ÍSL303
ÍSL 303 - Íslenska
Áfangalýsing
Bókmenntir og tungumál frá landnámi til siðaskipta.
Fjallað verður um bókmenntir og bókmenntasögu frá landnámi til siðaskipta. Lesin verður ein Íslendingasaga, forn kveðskapur og valdir lausamálstextar úr öðrum greinum fornbókmennta. nemendur fræðast um orðaforða og beygingakerfi fornmáls og öðlast þannig betri skilning á textunum og málfari þeirra. Ýmis verkefni verða unnin í tengslum við lesturinn. Nemendur fá einnig þjálfun í meðferð heimilda og skila ritgerð.
Námsgögn
- Njáls saga. Mælt er með útgáfu Iðnú sem Jón Böðvarsson bjó til prentunar.
- Ormurinn langi. Leiftur úr íslenskum bókmenntum 900-1900. Bragi Halldórsson, Knútur Hafsteinsson og Ólafur Oddsson önnuðust útgáfuna.
- Hagnýt skrif eftir Gísla Skúlason.
- Bókastoð eftir Kristján Eiríksson og Sigurborgu Hilmarsdóttur.

