ÍSL 103 - Íslenska
Áfangalýsing
Læsi, ritun og tjáning.
Í áfanganum er lögð mikil áhersla á lestur. Nemendur lesa fjölbreytta texta og fjalla um þá. Nemendur fá innsýn í grunnhugtök bókmenntafræði, s.s. tíma, umhverfi, sjónarhorn, persónulýsingar, boðskap, rím, ljóðstafi og myndmál. Nemendur vinna ritunarverkefni og eru þjálfaðir í að skrifa margs konar texta, bæði hlutlæga og huglæga. Nemendum er kenndur frágangur ritaðs máls og notkun hjálpargagna svo sem handbóka, orðabóka og leiðréttingarforrita.
Grundvallaratriði málfræði og setningafræði eru rifjuð upp og notuð í umfjöllun um íslenskt ritmál, bæði lesna texta og frumsamda. Nemendur eru þjálfaðir í stafsetningu og ætlast er til að þeir geti stafsett rétt, einnig er ætlast til að nemendur nái grunnfærni í setningarfræði.
Námsgögn
- Íslenska eitt. Ragnhildur Richter, Sigríður Stefánsdóttir og Steigrímur Þórðarson.
Mál og menning, 2006. - Valbók í samráði við kennara. Nánar síðar. Íslenska eitt. Ragnhildur Richter, Sigríður Stefánsdóttir og Steigrímur Þórðarson.
Mál og menning, 2006.

