STÆ 563 - Stærðfræði
Áfangi yrir viðskiptabraut/viðskiptadeild
Áfangalýsing
Litið á nokkrar heildunaraðferðir og þær æfðar. Diffurjöfnur kynntar og einfaldar jöfnur leystar. Fylkjareikningur kynntur og æfður. Að lokum eru flatar- og rúmmyndir teknar fyrir.
Markmið
- Að nemendur
- hafi fengið þjálfun í heildunarreikningi
- hafi kynnst diffurjöfnum og geti leyst einfaldar diffurjöfnur
- hafi kynnst fylkjum og fengið æfingu í fylkjareikningi
- hafi náð góðum tökum á flatar- og rúmmyndarreikningum.
Efnisatriði
Heildunaraðferðir, hlutheildun, innsetning, heildun ræðra falla – stofnbrotsliðun. Diffurjöfnur, sérlaun diffurjafna, diffurjöfnur með aðskiljanlegum breytistærðum, línulega fyrsta stigs diffurjöfnur. Fylki, samlagning, margföldun, ferningsfylki, hornalínufylki, einingarfylki, andhverfa fylkis, bylt fylki, ákveða, jafna bestu línu. Þríhyrningur, hringur, ferhyrningur, flatarmál, ummál. Kassi, strýta, kúla, rúmmál, yfirborðsflatarmál.
Námsmat
Próf í annarlok er 120 mínútur og gildir 100%.
Á prófi í annarlok verður prófað í dæmareikningi. Nemandi þarf að fá a.m.k. 5,0 í lokaeinkunn til að standast áfangann.
Námsgögn
- STÆ563 (útgefin árið 2007) eftir Þórð Möller. Bókin er vistuð á rafrænu formi í kennslukerfinu þar sem nemendur getað nálgast hana og prentað út.
- Nemendur þurfa að hafa reiknivél. Í lokaprófum er leyfilegt að nota reiknivél með grafískum skjá en þó ekki fullkomnari en Casio 9750.

