Fjarnám

Fjarnám

Velkomin(n) á fjarnámsvef Verzlunarskóla Íslands

Vorönn 2012

Frestur til að skrá sig hefur verið framlengdur til miðnættis 23. janúar.  Smellið hér til að komast á skráningarsíðuna, en hún opnast á hádegi þann 3. janúar og lokast á miðnætti 23. janúar.  Skoðið áfanga í boði á vorönn með því að smella hér og upplýsingar um námsgjöld eru hér.

Kennsla hefst 24. janúar, en þá verða aðgangsorð að kennslukerfinu send til nemenda.  Smellið hér til að fá nánari upplýsingar um dagsetningar á haustönn.

Haustönn 2011

Haustönn 2011 er lokið, einkunnir fóru í póst til nemenda mánudaginn 19. desember.

Fjarnemendur á haustönn 2011

Á haustönn 2011 eru 515 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Þegar upplýsingar um fjarnemendur eru teknar saman kemur í ljós að meðalfjarnemandinn okkar er rúmlega 22 árs kona sem býr í Kópavogi og tekur hún tæplega 6 einingar í fjarnámi. Sjá nánar um þetta hér

Moodle í stað WebCT/Bb

Á vorönn 2012, verður nýtt kennslukerfi tekið í notkun.  Sjá nánar um innleiðingarferlið með því að smella hér.  Smellið myndina til að komast í Moodle.  

Könnun á gæðum fjarnáms og fjarkennslu

Á vorönn 2010 stóð Mennta- og menningarmálaráðuneyti fyrir könnun á gæðum fjarnáms og fjarkennslu.  Skýrsluna er hægt að nálgast á vef ráðuneytis, sjá http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/fjarnam_uttekt_2010.pdf

Upprifjun í stærðfræði:

Námsefnið er miðað við STÆ193 (upprifjun úr námsefni grunnskóla) og er opið öllum sem það vilja nota, smellið á STÆ193

Til að fá nánari upplýsingar um fjarnámið er best að senda tölvupóst til fjarnámsstjóra á netfangið fjarnam@verslo.is.  Öllum bréfum er svarað innan sólarhrings.

Bestu kveðjur
Sigurlaug Kristmannsdóttir
fjarnámsstjóri VÍ

Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica