STÆ 363 - Stærðfræði
Áfangi yrir viðskiptabraut/viðskiptadeild og félagfsfræðabraut/alþjóðadeild
Áfangalýsing
Lögð er áhersla á að nálgast fyrirbæri í náttúrunni og í samfélaginu með opnum huga hvað varðar stærðfræði. Til þess er nemendur látnir vinna með vísis- og lograföll, diffrun einfaldra falla. Auk þess er farið inn á svið runa og raða og einföld dæmi í línulegri bestun tekin og leyst.
Markmið
Að nemendur:
- geti notað stærðfræði við lausn verkefna sem tengjast samfélaginu
- kunni geti hagnýtt sér vísis- og lograföll
- kunni að diffra einföld föll og geti hagnýtt sér diffrun
- skilji samhengið milli runa og raða og t.d. vaxtareiknings
- geti leyst einföld dæmi í línulegri bestun
Efnisatriði
Vísisföll og lograföll. Vaxtarhraði og skilgreining afleiðu. Afleiður nokkrurra algengra falla. Hagnýting diffurreiknings. Runur og raðir. Línuleg bestun.
Námsmat
- Próf í annarlok er 120 mínútur og gildir einkunn í því 90%lokaeinkunn.
- Á prófi í annarlok verður prófað í fræðilegu efni ásamt dæmareikningi.
- Nemendur þurfa að skila tveimur verkefnum og gilda þau 5% hvort.
Nemandi þarf að fá a.m.k. 4,5 á lokaprófi til að standast áfangann.
Námsgögn
- Stærðfræði 3000 eftir Lars-Eric Björk og Hans Brolin.
- Nemendur þurfa að hafa reiknivél. Í lokaprófum er leyfilegt að nota reiknivél með grafískum skjá en þó ekki fullkomnari en Casio 9750.

