SPÆ503

SPÆ 503 - Spænska

Áfangalýsing

Upprifjun á öllum helstu atriðum spænskrar málfræði og úrvinnsla úr þeim. Mikil áhersla er lögð á lestur bókmennta frá spænskumælandi löndum auk þess sem áfram er haldið að afla þekkingar á menningu þessara landa í sem víðustum skilningi. Til þessa er notast við Netið, lesin eru erlend tímarit og greinar, horft er á kvikmyndir og hlustað er á tónlist og talað mál frá þessum löndum. Áhersla er lögð á að nemendur starfi sjálfstætt og séu duglegir að afla sér efnis sjálf og miðli því síðan til annara nemenda skriflega eða munnlega. Unnin eru þemaverkefni.

Markmið

Nemandi

  • vinnu áfram á skipulagðan hátt að auka orðaforða sinn meðal annars með notkun orðabókar.
  • þjálfist í erfiðustu málfræðiatriðunum sem þegar hafa verið kennd
  • fái fjölbreytt efni til hlustunar
  • auka þjálfun í að tala spænsku , helst við spænskumælandi fólk
  • lesi margbreytilegt efni og vinni markvisst með orðaforða og megininntak texta, nánar tiltekið
  • geti sagt frá upplifum sinni og túlkað sérvalið efni
  • skrifi stuttar frásagnir, endursagnir, fyrirlestrar og ritgerði
  • geti gert greinarmun á mismunandi menningu spænskumælandi landa

Námsmat

Eftirfarandi þættir eru metnir til lokaeinkunnar

  • Lokapróf 50%
  • Munnlegt próf og fyrirlestur 20%
  • Verkefni og léttlestrarbók 30%

Námsgögn

  • (En) vocabulario. Medio B1.  Autoras: Marta Baralo, Marta Genís y María Eugenia SantanaEditorial Anaya   
Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica