FRA503

FRA 503 - Franska

Undanfari: FRA 403

Áfangalýsing

Áfram er unnið með færniþættina fjóra, hlustun, ritun, lestur og tal eftir því sem viðfangsefni gefa tilefni til. Unnið er með námsefni úr ýmsum áttum sem gefur kost á að dýpka skilning á menningu og sögu viðkomandi tungumálasvæðis. Þetta eru textar og æfingar úr kennslubók, bókmenntir, blaðagreinar og söngtextar svo nokkuð sé nefnt. Ætlast er til að nemendur sýni meira sjálfstæði en fyrr í að afla sér upplýsinga og nýta sér hina ýmsu miðla. Lokið verður yfirferð helstu málfræðiatriða og nemandi á að geta tjáð sig skriflega og munnlega í nútíð, þátíð, framtíð og skildagatíð.

Markmið

Nemandi á að

  • æfast enn frekar í framburði einstakra hljóða og hljómfalli tungumálsins
  • efla orðaforða sem tengist áhugamálum, ferðalögum, frásögnum af liðinni tíð og framtíðaráformum
  • læra skildagatíð og viðtengingarhátt. Geta talað um framtíðaráform sín.
  • lesa bókmenntatexta í léttum útgáfum
  • geta aflað sér upplýsinga um frönsk tungumálasvæði með lestri blaða, bóka eða efnis á Netinu
  • geta skrifað lengri texta en áður eins og sendibréf, frásagnir og útdrætti úr skáldsögu í nútíð og þátíð

Námsgögn

  • Taxi! 2 méthode de français. Lesbók og vinnubók. Höfundur: Robert Menand Forlag: Hachette 2003
  • Smásögur í ljósriti frá kennara
  • Netið
  • Orðabækur að eigin vali
Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica