STÆ 103 - Stærðfræði
Áfangalýsing
Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslu og lausnum verkefna og þrauta. Lögð er áhersla á talnareikning, liðun og þáttun eða þá þætti sem tekin voru fyrir í 10. bekk. Auk þess er farið ítarlega í prósentureikning. Í rúmfræðinni er sérstaklega fjallað frumreglur, skilgreiningar og reglur um horn og þríhyringa og þannig búið til afleiðslukerfi. Hornaföllin og hornafallareglur, hnitakerfið og jafna beinnar línu.
Markmið
Að nemendur
- fái þjálfun í talnareikningi og þáttun liðastærða
- kunni og fái verulega þjálfun í hvers konar prósentureikningi og hlutfallareikningi
- geti leyst fyrsta stigs jöfnur, bæði með einni og tveimur breytistærðum, og fái þjálfum í lausn verkefni sem krefjast þess að settar séu upp jöfnur
- þekki og geti skilgreint helstu hugtök evklíðskrar rúmfræði og geri greinarmun á skilgreiningum og reglum
- þekki til hornafallanna og geti beitt þeim á rétthyrnda og, eftir atvikum, hvasshyrna þríhyrninga
- þekki sin- og cosreglurnar og geta notað þær
- þekki og geti notað reglur um horn sem tengjast hringferli
- þekki skilgreiningu á ferilhorn og þekki reglur sem beita má til að finna horn við hring
- þekki undirstöðuhugtök hnitarúmfræði í sléttum fleti,
Efnisatriði
Talnareikningur, liðun og þáttun. Veldi og veldareglur. Hlutfallareikningur, prósentureikningur, álagning, keðjuálagning, vextir, vaxtavextir, annúítet, lánaútreikningur með hjálp töflureiknis. Frumsendur, skilgreiningar og reglur í evklíðskri rúmfræði, sannanir, þríhyrningar og hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi, hornaföll í hvasshyrndum þríhyrningi, horn tengd hringferli. Jöfnur af fyrsta stigi, tvær jöfnur með tveimur óþekktum stærðum, óuppsettar jöfnur. Horn við hring, Rétthyrnt hnitakerfi í sléttum fleti, jafna beinnar línu
Námsmat
Próf í annarlok er 120 mínútur og gildir 100%. Til að standast áfangann þarf að ná a.m.k. 4,5 á lokaprófinu.
Á lokaprófi í annarlok verður prófað í fræðilegu efni ásamt dæmareikningi.
Nemandi þarf að fá a.m.k. 5,0 í lokaeinkunn til að standast áfangann.
Námsgögn
- STÆ 103 (útgefin árið 2000 eða síðar), eftir Jón Hafstein Jónsson, Níels Karlsson og Stefán G. Jónsson. Bókin fæst í bókaútgáfunni IÐNÚ, Reykjavík
- Nemendur þurfa að hafa reiknivél. Ekki er leyft að hafa fullkomnari reiknivél í prófum en CASIO 9850.

