LÍF203

LÍF 203 - Erfðafræði

Áfangalýsing

Ágrip af sögu erfðafræðinnar. Fjallað er um grundvallaratriði erfðafræðinnar, svo sem mendelskar erfðir og megingerðir frumuskiptinga og litningavíxl. Einnig kynákvörðun, erfðir háðar kynferði, fjölgena erfðir, banagen, óháða samröðun og tengsl gena. Fjallað er um byggingu kjarnsýra (DNA og RNA), afritun, umritun og myndun prótína samkvæmt upplýsingamynstri í erfðaefninu,  litninga, litningabreytingar, hvað gen eru og hvað stendur í þeim, erfðatækni, erfðabreyttar lífverur og klónun. Þá er fjallað um það hvernig lífverur fjölga sér, hvernig ný einkenni verða til og hvernig hægt er að flytja erfðaefni á milli lífvera. Þetta verður til umfjöllunar og margt fleira sem tengist genum okkar og annarra lífvera, svo sem sérkenni í erfðum örvera, temprun á virkni gena, erfðafræðina og mannkynssöguna o.fl.

Námsgögn

  • "Inquiry into Life" eftir Sylvia Mader. Bókin fæst í Eymundsson og í Bóksölu Stúdenta.
Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica