HEI 203 - Heimspeki samfélags, siðferðis og stjórnmála
Undanfari: HEI 103
Áfangalýsing
Í áfanganum er athyglinni beint að heimspekilegum hugmyndum um mannlegt samfélag. Kynntar eru kenningar heimspekinga um forsendur og form ólíkra samfélaga, um grundvöll siðferðis og rætur stjórnskipunnar. Spurningin um það hvernig æskilegt er að samfélagið sé upp byggt og hvaða grunngildi skuli í heiðri höfð er tekin til umfjöllunar, en þannig má öðlast dýpri skilning á því hvaða viðfangsefni er við að eiga í flóknu samfélagi.
Aukinn skilningur á þessu sviði gagnast nemandanum til að þroska sig sem félagsveru og þátttakanda í hinum fjölbreytilegu aðstæðum sem mæta honum í daglegu lífi. Þannig er, auk skilnings á samfélagslegum viðfangsefnum, lögð áhersla á að auka færni í röklegum og lýðræðislegum samræðum.
Leitast er við að virkja nemandann til þess að yfirvega eigin skoðanir á siðferðilegum efnum og heimspekilegum grundvelli stjórnmála. Atburðir líðandi stundar eru skoðaðir með það fyrir augum að beita aðferðum heimspekinnar til að dýpka og breikka skilning nemenda á þeim og auka þar með hæfni þeirra til þátttöku í lýðræðislegu samfélagi.
Markmið
Nemandi
Samfélag
- kynnist grunnkenningum um samfélög og stjórnmál, svo sem hugmyndum Platons, Aristótelesar, Machiavellis, Hobbes, Lockes, Hegels, Marx, Mills, Rawls og Nozicks
- fái skilning á heimspekilegum rótum ýmissa samfélagslegra fyrirbæra, svo sem laga, réttarfars og stjórnkerfis
- þjálfist í samræðu um samfélagsleg viðfangsefni
- fái tækifæri til að móta sínar eigin heimspekilegu skoðanir á samfélagsmálum
Siðferði
- átti sig á grunnkenningum um siðfræði, eins og kenningum Aristótelesar, Kants og Mills
- nái tökum á helstu hugtökum siðfræðinnar, svo sem dygð, hinu góða, skyldu og nytsemd
- þjálfist í að beita heimspekilegum hugmyndum til að varpa ljósi á siðferðileg álitamál
- öðlist færni í að glíma við siðferðileg álitamál í hversdagslífi sínu
Stjórnmál
- geti gert heimspekilega grein fyrir viðfangsefnum á borð við réttlæti, mannréttindi, frelsi og jafnrétti
- þjálfist í röklegri, lýðræðislegri samræðu
- fjalli heimspekilega um þau mál sem efst eru á baugi hverju sinni með hliðsjón af íslensku samfélagi
Námsgögn
- Heimspeki fyrir þig, eftir Róbert Jack og Ármann Halldórsson, Mál og menning 2008

