STÆ463

STÆ 463 - Stærðfræði

Áfangi yrir viðskiptabraut/viðskiptadeild

Áfangalýsing

Vigurhugtakið skilgreint og aðgerðir á vigrum kynntar. Einingarhringurinn er lagður til grundvallar hornaföllum og horn á milli vigra fundið auk þess sem einfaldar hornafallajöfnur eru leystar. Fallahugtakið er kynnt og farið yfir nokkur helstu föllin auk þess sem samsetning falla er tíunduð. Diffrunarreglurnar æfðar og fundin staðbundin útgildi og beygjuskil. Að lokum er skilgreint heildi bæði ákveðið og óákveðið og heildun síðan notuð til að finna flatarmál svæðis á milli ferla.

Markmið

Að nemendur

  • hafi kynnst vigurhugtakinu og tengið þjálfun í notkun viguraðgerða
  • þekki skilgreiningu hornafallanna og geti leyst einfaldan hornafallajöfnur
  • þekki skilgreinguna á falli
  • hafi fengið aukna þjálfun í diffrunarreikningi
  • þekki skilgreiningu stofnfalls og getið fundið stofnfall einfaldra falla
  • geti fundið flatarmál á milli tveggja ferla með heildunarreikningi

Efnisatriði

Vigur: stöðuvigur, samlagning, hallatala, lengd, blandað margfeldi, einingarvigur, innfeldi. Hornaföll, horn mæld í radíönum, stefnuhorn vigurs, horn á milli vigra, hornafallajöfnur. Fall, skilgreiningarmengi, myndmengi, fastapunktur, veldisfall, vísisfall, lografall, samssett föll, diffrunarreglur, staðbundin útgildi, beygjuskil. Stofnfall, heildi, flatarmál.

Námsmat

Próf í annarlok er 120 mínútur og gildir 100%.

Á prófi í annarlok verður prófað í dæmareikningi. Nemandi þarf að fá a.m.k. 5,0 í lokaeinkunn til að standast áfangann.

Námsgögn 

  • Stæ463 (útgefin árið 2006) eftir Þórð Möller og Svövu Þorsteinsdóttur. Bókin er vistuð á rafrænu formi í kennslukerfinu þar sem nemendur getað nálgast hana og prentað út.
  • Nemendur þurfa að hafa reiknivél. Í lokaprófum er leyfilegt að nota reiknivél með grafískum skjá en þó ekki fullkomnari en Casio 9750.
Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica