SPÆ103

SPÆ 103 - Spænska

Áfangalýsing

Nemendum er kynnt tungumálið, þeir byggja upp grunnorðaforða sinn og læra helstu framburðarreglur. Einnig læra þeir að búa til einfaldar setningar þannig að þeir geti tjá sig um sjálfa sig, áhugamál sín, fjölskyldu sína og nánasta umhverfi. Orðaforði, tal og hlustun eru þjálfuð með því að hlusta, endurtaka, lesa upphátt og æfa framburð. Til glöggvunar á málfræði og setningagerð, lesa nemendur samtöl í viðkomandi kafla, gera skriflegar og gagnvirkar æfingar og verkefni.

Í hverjum kafla er sagt frá menningu, sögu og siðum frá Spáni og Rómönsku Ameríku. Á meðan á kennslu stendur fá nemendur ýmiskonar verkefni og í lok hvers kafla eru nemendur látnir gera verkefni úr lesbók, vinnubók, verkefni kennara og gagnvirkar æfingar.  Notast er við hjóðglærur, myndskeið, talað mál og tónlist, internet, gagnvirkar æfingar og gagnvirk próf.

Spænsku 103 er skift niður í þrjá áfanga, SPÆ103a, SPÆ103b og SPÆ103c. 

Markmið

Að nemendur:

  •  kunni skil á helstu reglum um áherslur í spænsku, læri framburðarreglur og æfi framburð
  • læri grundvallaratriði í málfræði eins og um orðaröð í setningum, forsetningar, sagnir, fornöfn, kyn og tölu nafnorða
  • byggi upp orðaforða sem nægi til að lýsa daglegu lífi sínu og fjölskyldu sinnar
  • skilji einfaldar setningar, skilji texta námsefnisins og vinni einföld verkefni því tengd
  • geti tekið þátt í einföldum samræðum og svarað einföldum spurningum
  • geti kynnt sig og sagt lítillega frá eigin högum
  • geti skrifað einfaldan texta um sjálfa sig, ásamt einföldum hagnýtum texta, t.d. póstkort og eyðublöð
  • viti hvar í heiminum spænska er töluð og byrji að kynnast helstu menningarþáttum spænskumælandi landa og noti meðal annars internetið til þess.

Námsmat

  • Verkefni 10%
  • Gagnvirkar æfingar 20%
  • Lokapróf 70%

Námsgögn

  • Español en Marcha  Nivel A1/A2 Lesbók + CD og vinnubók + CD.
    ISBN/EAN:9788497782029
  • Orðabók. Upplýsingar hjá kennara.
Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica