STÆ102

STÆ 102 - Stærðfræði

Áfangalýsing

Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslu og lausnum verkefna og þrauta.  Lögð er áhersla á talnareikning, liðun og þáttun eða þá þætti sem tekin voru fyrir í 10. bekk.  Auk þess er farið ítarlega í prósentureikning.  Tvívíða hnitakerfið, jafna beinnar línu.

Markmið

Að nemendur

  • fái þjálfun í talnareikningi og þáttun liðastærða
  • kunni og fái verulega þjálfun í hvers konar prósentureikningi og hlutfallareikningi
  • geti leyst fyrsta stigs jöfnur, bæði með einni og tveimur breytistærðum, og fái þjálfum í lausn verkefni sem krefjast þess að settar séu upp jöfnur
  • þekki tvívítt hnitakerfi og geti teiknað ferla 1. stigs jafna.

Efnisatriði

Talnareikningur, liðun og þáttun.  Hlutfallareikningur, prósentureikningur, álagning, keðjuálagning, vextir, vaxtavextir.  Jöfnur af fyrsta stigi, tvær jöfnur með tveimur óþekktum stærðum, óuppsettar jöfnur.  Talnalína, hnitakerfið og jafna beinnar línu.

Námsmat

  • Próf í annarlok er 120 mínútur og gildir einkunn í því 90%lokaeinkunn.
  • Á prófi í annarlok verður prófað í fræðilegu efni ásamt dæmareikningi.
  • Nemendur þurfa að skila tveimur verkefnum og gilda þau 5% hvort.


Nemandi þarf að fá a.m.k. 4,5 á lokaprófi til að standast áfangann.

Námsgögn

  • Stæ103 (útgefin árið 2000 eða síðar) eftir Jón Hafstein Jónsson, Níels Karlsson og Stefán G. Jónsson. Bókin fæst í bókaútgáfunni IÐNÚ, Reykjavík
  • Nemendur þurfa að hafa reiknivél. Í lokaprófum er leyfilegt að nota reiknivél með grafískum skjá en þó ekki fullkomnari en Casio 9750.
Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica