STJ103

STJ 103 (VIÐ 103) - Stjórnun

Áfangalýsing

Farið er yfir grunnhugtök og kenningar í stjórnun. Útskýrt er hvernig þjóðfélagsbreytingar hafa gert það að verkum að menn leggja nú meiri áherslu á stjórnun en áður. Leitast er við að veita nemendum innsýn í störf stjórnenda og kynna þeim ýmis verkefni sem þeir inna af hendi. Farið er í stjórnunarferlið, mismunandi gerðir stjórnskipulaga, setningu markmiða, áætlanagerð og upplýsingastreymi. Áhersla er lögð á að upplýsa nemendur um samspil stjórnunar og samstarfs og mikilvægi þess að starfsmenn séu ánægðir í sínu starfi.

Markmið

Að nemendur:

  • kunni grunnhugtök og kenningar í stjórnun og að beita hugtökunum í mæltu og rituðu máli.

Viðfangsefni

Grunnhlutverk stjórnunar, saga stjórnunar, stjórnun í alþjóðaumhverfi, siðferði í stjórnun, frumkvöðlastarfssemi, starfsmannastjórnun, leiðtogahlutverkið ofl.

Kennsluhættir

Kennsla fer fram sem sjálfsnám. Með lestri hvers kafla verða glærur með áherslupunktum.  Þar sem kennslubókin er ekki íslensk þá eru ensku orðin alltaf í sviga fyrir aftan til að auðvelda ykkur lesturinn. Athugið að áfanginn er lesfag þannig að mikilvægt er að lesa jafnt og þétt.

Námsmat

Próf í áfanganum í annarlok gildir 90% af lokaeinkunn. 
10% lokaeinkunnar er árangur í verkefnum sem nemendur þurfa að skila.
Próf í annarlok verður 120 mínútur.
Nemandi þar að fá a.m.k. 5,0 í lokaeinkunn til að standast áfangann.

Námsgögn

  • Ljósritað leshefti sem kennari hefur tekið saman, fæst hjá kennara eftir að kennsla hefst.
Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica