STÆ203

STÆ 203 - Stærðfræði

Áfangalýsing

Lagður er grunnur að skilningi nemandans á rauntalnakerfinu.
Áframhaldandi þjálfun í lausn jafna. Velda- og rótarreikningur. Margliður skilgreindar og ýmsar aðgerðir á þeim. Tvívíða hnitakerfið, jafna beinnar línu ásamt jöfnu fleygboga. Annars stigs margliður eru leystar og almenn formúla leidd út.

Markmið

Að nemendur

  • hafi fullt vald á bókstafareikningi
  • þekki til útreikninga með margliðum og þá sérstaklega öllu sem viðkemur 2. stigs margliðum
  • hafi velda- og rótarreglur á valdi sínu
  • þekki aðferðir til að leysa annarsstigs jöfnur
  • þekki tvívítt hnitakerfi og geti teikna ferla 1. og 2. stig margliða
  • kannist við frumhugtök fallafræðinnar

Efnisatriði

Mengi og mengjaaðgerðir. Frumtölur, heiltölureikningur, lotutugabrot og brotabrot. Talnalínan, algildi og biltákn. Liðun og þáttun, brotareikningur. Jöfnur, annars stigs jöfnur, algildisjöfnur, línulegar ójöfnur. Velda- og rótarreglur, brotin veldi. Margliður, skilgreining, deiling margliða, núllstöðvar margliðar, formerki margliða. Hnitakerfið, jafna beinnar línu. Jafna fleygboga, topppunktar, skurðpunktar milli ferla. Föll, skilgreiningarmengi og myndmengi.

Námsmat

Próf í annarlok er 120 mínútur og gildir 100%.

Á prófi í annarlok verður prófað í fræðilegu efni ásamt dæmareikningi. Nemandi þarf að fá a.m.k. 5,0 í lokaeinkunn til að standast áfangann.

Námsgögn

  • Stæ203 (útgefin árið 2000 eða síðar)eftir Jón Hafstein Jónsson, Níels Karlsson og Stefán G. Jónsson. Bókin fæst í bókaútgáfunni IÐNÚ, Reykjavík.
  • Nemendur þurfa að hafa reiknivél. Í lokaprófum er leyfilegt að nota reiknivél með grafískum skjá en þó ekki fullkomnari en Casio 9750.
Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica