REK 103 (HAG 103) - Rekstrarfræði
Undanfari: TÖN112 / UTN103
Áfangalýsing
Kostnaðarhugtök, tekjur, framlegðarútreikningar, rekstraráætlanir og greiðsluáætlanir. Beinn og óbeinn kostnaður. Rekstrarreikningur, efnahagsreikningur og kennitölur sem túlka ársreikninga.
Markmið
Að nemendur öðlist skilning á tekjum, rekstrarkostnaði og afkomu fyrirtækja. Kunni að vinna með greiðsluáætlun, innborganir og útborganir og átti sig á greiðslustöðu. Nemendur læri að þekkja algengustu kennitölur um rekstrarafkomu og geti notað þær til að túlka niðurstöður rekstrar- og efnahagsstöðu fyrirtækja. Einnig að þeir skilji verðmætasköpun fyrirtækja og getið samið einfaldar rekstrar- og greiðsluáætlanir. Nemendur öðlist skilning á undirstöðuatriðum markaðsverðmyndunar.
Til að ná þessum markmiðum verða heimaverkefni í gerð áætlanna stór þáttur í námsefninu.
Skipulag
Kennsla fer fram í gegnum netið. sem sjálfsnám. Öllum samskipti, verkefni og annað er snýr að framvindu námsins er miðlað um námsstjórnunarkerfið. Nemandi þarf að hafa aðgang að grunn-tölvubúnaði til námsins.
Námsgögn
- Námsefni á fjarnámsvef.
- Rekstrarhagfræði, útgefandi Ólafur Árnason, bókin fæst hjá kennara eftir að kennsla hefst.

