JAR203
JAR 203 - Jarðsagan og landrekið
Undanfari: Jar 103
Áfangalýsing
Fjallað er um landrek ákveðinna svæða, einstaka tíma í sögu jarðar, umhverfisbreytingar á jörðinni frá upphafi til nútíma. Einnig er fjallað um þróun lífsins, loftslagsbreytingar, jökulskeið og orsök þeirra. Greint er frá tilurð Íslands m.a. út frá landrekskenningunni og fjallað um þróun flekaskila.
Markmið
Gert er ráð fyrir að nemendur
- þekki helstu drætti í almennri jarðsögu.
- geti fjallað um ísaldir og kenningar um orsakir þeirra.
- geti fjallað almennt um landrek og skýrt með tilliti til þess myndun valinna svæða á jörðinni.
Námsgögn
-
Valdir kaflar úr eftirfarandi bókum:
- Almenn jarðfræði eftir Jóhann Ísak Pétursson og Jón Gauta Jónsson
- Myndun og mótun lands eftir Þorleif Einarsson
- Ítarefni frá kennurum

