STÆ202

STÆ 202 - Stærðfræði

Áfangalýsing

Kynning á mengjafræðinni, skilgreiningar og aðgerðir.  Þjálfun í lausn jafna og ójafna.  Velda- og rótarreikningur .  Margliður skilgreindar og ýmsar aðgerðir á þeim.  Annars stigs margliður eru leystar og almenn formúla leidd út.  Tvívíða hnitakerfið og jafna fleygboga. 

Markmið

Að nemendur

  • þekki til útreikninga með margliðum og þá sérstaklega öllu sem viðkemur 2. stigs margliðum
  • hafi velda- og rótarreglur á valdi sínu
  • þekki aðferðir til að leysa annarsstigs jöfnur
  • þekki tvívítt hnitakerfi og geti teiknað ferla  2. stigs margliða

Efnisatriði

Mengi og mengjaaðgerðir.  Talnalínan, algildi og biltákn.  Jöfnur, annars stigs jöfnur, algildisjöfnur, línulegar ójöfnur.  Velda- og rótarreglur, brotin veldi.  Margliður, skilgreining, deiling margliða, núllstöðvar margliðar, formerki margliða. Jafna feylgboga, topppunktar, skurðpunktar milli ferla.

Námsmat

Próf í annarlok er 90 mínútur og gildir 100%.

Á prófi í annarlok verður prófað í fræðilegu efni ásamt dæmareikningi.  Nemandi þarf að fá a.m.k. 5,0 í lokaeinkunn til að standast áfangann.  

Námsgögn

  • Stæ203 (útgefin árið 2000 eða síðar)eftir Jón Hafstein Jónsson, Níels Karlsson og Stefán G. Jónsson. Bókin fæst í bókaútgáfunni IÐNÚ, Reykjavík.
  • Nemendur þurfa að hafa reiknivél. Í lokaprófum er leyfilegt að nota reiknivél með grafískum skjá en þó ekki fullkomnari en Casio 9750.
Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica