ÞJÓ103

ÞJÓ 103/113 (HAG 113) - Þjóðhagfræði

Markmið

Að nemendur

  • Kunni grunnhugtök og kenningar í þjóðhagfræði.
  • Öðlist nægjanlegan skilning á efnahagsstarfsseminni  til að þeir séu færir um að skilja umfjöllun um efnahagsmál.
  • Skilji helstu hagtölur sem lýsa íslenska hagkerfinu og séu færir um að afla sér upplýsinga um slíkar stærðir. 
  • Fái þjálfun í að lesa úr línuritum og innsýn í notkun hlutfallareiknings, vísitalna, vegins meðaltals og fleiri algengra aðferða við vinnslu á hagfræðilegum upplýsingum. 

Kennsluhættir

Kennsla fer fram sem sjálfsnám. Með lestri hvers kafla verða glærur með áherslupunktum. Í lok hvers kafla eru spurningar og dæmi sem nemendur geta leyst.

Námsmat

Til að hafa staðist áfangann þarf að ná einkunninni 5, 0 á lokaprófi.
Lokapróf gildir 85% og verkefni 15%.

Námsgögn

  • Þjóðhagfræði 103 eftir Ingu Jónu Jónsdóttur (2005). 
  • Að auki verður ítarefni frá kennara sem nemendur geta nálgast á svæði Þjóðhagfræðinnar. 
Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica