SOL102

SÖL102 - Innkaup og sala

Áfanginn er hluti af Retail verkefninu

Áfangalýsing

Farið er yfir grundvallaratriðin í innkaupum og sölu. Leitast er við að veita nemendum innsýn í helstu atriði sem hafa ber í huga við innkaup og samninga við birgja. Enn fremur verður farið í helstu kenningar um sölu, sölutækni og þjónustu við kaupanda.

Efnisatriði

  • Vörumerki (brands)
  • Birgjar
  • Að semja við birgjana
  • Lög og siðferði í viðskiptum
  • Sölutækni

Námstími og undirbúningur

Ekki er um neinn ákveðinn undanfara að ræða en gert ráð fyrir að nemendur séu 18 ára eða eldri og hafi starfað við verslun. Námið er 2 einingar.

Kennsla fer fram sem sjálfsnám með einni staðbundinni lotu. Verkefnin eru ýmist einstaklingverkefni eða samvinnuverkefni tveggja eða fleiri nemenda. Notaður er hugbúnaðurinn WebCT/Blackboard.

Námsmat

Lokapróf og/eða verkefnavinna (símat) sem byggir á kunnáttu, skilningi, beitingu og tengingu nemans á viðfangsfefninu.

Námsgögn

Námsgögn ásamt verkefnum eru á netinu.

Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica