ÍSL102

ÍSL 102 - Íslenska

Áfangalýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á lestur og ritun. Nemendur lesa fjölbreytta texta frá ýmsum tímum og fjalla um þá. Nemendur fá innsýn í grunnhugtök bókmenntafræði, s.s. tíma, umhverfi, sjónarhorn, persónulýsingar, boðskap, rím, ljóðstafi og myndmál.

Nemendur vinna ritunarverkefni. Fjallað er um efnisgreinar, byggingu ritsmíða og röksemdafærslu. Nemendur eru þjálfaðir í að skrifa margs konar texta, bæði hlutlæga og huglæga, kenndur frágangur ritaðs máls og notkun hjálpargagna, svo sem handbóka, orðabóka og leiðréttingarforrita.

Ætlast er til að nemendur geti stafsett rétt og þeir þjálfaðir í stafsetningu eftir því sem þörf krefur.

Námsgögn

  • Íslenska eitt eftir Ragnhildi Richter, Sigríði Stefánsdóttur og Steingrím Þórðarson.
  • Lykill að stafsetningu og greinarmerkjum eftir Baldur Sigurðsson og Steingrím Þórðarson.
  • Hagnýt skrif eftir Gísla Skúlason.
  • Ýmislegt um risafurur og tímann eftir Jón Kalman Stefánsson.
Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica