Þóra Gylfadóttir
Kl. 13:00-13:45
Arne Jakobsson, Library Director and Project manager for NORA:
NORA and the development of institutional repositories in Norway: concepts on Open Access.
Kl. 13:45-14:10
Halla Björg Baldursdóttir, verkefnisstjóri í rafrænni stjórnsýslu           
í  forsætisráðuneyti: Varðveisla rafrænna gagna
Kl. 14:10-15:00
Dirk Willinghöfer, Senior Project Manager, Ex Libris:
Leading your library  into the future – maintain and access your digital collections with DigiTool and Primo

Kl. 15:00-15:30 Kaffihlé

Aðgengi – framtíðarsýn:  Fundarstjóri: Sigrún Klara Hannesdóttir
Kl. 15:30-15:50 
Sólveig Þorsteinsdóttir, sviðsstjóri bókasafns- og upplýsingasviðs LSH:
Opið aðgengi að rafrænum gögnum - möguleg framtíðarsýn
Kl. 15:50-16:10
Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti:
Mótun nýrrar stefnu um upplýsingasamfélagið 

Kl. 16:10-16:30 Ráðstefnuslit

12. október 2007

Nú fer helgi í hönd, vonandi hvílast allir vel til að geta tekið á móti næstu viku án þess að kikna af náms-og vinnuálagi!    

Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hlýtur Friðarverðlaun Nóbels í ár. Gore fær verðlaunin fyrir að hvetja þjóðir heims til þess að draga úr loftmengun sem veldur loftslagsbreytingum. Verðlaunum er skipt til helminga milli Gore og loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna.  (RUV 12. 10. 2007).   

Bókasafnið á bók hans og myndina , An inconvenient truth.    

11. október 2007

Doris Lessing hlaut Bókmenntaverðlaun Nóbels þetta árið. Bókasafnið hér á nokkrar bóka hennar og voru þær settar á áberandi stað á safninu strax og fréttirnar bárust.  Allir velkomnir !   

10. október 2007

Nú er kynningum á bókasafninu lokið að sinni, 12 bekkir komu í kynningu á safnið.

Það var sérlega gaman að spjalla við þessa ungu, hressu og kurteisu krakka sem vonandi njóta veru sinnar hér hjá okkur og nýta vel það sem skólinn býður.

Mig langar að þakka öllum nýjum nemendum komuna og hversu prúðir og áhugasamir  þeir voru. Vonandi sé ég þá sem daglega notendur bókasafnsins í framtíðinni. 

S.

8. október 2007

Kynningarnar ganga mjög vel og vonandi eru 3. bekkingar einhvers fróðari um bókasafnið / skólann. Nú eru 3 bekkir ókomnir.  

Færslurnar í Gegni eru orðnar 9751. Verkinu miðar mjög vel hjá Klöru sem sér um alla  skráningu hér, bæði nýskráningar og úr grunninum !    

4. október 2007

Nú eru kynningarnar á bókasafninu og starfsemi þess hafnar. Allir nemendur í 3. bekk koma í kynningu og fá að vita um tilhögun og reglur á safninu og er þeim kynnt og kennt ýmislegt varðandi starfið þar og hvaða þjónustu safnið veitir.

Það er ómetanleg ánægja að spjalla við þetta unga fólk sem hefur ákveðið að eyða bestu og skemmtilegustu árum sínum með  okkur í VÍ.

Verið hjartanlega velkomin!

1. október 2007

Fræðsluferðin var mjög góð og margt nýtt og áhugavert að sjá í Skotlandi.  

27. september 2007

Bókasafnsfræðingar framhaldsskólanna eru margir að fara til Skotlands- að sjá og heyra hvernig málin standa þar!

24. september 2007

Verkefnavinna nemenda er mikil þessa dagana og æði fjölbreytt verkefni!

20. september 2007

Nú er tvennt í boði fyrir suma í skólanum, annars vegar fundur með foreldrum 3. bekkinga  og hins vegar knattspyrnuleikur GVÍ sem verður leikinn í kvöld!

Vandi að velja!

17. september 2007

Kynningarnar á bókasafninu fyrir nýnema hefjast 3. október. Mjög margir hafa komið áður með grunnskólanum sínum og eru löngu farnir að nota safnið. Það er frábært.

14. september 2007

Gegnisfærslurnar eru nú orðnar 9661. Það er góður gangur í verkinu!

13. september 2007

Nemendur  hafa stofnað Góðgerðaráð VÍ til hjálpar börnum sem líða skort og er það vel.

9. september 2007

Bókmenntahátíð í Reykjavík!

Við hvetjum alla til að kynna sér hvað býðst á bókmenntahátíðinni sem nú stendur yfir í borginni.

Bókasafns skólans hefur keypt margar bækur sem nú eru í brennidepli og eru þær áberandi þessa dagana!    

7. september 2007

9589 færslur komnar í Gegni.

Mikið um að vera í skólanum, hljómsveit spilaði í frímínútum, hádegisgrín og margt fleira sem nemendur standa fyrir.

Mikil gróska hjá nýju stjórninni hjá NFVÍ.

5. september 2007

Starfsmannafundur bókasafnsins er í dag, nauðsynlegt að allir mæti...

Gegnisfærslur orðnar 9573.

3. september 2007

Nú er starfsfólk bókasafnsins á námskeið í Gegni, leitaraðferðum og fleiru. Í dag fer Helga á námskeið.

30. ágúst 2007

Nú hafa 9568 bókfræðilegar færslur verið færðar af bókasafninu í VÍ yfir í Gegni sem er landskerfi bókasafna á Íslandi.

24. ágúst 2007

Nú er allt að komast í ró, allir rata nú um skólann og málin skýrast.

23. ágúst 2007

Skólinn fer vel af stað!

Mikil tilhlökkun í loftinu og gleðiin ríkjandi eins og vera á í skólabyrjun.

20. ágúst 2007

Í skólanum, í skólanum er skemmtilegt að vera...

Skólasetning  er á morgun kl. 10:00.

*****************************

10. ágúst 2007

Velkomin til starfa á ný eftir gott sumarleyfi.

Vonandi verður þetta skólaár happadrjúgt öllum í VÍ.

_________________________________________

22. júní 2007

Nú fer sumarfrí í hönd. Gleðilegt sumar, sjáumst í ágústbyrjun.

18. júní 2007

Hingað á safnið hafa komið ótal góðir gestir sem hafa heimsótt skólann í ýmsum erindagjörðum og er gaman að fá.

15. júní 2007

Unnið er skýrslugerð, röðun, hreingerningum, bókaviðgerðum og fleiru sem harla lítill tími er til að sinna í amstri dagsins.

Heilmikið er um vanskil þrátt fyrir ítrekaðar rukkanir!

Það er hreint óskiljanlegt!!!

13. júní 2007

Frágangur á safninu er í algleymingi!

11. júní 2007

Nú er OPIÐ HÚS í dag frá 15-18 og vonandi skoða margir skólann og aðstöðuna.

6. júní 2007

Nú eru Gegnisfærslurnar okkar orðnar 9404.  Verkinu miðar vel hjá Klöru.

1. júní 2007

Nú er endurtekningarprófin eftir helgina, vonandi gengur nemendum sem þau þreyta vel.

29. maí 2007

Við óskum nýstúdentum til hamingju með prófið og þökkum góð kynni.

Skólaslitin fóru vel fram, ræða skólastjóra um Jónas Hallgrímsson frábær og mjög margir verðlaunaðir fyrir unnin námsafrek.

24. maí 2007

Hafið þið litið á hvert.is vefinn sem nemendur bjuggu til undir handleiðslu kennara síns, Tómasar Sölvasonar?

23. maí 2007

Verslunarprófsnemar útskrifuðust í morgun, fínir og fallegir. 

Sölvi skólastjóri gaf þeim gott veganesti í mjög skemmtilegri ræðu um Njálu og afhenti próftökum skírteini.

21. maí 2007

Nú er prófum lokið þetta vorið - og bíða menn nú eftir að sjá árangurinn. Við vonum það besta.

Gegnisfærslur eru nú 9296 alls.

14. maí 2007

Sól skein í heiði og vonandi líka í sinnni hjá þeim sem sátu við lestur á safninu á sunnudaginn!

10. maí 2007

Nýtt efni á safninu er komið á vefinn okkkar.

Gegnisfærslur eru nú á þessari stundu 9255.

4. maí 2007.

Það gengur vel að flytja safnkostinn í Gegni og eru færslurnar orðnar 9213.

Verkið er unnið samhliða öðrum safnstörfum  -sem eru nú fremur umfangsmikil !

2. maí 2007.

Hér var 1. maí haldinn hátíðlegur með próflestri. Nemendur kunnu vel að meta að safnið var opið frá kl. 08- 22 í gær og var þröngt setinn bekkurinn- en allt gekk vel í sátt og samlyndi.

30. apríl 2007.

 Níú eru 9197 Gegnisfærslur komnar í bókfræðigrunninn.

27. apríl 2007.

Gangi ykkur vel að lesa um helgina!

25. apríl 2007.

Bókasafnið er fleytifullt af fróðleiksfúsum en prófkvíðnum ungmennum.

Gegnisfærslur eru nú orðnar 9177.

23. apríl 2007.

Það var gaman  að sjá alla lesglöðu krakkana mína á safninu um helgina, því það var vel notað til kl. 22:00 á sunnudaginn!

20. apríl 2007.

Alvara lífsins blasir við og prófesturinn einnig!

Safnið var fleytifullt -og lesstofan líka, nemendur sátu með bros á vör við próflestur -og sólin skein á sumardaginn fyrsta, 19. apríl.

16. apríl 2007

Gegnisfærslurnar eru nú 9143.

************************

Próflestur er hafinn og safnið eykur enn þjónustu sína við nemendur.

Hér var hvert sæti skipað í gær, sunnudag, til klukkan 22:00 og kunnu nemendur vel að meta þjónustuna.

13. apríl 2007

Allt á fullu strax, nóg við að vera fyrir nemendur og starfsfólk!

11. apríl 2007

Nú hefst skólastarfið að loknu páskaleyfi.

Gegnisfærslur eru nú 9108.

*********************************

Páskaleyfi hefst nú eftir helgina og er til 11. apríl.

Færslurnar okkar eru 9076 núna þessa stundina.

26. mars 2007

Gegnisfærslurnar eru nú 9021. Þetta þokast alltaf í rétta átt.

Þátttöku okkar í Gettu betur er nú lokið með sæmd.

Strákarnir okkar stóðu sig með mikilli prýði og voru fjölskyldu, skóla og sjálfum sér til mikils sóma. Kærar þakkir, drengir!

Nú tekur alvara lífsins - og próflesturinn - við.

14. mars 2007

Nú er fjör!  Allir að vinna að verkefnum, stórum og smáum!

13. mars 2007

Nú eru færslurnar í Gegni 8922 og safnið færist alltaf nær því að nota Gegni.

9. mars 2007

8895 færslur komnar í Gegni,- verkinu miðar mjög vel.

6. mars 2007

Hér er alltaf sama fjörið-sem betur fer!

Við fáum ótrúlega margar og góðar heimsóknir  -og  starfsfólkið hér skoðaði bókamarkaðinn í Perlunni.

Gegnisfærslur núna eru 8877.

4. mars 2007

VÍ vann MA.

Til hamingju, strákar- þetta var gott hjá ykkur!

2. mars 2007

Nú er runninn upp 2. mars 2007, hinn mikli Gettu betur dagur.

Við óskum strákunum okkar velfarnaðar í leik og starfi.

Áfram!

27. febrúar 2007

Gegnisfærslurnar eru nú 8847, verkinu miðar vel. 

20. febrúar 2007

Færslurnar í Gegni eru nú 8814.

13. febrúar 2007

Mjög margir 10. bekkingar grunnskólanna koma í heimsókn þessa dagana. Þeir eru hjartanlega velkomnir á bókasafnið!

Nú er færslur safnsins í Gegni 8771.

7. febrúar 2007 

Alvara námsins er tekin við. Nú er rétt að nýta tímann vel!

**********************************************

Nemendamótssýningin er stórfengleg og úrvalslið sem þar á í hlut! 

Til hamingju, krakkar í VÍ, Selma og allir sem að verkinu stóðu- þetta er flott!

************************************************************************

Gegnisfærslur eru nú 8752.

31. janúar 2007

Góða skemmtun!

Nú eru Gegnisfærslurnar orðnar 8711.

30. janúar 2007

Það fer ekki framhjá neinum að Nemendamótið nálgast óðfluga!

8692 gögn skráð í Gegni.

26. janúar 2007 

Gegnistalan okkar núna er 8689 og frábært hversu vel verkið gengur.

Nemó nálgast!

24. janúar 2007 

Það er ekki laust við að Nemendamótsfiðringurinn sé farinn að gera vart við sig!

Gegnistalan er á þessari stundu 8682 bækur.

19. janúar 2007

Við höfum það fyrir satt að strákarnir okkar hafi dregist á móti MA í næstu umferð Gettu betur.

Nú er að duga eða ...

Gangi ykkur vel að lesa og læra, drengir! Áfram!

18. janúar 2007

Spurningakeppnin Gettu betur er byrjuð. Það er alltaf viss spenna í lofti þegar ungt fólk reynir með sér! 

Okkar lið vann öruggan sigur í gær, til hamingju, strákar!

17. janúar 2007

8649 eru færslur okkar í Gegni á þessu augnabliki.

Nú standa yfir rukkanir hjá vanskilafólki. Ótrúlega eftirgangsmuni virðist þurfa við suma lánþega meðan aðrir skila alltaf á réttum tíma!

16. janúar 2007.

8630 færslur þetta andartakið!

12. janúar 2007 .

Skólastarfið fer vel af stað. Safnstarfið einnig, allt komið á fulla ferð, m.a. lestur á enskum bókmenntum, ritgerðasmíð o. fl.

Alls eru nú 8598 bókfræðifærslur komnar í Gegni.

Lánþegar bókasafnsins eru vinsamlega beðnir að skila bókum strax að loknum lestri þar sem langir biðlistar hafa myndast!

9. janúar 2007

Þá er nú ljóst að jólin eru liðin hjá og dagleg störf taka við. Skólastarfið komið í fullan gang og bókasafnið mikið notað að venju. Nú er nauðsynlegt að lesa og læra svo árangurinn verði góður. Aðstaðan í skólanum er prýðileg og um að gera að nota hana til hins ítrasta.

Skólakynningar fyrir 10. bekkinga grunnskólanna eru fjölmargar framundan og alltaf gaman að fá hresst ungt fólk í heimsókn.

Nú eru 8558 færslur úr VÍ safninu komnar í Gegni.  

Skóli hófst í morgun, 4. janúar 2007, að loknu jólaleyfi.

2. janúar 2007

Gleðilegt ár!

20. desember 2006 

Prófsýningin er í dag, einkunnir afhentar og jólaleyfið hefst!

Gleðileg jól!

18. desember 2006

Einkunnir verða afhentar miðvikudaginn 20. desember 2006.

15. desember 2006

Prófum lýkur í dag. Vonandi hafa þau gengið að óskum hjá öllum.

8283 færslur í Gegni.

13. desember 2006

Nemendur eru farnir að sjá próflokin nálgast!

Skráðar færslur skólans eru nú 8142 og fleiri bætast við!

11. desember 2006

Færslurnar í Gegni eru nú 8067.

6. desember 2006

Nú eru bókfræðifærslurnar okkar í Gegni orðnar 8034 og ljóst er að Klara stendur sig með miklum sóma við verkið en hún sér alfarið um þetta.

Það var mikið fjaðrafok hér og á göngunum í morgun áður en próf hófust.

Nemendur voru að tileinka sér fróðleik á síðustu mínútunum fyrir próf!

4. desember 2006

Takið eftir örlítið breyttum afgreiðslutíma - sem á að vera ykkur í hag!

Nú flóði út úr safninu um helgina; nemendur kunna sannarlega að meta lesaðstöðuna í skólanum.

Það var mjög ánægjulegt að sjá til nemenda í gær-allir að lesa, mjög einbeittir og ákveðnir í að standa sig vel!

1. desember 2006

Nú er ballið byrjað- jólapróf hófust í dag og loftið er rafmagnað.

Bókasafnið er þéttsetið og lesstofan fleytifull.

Við óskum próftökum góðs gengis.

30. nóvember 2006

7938 færslur komnar í Gegni.

Litlu jólin voru haldin í dag og mikil gleði í gangi!

28. nóvember 2006

Um helgina var bókasafnið galopið og margir nemendur sátu þar að lestri; svo margir að erfitt var að finna pláss!

7840 bókfræðilegar færslur okkar í VÍ er nú komnar í Gegni.

Strákarnir okkar unnu MA í Morfís keppninni, við óskum þeim til hamingju.

24. nóvember 2006

Morfís keppnin er framundan. Við óskum okkar mönnum góðs gengis.

Jólaprófin nálgast og þar með er safnið opið lengur og oftar en venjulega.

9. nóvember 2006

Nemendur í 3. bekk hjá Eygló íslenskukennara komu í hennar fylgd til að vinna verkefni um þjóðsögur. Var það sérlega vel heppnuð hópvinna enda vandlega undirbúin. 

Hér var mikið umleikis í dag, 2 skólakynningar fyrir 10. bekkinga  tveggja grunnskóla. Það voru glaðir og ánægðir gestir sem gaman var að sjá.

9. nóvember 2006

Nú eru færslurnar okkar í landskerfið Gegni orðnar 7244!

6. nóvember 2006

Fundur bókasafnsfræðinga í framhaldsskólum er í dag.

2. nóvember 2006

Nú er um að gera að skoða alltaf hvað bætist við af nýju efni!

1. nóvember 2006

Við söfnum í sarpinn, margs konar gögn berast ótt og títt...

31. október 2006

Nokkrar nýjar bækur mættar á staðinn!  Spennandi tímar!

Flokkun -og frágangur gengur yfirleitt hratt fyrir sig hér þegar bækurnar berast.

Nú þegar er búið að flytja 7140 bókafærslur af safninu okkar í bókasafnsgrunninn Gegni.
 
Þá eru tæplega 5500 færslur eftir og mun það taka þó nokkurn tíma að ljúka verkinu. 
 
 
Kveðja,
 
Steinunn, Klara og Helga.
  

19. október 2006

Vetrarfrí í VÍ!

Bókasafnið er lokað í vetrarfríinu en verður opnað aftur þriðjudaginn 24. október 2006.

17. október 2006   

Nú koma hressir og kátir 10. bekkingar grunnskólanna í heimsókn á safnið. Það er skemmtileg viðbót við alla okkar góðu nemendur.

13. október 2006

Ritgerðir, verkefni af ýmsum toga og heimsóknir grunnskólanema eru í gangi núna fyrir utan alla Gegnisvinnuna - á safninu.

Auk þess fer jólabókaflóðið að skella á þjóðinni!

9. október 2006

Enn heldur vinnan við Gegni áfram- og miðar verkinu vel.

2. október 2006

Starfsfólk bókasafnsins sækir nú námskeið vegna nýja kerfisins, Gegnis.

Safnkynningar eru í gangi núna.

28. september 2006

VÍ bókasafn:

Nú hafa tæplega 7000  færslur (bækur o. fl. ) verið skráðar í Gegni, sameiginlegan gagnagrunn landsins.

Nú fara nýjar bækur að berast  -og nokkrar eru þegar komnar!

8. september 2006

Mjög margir foreldrar og forráðamenn nýnema sóttu skólann heim í gærkvöldi, hlýddu á framsöguerindi um skólastarfið og skoðuðu aðstöðuna sem boðið er upp á.

5. september 2006

Skólahald fer vel af stað og nemendurnir rata á safnið!

Mjög margir nemendur virðast hafa tileinkað sér þá reglu að ljúka skóladeginum með heimalestri á bókasafninu.

Það er bráðsnjallt!

01. september 2006

Kynningarnar fyrir nýnema hefjast fyrstu dagana í október. 

29. ágúst 2006

Skólastarfið er hafið af fullum krafti og nóg við að vera.

Skólinn er mjög þéttsetinn þetta árið og ánægjulegt að sjá svona margt ungt fólk saman komið.

Nú er unnið að frágangi safnsins- og undirbúningi safngagna vegna yfirfærslu í Gegni.  

23. ágúst 2006

Nú fer allt að komast í fastar skorður og kennsla að hefjast af fullum krafti!

21. ágúst 2006.  

Skólinn var settur í morgun og við bjóðum nýnema og eldri nemendur velkomna í skólann  - og sérlega á safnið.

18. ágúst 2006

Nú er aðeins hægt að fá námsbækur lánaðar  í 1-2 stundir innan safnsins!

17. ágúst 2006

Við bjóðum nýtt starfsfólk hjartanlega velkomið til starfa í VÍ.

14. ágúst 2006

Starfsfólk bókasafnsins verður á námskeiði í notkun bókasafnskerfisins Gegnis þann 28. ágúst. 

Sjá: Opið safn. 

4. ágúst 2006

Verið velkomin!

Starfið hefst á ný!

Nú er verið að búa bókasafnið undir kerfisskipti: úr bókasafns-og útlánakefinu Metrabók í Gegni sem verður tekinn í notkun hér í vetur.

*****************************************************************

20. júní 2006

Nú er verið að ganga frá á safninu fyrir sumarið.

15. júní 2006

Á döfinni er yfirfærsla á safngögnum í  Gegni og undirbúningur hafinn.

12. júní 2006

Opið hús mánudaginn 12. júní og allir hjartanlega velkomnir!

6. júní 2006

Nú þarf að strikamerkja alla safnkostinn á ný þar sem okkar strikamerki eru ekki tæk í Gegni-sem verður okkar kerfi.

Innritun stendur yfir, -opið hús 12. júní - og  frágangur á safninu.

*********

27. maí 2006

Skólaslit í dag.

*************

24. maí 2006

Útskrift í dag.

Nú útskrifast 4. bekkur með verslunarpróf í dag, en flestir halda áfram námi og taka stúdentspróf.

*********

19. maí 2006

Verslunarfagnáminu verður slitið á morgun , laugardag, kl.13:00.

*********

16. maí 2006

Sumir  nemendur hafa nú þegar lokið vorprófum - og nú fjölgar þeim ört sem fljúga frá okkur.

Við horfum á eftir þeim með söknuði -og gleði -í bland.

**********

8. maí 2006

Próflestur er enn í gangi og vonandi verður uppskeran góð!

Lánþegar safnsins eru beðnir að skila gögnum á safnið hið bráðasta.

*********

3. maí 2006

Skólanum barst í dag höfðingleg gjöf frá starfsfólki Pennans og Kristni Vilbergssyni eiganda hans.

Þetta er skemmtilegt myndlistarverk eftir Viðar Þór Guðmundsson - og heitir Andlit.

Verkið var sett á vegg við stigann á bókasafninu og vekur bæði athygli og aðdáun þeirra sem séð hafa.

Félagarnir eru báðir stúdentar frá VÍ.

Við sendum þeim kveðju og þakkir.

***************************

1. maí 2006

Bókasafnið er opið og margir iðnir við lestur þennan daginn.

***********

24. apríl 2006

Bókasafnið var fleytifullt alla helgina af iðnum nemum við lestur!

***********

21. apríl 2006

Gleðilegt sumar og takk fyrir ánægjulegan vetur!

Hér ríkir einstakt andrúmsloft;  gleði, kvíði, og tilhlökkun!

PRÓFIN ERU AÐ BYRJA!

*******************

18. apríl 2006

Hér hefur verið lesið og lært af miklu kappi. Nemendur hafa nýtt sér aðstöðu á bókasafninu og lesstofu í páskafríinu.

Safnið hefur bókstaflega verið galopið nema föstudaginn langa og páskadag.

7. apríl 2006

Við þökkum keppnisstrákunum okkar og þjálfurum í Gettu betur fyrir ánægjuleg samskipti og samvinnu.

Þeir stóðu sig mjög vel -og hlutu annað sætið. 

Við sendum MA hamingjuóskir með sigurinn.

**********************************

6. apríl 2006

Gettu betur - úrslitakeppnin - er í kvöld.

Strákunum okkar fylgja bestu óskir um frábært gengi héðan af safninu.

Þetta eru mestu heiðursmenn og ákaflega ánægjulegt að kynnast þeim.

5. apríl 2006

Nú  er fjör hjá nemendum,- verið að leggja síðustu hönd á verkefnin og ritgerðirnar. Síðan hefst próflesturinn.

Bókasafnið er mjög mikið og oft opið í páskaleyfinu/vor. Sjá: Opið safn.

Stóra stundin í Gettu betur keppninni nálgast óðfluga. Strákunum okkar fylgja óskir um velgengni.

**************************************************************

2. apríl 2006

Nú nálgast úrslitin í Gettu getur óðfluga. Við óskum strákunum okkar góðs gengis.

Nóg að gera á safninu- og margt í gangi.

***********

27. mars 2006

Úrslitin í Gettu betur ráðast 6. apríl nk. 

**********

24. mars 2006

Gettu betur:

Til hamingju, drengir - þetta var gott hjá ykkur!

Glæsilegt!

********

23. mars 2006

Nú er Gettu betur í kvöld.  Við vonum auðvitað að strákarnir okkar vinni. Óskum þeim alls hins besta og mesta!

21. mars 2006

Nú eru flestir nemendur skólans önnum kafnir við verkefnavinnu, framboð í hin ýmsu embætti NFVÍ o.fl.

Strákunum okkar í Gettu betur liðinu líður vel og eru duglegir að æfa sig.

17. mars 2006

Aldrei meira umleikis á safninu, -margir góðir íslenskir og erlendir gestir, skólakynningar og verkefnavinna nemenda.

Gettu betur drengirnir una sér vel hér við undirbúning!

Líf og fjör!  

 *******

14. mars 2006

Verkefnavinna er í algleymingi núna - mikið fjör!

***********

10. mars 2006

Til hamingju með sigurinn, drengir!

Við óskum liðinu okkar, þjálfurum og skólanum til lukku með þennan sigur.

**********

9. mars 2006

Gettu betur er í dag!

Gangi ykkur vel.

6. mars 2006

Nú er 9. mars að bresta á!

Gettu betur liðið okkar er iðið við æfingar þessa dagana og vonandi gengur allt að óskum þegar keppt verður.

Strákar, við stöndum öll með ykkur og óskum ykkur góðs gengis.

++++++++

1. mars 2006

Öskudagur.

Þrjár ungar stúlkur komu og sungu fyrir safngesti og þáðu brjóstsykurmola að launum.

Ekki var annað að sjá en viðstaddir kynnu vel að meta sönginn - og örstutta truflun! 

23. febrúar 2006

Hér er alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast.

Gettu betur liðið var hér að taka myndir í gær með bækur í forgrunni, hvað annað!

Þess utan er hér mikill erill alla daga, nú eru hraðlestarbækur í ensku mikið notaðar því allir nemendur í 3., 4.og 5. bekk eru að lesa!

17. febrúar 2006

Skólakynningar halda áfram og gaman að fá 10. bekkinga grunnskólanna í heimsókn á safnið.

10. febrúar 2006

Kæru nemendur!  Við þökkum fyrir okkur!

Starfsfólk bókasafnsins gladdist mjög í gær þegar tilkynnt var um úrslit skoðanakönnunar nemenda!

Við leggjum okkur fram við að standa okkur vel í starfi og veita góða þjónustu.

Þess vegna þykir okkur vænt um þegar notendur safnsins  kunna að meta það.

Hafið heila þökk.

Steinunn, Helga, Adda og hinar stelpurnar.

7. febrúar 2006

Til hamingju með sýninguna, krakkar. Glæsilegt!

Nú tekur alvaran við og námið hefur forgang! 

************************************

5. febrúar 2006

Forsýningin gekk mjög vel og gestir voru himinlifandi!

Frábært!

*******

1. febrúar 2006

Nemendamót! Góða skemmtun.

*Lokað safn og tölvustofur.

*********************

Forvarnadagurinn gekk mjög vel. Fyrirlestrar voru margir og var þeim vel tekið.

31. janúar 2006

Forvarnadagurinn er á morgun. Dagskráin er fjölbreytt og fólk hvatt til að kynna sér hana.

Nú nálgast  nemendamótið og spennan magnast!

Gangi ykkur vel og góða skemmtun!

24. janúar 2006

Skólanum gekk vel og er hann kominn áfram í Gettu betur spurningakeppninni.

Til hamingju!

22. janúar 2006

Gettu betur keppnin er á morgun. Standið ykkur, strákar!

20. janúar 2006

Nú færist mikið fjör í leikinn, ótal hópverkefni, ritgerðir, yndislestur og Gettu betur!

Er hægt að hafa það betra?

16. janúar 2006

Gettu betur liðið okkar vann Menntaskólann Hraðbraut á föstudaginn í RUV.

Við óskum þeim til hamingju og hvetjum þá til frekari dáða.

11. janúar 2006

Skólinn fer vel af stað að loknu jólaleyfi, allir glaðir í sinni.

4. janúar 2006

Skólinn er byrjaður, safnið opið og nemendur kátir!

2. janúar 2006

Bókasafnið verður opnað þann 4. janúar 2006.

20. desember 2005

Árangur prófanna kemur í ljós í dag! Vonandi verður hann drjúgur og uppskeran góð.

Nemendur sækja einkunnir sínar- og skila gögnum á safnið séu þeir  með gögn að láni þaðan.

Gleðilegt ár!

14. desember 2005

Nú fer að styttast í prófahrinunni að sinni - og vonandi verður uppskeran góð!

Einkunnir verða afhentar 20. desember.

12. desember 2005

Kalt úti, funheitt inni - enda próflestur !

8. desember 2005

Það er gott hve nemendur virðast hrifnir af dagsbirtulömpunum sem eru í lesstofu bókasafnsins.

Margir hafa látið í ljós ánægju með þetta framtak Sölva skólastjóra.

5.-6. desember 2005

Fleytifullt safn, lesstofa og nokkrar kennslustofur af samviskusömu próflestrarfólki alla helgina.

Með ósk um gott gengi í prófunum.

S.

2. desember 2005

Hér á bókasafninu var aldeilis líf og fjör þegar hið árlega jólabókaboð var haldið með sýningu á nýju efni safnsins frá hausti.

Góðar veitingar, gott fólk í heimsókn, góður upplestur Ólafs Gunnarssonar rithöfundar sem er gamall nemandi  VÍ og ákaflega notalegt andrúmsloft.

Þökkum þeim sem komu núna og bjóðum alla velkomna á afgreiðslutíma safnsins.

S.

1. desember 2005

Jæja, nú hefst lesturinn fyrir alvöru!  

Prófin eru að byrja hjá flestum nemendum  hér- en P-bekkirnir okkar ( 3 ára nám ) eru á sérstöku róli.

Með ósk um gott gengi!

28. nóvember 2005

Það var þétt setinn bekkurinn á safninu alla helgina - við próflestur og frágang verkefna.

Jólaprófalesturinn er hafinn - þetta árið!

Gangi ykkur vel.

25. nóvember 2005

Nú fer próflestur í hönd og um að gera að nýta tímann vel!

21. nóvember 2005

Enn berst nýtt efni á bókasafnið og er það vel. Það nýjasta er haft til sýnis og skoðunar við afgreiðslu safnsins.

18. nóvember 2005

Í dag komu hingað í heimsókn á safnið góðir grannar, starfsfólk Kringluútibús Borgarbókasafns. Við áttum notalega stund!

16. nóvember 2005

Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur hér í skólanum í dag;  hér var íslenski fáninn dreginn að húni, frú Vigdís Finnbogadóttir talaði til nemenda og Bubbi Morthens söng nokkur lög við mjög góðar undirtektir. Skólastjórinn stjórnaði athöfninni.

Að henni lokinni voru Útkallsbækur Óttars Sveinssonar gefnar þeim sem vildu.

Óttar og Hálfdan Örlygsson gáfu skólanum  u.þ.b. 1400 bækur og er þeim þakkað kærlega fyrir.

Nemendur og starfsfólk VÍ hugsa hlýlega til þeirra.

15. nóvember 2005

Nú hafa verið settar tengingar á heimasíðu safnsins til hægðarauka fyrir notendur.

Þar eru nú veforðabækur Eddu, Gegnir, hvar.is  og fleira gagnlegt. Notið þetta!

14. nóvember 2005

Jólabókaútgáfan er í algleymi og gaman að fylgjast með nýjum bókum. Sumar þeirra rata á safnið hér!

9. nóvember 2005

Við bendum fólki á mjög gott námskeið um Sölku Völku sem er í boði hjá Mími-endurmenntun.

Lánþegar safnsins eru beðnir að skila bókum á réttum tíma  -sé það gert, nýtast gögnin betur !

*****************

2. nóvember 2005

Nú berast nýjar bækur nánast daglega. Spennandi tímar!

******************

30. október 2005

Verkefni nemenda á safni eru nú í fullum gangi og fleiri væntanleg.

Þau eru af misjöfnum toga og má m.a. nefna goðafræði, stærðfræði, yndislestur bókmennta, Njálu, stjórnun, hagfræði og alþjóðafræði.

*****************************************************************

24. október 2005

Vetrarfrí í VÍ. Njótið dagsins!

**********************

18. október 2005

Hátíðin tókst mjög vel og gestirnir sem komu voru á öllum aldri og virtust allir skemmta sér vel.

 ***********************************************

15. október 2005

OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 16. OKTÓBER  FRÁ 13:00-17:00

VERIÐ VELKOMIN!

Það var mikið um dýrðir hér í gær og hátíð í bæ vegna 100 ára afmælis skólans.

Sjá dagskrá á aðalsíðu VÍ.

********************

Nú berst nýtt efni nánast daglega.

Sjón er sögu ríkari!

***************************

3. október 2005

Margar nýjar bækur bárust safninu í september.

Sjá Nýtt efni á safni.

30. september 2005

Nú eru í gangi mörg verkefni sem nemendur vinna á bókasafninu, t.d. þjóðhagfræði og íslenska.

Mjög margir bekkir er byrjaðir á yndislestri.

**********************************

23. september 2005

Evrópski tungumáladagurinn var haldinn hátíðlegur í dag.

Dagskrá var hér í skólanum kl. 13-15.

Margir góðir gestir sóttu skólann heim og erindum sem flutt voru var vel tekið.

***************************************************

Tungumálanámskeið á geisladiskum sem bókasafnið á eru til sýnis af þessu tilefni.

Njótum dagsins!

Njótum helgarinnar!

****************

20. september 2005

Nú hafa nær allir 3. bekkir komið í stutta kynningu á bókasafnið.

Þeir sem eftir eru koma í vikunni eða þegar umsjónarkennara þeirra hentar.

Sjáumst!

*******

15. september 2005

Bókmenntahátíðin stendur yfir í Reykjavík. 

Á bókasafninu hér eru nú til sýnis og skoðunar verk eftir rithöfunda hátíðarinnar - flesta - og við viljum gjarnan vekja athygli fólks á íslenskum og erlendum bókmenntum.

***********************************

Nú fara hópverkefnin að fara í gang, m.a. þjóðhagfræði í 4. bekk.

*****************************************************

Kynningarnar ganga mjög vel, nemendur einstaklega ánægjulegir!

*****************************************************

13. september 2005

Nú standa yfir kynningar hér á safninu fyrir nýnemana okkar.

Hver bekkur kemur með umsjónarkennara sínum og er hér í eina kennslustund. 

3. bekkirnir þetta skólaár eru þrettán.

10. september 2005

Málverkið er komið á bókasafnið og mikil prýði að! 

Komið og virðið það fyrir ykkur.

Afhendingin tókst vel og skemmtilegt að sjá hve viðstaddir glöddust þegar Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, færði Sölva Sveinssyni skólastjóra verkið að gjöf. Listamaðurinn Georg Guðni og Sigrún kona hans voru einnig viðstödd ásamt Gunnari Helga formanni skólanefndar, Einari Sveinssyni og öðrum gestum frá Íslandsbanka.

Kærar þakkir, Íslandsbanki -  og kærar þakkir, Georg Guðni, fyrir að velja verkinu stað á bókasafninu.

Sjá nánari fréttir og myndir á aðalheimasíðu skólans.

8. september 2005

Nú er verið að búa safnið undir móttöku á gjöf Íslandsbanka í tilefni 100 ára afmælis Verzlunarskóla Íslands.

Gjöfin er málverk eftir Georg Guðna Hauksson og því hefur verið valinn staður á endavegg við afgreiðslu safnsins á 4. hæð.

Málverkið verður afhent föstudaginn 9. september nk. við hátíðlega athöfn.

Mikil eftirvænting ríkir hér. Nemendunum og okkur sem störfum hér finnst tilhugsunin dásamlegl!

********************************************************

8. september 2005

Nýtt efni í september er nú óðum að birtast.

5. september 2005

Það er gaman að sjá hvað nýnemar nota safnið mikið. Veri þeir og aðrir hjartanlega velkomnir.

2. september 2005

Skoðið hvaða nýja efni hefur borist safninu í ágúst.

Leit  í Metrabók ( leitarkerfi safnsins ) utan skóla er því miður ónothæf um þessar mundir. Málið er í athugun hjá tölvumönnum.

30. ágúst 2005

Bókasafninu berast margar bækur þessa dagana. Við reynum að koma þeim sem fyrst í gagnið.

26. ágúst 2005

Það er ánægjulegt að sjá  bæði nýja nemendur og þá  eldri. Við bjóðum þá velkomna í skólann og á safnið.

22. ágúst 2005

Skólinn verður settur í dag.

17. ágúst 2005

Nú fer að styttast í að skólinn byrji og um að gera búa sig vel undir veturinn!

12. ágúst

Vinsamlega lítið á OPIÐ SAFN.

9. ágúst 2005

Safnið er opið.

5. ágúst 2005

Bókasafnið verður opnað 8. ágúst 2005. 

Opið frá 08-16 þar til hefðbundinn opnunartími hefst síðar í ágúst. Sjá Opið safn.

24. júní 2005

Sumarleyfi hefst næsta mánudag.

21. júní 2005

Starfsfólk safns kemur aftur til starfa þann 8. ágúst 2005.

20. júní 2005

Nú er unnið að frágangi safnsins, sumarleyfi hefst von bráðar.

15. júní 2005

Metaðsókn!

14. júní 2005

Síðasti innritunardagur!

13. júní 2005

Opið hús- allir velkomnir!

10. júní 2005

Opið hús hér í VÍ á mánudag, 13. júní, kl. 15:00 - 18:00. 

Bókasafnið verður að sjálfsögðu opið og gestir velkomnir.

Gaman væri að sjá ykkur.

9. júní 2005

Hér er unnið baki brotnu að frágangi safns eftir veturinn og undirbúningi starfsins næsta vetur!

6. júní 2005

Lánþegar safns eru vinsamlega beðnir að skila öllum gögnum sem þeir eru með að láni...

3. júní 2005

Endurtekningarprófum lýkur í dag.

Næst á dagskrá er innritun nýnema.

2. júní 2005

Nú er verið að taka til á bókasafninu eftir veturinn og undirbúa næsta skólaár!

Opið frá kl. 08:00 - 16:00.

30. maí 2005

Skólanum var slitið á laugardaginn við hátíðlega athöfn.

24. maí 2005

Nú er prófum lokið. Vonandi hefur öllum gengið vel.

Vinsamlegast skilið öllu sem þið eruð með að láni frá bókasafninu STRAX.

Opið til kl. 16:00.

**************

23. maí 2005

Sjúkraprófin eru í dag. Gangi ykkur vel.

*******************************

21. maí 2005

Nú fer að styttast í prófalok, þó sumir nemendur eigi enn eftir að taka sjúkrapróf í byrjun næstu viku.

Margir nemendur eru núna á safninu við lestur.

Gangi ykkur vel að lesa!

*******************

Gleðilegan próflestur!

Nú er gaman á bókasafninu -eins og oft áður! 

Hér sitja mörg ungmenni og lesa fyrir próf daginn út og inn enda safnið opið allar helgar, frídaga  og langt fram á kvöld.

Venjulega eru nemendur hér löngum stundum þegar prófin standa yfir og notalegt og heimilislegt andrúmsloft ríkir hér.

Vonandi gefst lesturinn vel  -og uppskeran úr prófunum góð.

Haldið áfram!

***********

staðan í skólanum er prýðileg og
 
Senda

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica