LAT103 - Latína
Áfangalýsing
Námsefninu má í heild skipta í nokkra þætti. Um er að ræða í fyrsta lagi að nemendur geti ráðið við meðalþungan latneskan texta. Í öðru lagi verður farið talsvert í latneska orðstofna og tengsl latínu við Evrópumálin. Þá skal einnig litið til bókmennta Evrópumanna í fornöld og á miðöldum og sögu þeirra gerð nokkur skil.
Námsþættir
Farið verður í eftirfarandi námsþætti í latínu:
- Hljóðfræði og framburð.
- Nafnorðabeyginguna.
- Sagnir í framsöguhætti.
- Boðhátt og kennimyndir sagna.
- Forsetningar og föll lýsingarorða og eignarfornöfn.
- Tengsl latínu við önnur mál. og valda þætti í málvísindum.
- Textalestur og upprunafræði (etymologíu) nýju málanna.
- Bókmenntasaga Rómverja verður reifuð og helstu málaættir veraldar teknar fyrir.
Kennslufyrirkomulag
Glærur, æfingar, útskýringar, stílar og verkefni. Mikilvægt er að nemendur vinnu hverja lotu vel og skili inn verkefnum/stílum.
Námsmat
Eftirfarandi þættir verða teknir inn í lokaeinkunn:
- Stílar og verkefni (40%)
- Lokapróf (60%)
Námsgögn
- Árni Hermannsson, Kennslubók í latínu I. Fæst hjá kennara eftir að kennsla hefst.
- Leshefti í latínu. Fæst hjá kennara eftir að kennsla hefst.
- Latnesk-ensk/ensk-latnesk orðabók (Collins lítil orðabók er góð og ódýr).

