STÆ 503 - Stærðfræði
Áfangi fyrir nemendur á náttúrubræðibraut og viðskiptabraut/hagfræðideild
Áfangalýsing
Í áfanganum er farið í hvernig stofnföll falla eru fundin. Hvernig hægt er að nota heildun við að finna flatarmál óreglulegra svæða, boglengd ferla og rúmmál snúða. Kenndar eru aðferðir við að leysa diffurjöfnur af fyrsta stigi. Kennd er þrepasönnun. Runur og raðir eru kenndar og hvernig hægt er að tengja útreikninga þeirra t.d. við vaxtareikning.
Markmið
-
Að nemendur kunni:
- Heildunaraðferðir, innsetningu, hlutheildun og liðun í stofnbrot.
- Að túlka flatarmál út frá yfir og undirsummu.
- Að finna flatarmál svæðis sem afmarkast af tveimur ferlum.
- Að finna rúmmála snúða sem myndast þegar ferli falls er snúið um lárétta línu.
- Að nemendur þekki og kunni að diffra andhverfur hornafalla.
- Að nemendur geti leyst einfaldar diffurjöfnur af fyrsta stigi og hagnýt dæmi með diffurjöfnum.
-
Að nemendur þekki hugtökin og geti reiknað dæmi þeim tengd:
- Mismunruna og mismunaröð.
- Kvótraruna og kvótaröð.
- Að nemndur geti leitt út reglur með þrepasönnun.
Efnisatriði
Óákveðið heildi, flatarmál, heildanleiki, andhverfur hornafalla og diffrun þeirra, yfirsumma, undirsumma, millisumma, ákveðið heildi og flatarmál, rúmmál snúða, diffurjöfnur, þrepun, runur og raðir.
Námsmat
- Próf í annarlok er 120 mínútur og gildir einkunn í því 90%lokaeinkunn.
- Á prófi í annarlok verður prófað í fræðilegu efni ásamt dæmareikningi.
- Nemendur þurfa að skila tveimur verkefnum og gilda þau 5% hvort.
Nemandi þarf að fá a.m.k. 4,5 á lokaprófi til að standast áfangann.
Námsgögn
- Stæ503 eftir Jón Hafstein Jónsson, Níels Karlsson og Stefán G. Jónsson. Bókin fæst í bókaútgáfunni IÐNÚ, Reykjavík.
- Ekki eru leyfðar fullkomnari vasareiknar en Casio 9850 í prófum.

