DAN303

DAN303 – Danska

Undanfari: Dan212/DAN203

Áfangalýsing

Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur verði vel læsir á flóknari texta en áður og geti áttað sig á dýpri merkingu þeirra. Nemendur þjálfast í að beita danskri tungu í ræðu og í riti. Nemendur vinna að viðamiklum verkefnum þar sem efnis er leitað á bókasöfnum, vefsíðum og í margmiðlunarefni og undirbúa kynningu á þeim.

Markmið

Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur stefni að því að hafa vald á eftirtöldum markmiðum evrópska tungumálaviðmiðsins. Markmiðin eru tekin úr markmiðum B2 og C1 í sjálfsmatsramma evrópska tungumálaviðmiðsins:

Markmiðin eru að nemandi:

  • geti skilið flestar fréttir og flesta sjónvarpsþætti með fréttatengdu efni
  • geti lesið langa og flókna texta og bókmenntaverk
  • geti lesið sérfræðigreinar og lengri tæknileiðbeiningar með hjálp orðabóka
  • geti tekið þátt í samræðum af nokkru öryggi og án mikillar umhugsunar
  • geti gert grein fyrir skoðunum sínum, bæði munnlega og skriflega
  • geti gefið munnlega lýsingar á hlutum sem tengjast áhugasviði hans
  • geti skrifað texta, ritgerðir eða skýrslur af tiltekinni lengd og með fjölbreyttum orðaforða og komið upplýsinum á framfæri
  • geti beitt málnotkunarreglum almennt og nýtt sér hjálpargögn þegar þekkingu hans þrýtur
  • hafi fengið innsýn í danskt þjóðfélag og menningu
  • beri í auknum mæli ábyrgð á námi sínu og framförum.

Námsmat

Námsmat tekur mið af þeirri vinnu sem nemendum er ætlað að inna af hendi samkvæmt námsáætlun og kröfur gerðar í samræmi við það.

  • Mat á hlustun: Nemendur hlusta á danskar fréttir eða umfjöllun um ákveðið efni, merkja við, skrifa eftir fyrirmælum eða gera útdrátt.
  • Mat á lestri: Formleg próf eða könnun á lesskilningi s.s. krossapróf, eyðufyllingar, spurningar úr ólesnum texta.
  • Mat á tali: Getur miðast við formlegt munnlegt próf, annars vegar samtal nemanda og kennara og hins vegar einstaklingsfrásögn og útleggingu á undirbúnu efni. Þá er metin m.a. lengd samtals eða frásagnar, innihald, flæði, orðaforði, framburður, upphaf og endir
  • Mat á ritun: Þar er metinn orðaforði, flæði, innihald og form ritgerða/úrdrátta/endursagna, upphaf og endir.

Verkefni úr áfanganum gilda 40% á móti prófinu. Á lokaprófinu þarf einkunn 4,5 til að standast áfangann.

Prófið (60%) er samsett þannig:

  • Hlustun 10%
  • Textaskilningur 25%
  • Munnlegt 10%
  • Skriflegt 15%

Námsgögn

  • Námsefni á fjarnámsvef
  • Skáldsagan Den kroniske uskyld eftir Klaus Rifbjerg
  • Dönsk-íslensk orðabók
  • Íslensk-dönsk orðabók
  • Málfræðilykill
Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica