TÖN 102 - Tölvunotkun (var áður TÖN202)
Áfangalýsing
Áfanginn Tön 102 er fyrri áfanginn af tveimur á fyrsta ári í upplýsingatækni og tölvunotkun við Verzlunarskóla Íslands. Í áfanganum er farið vandlega í allar helstu aðgerðir í ritvinnsluforritinu Microsoft Word 2010.
Þar er lögð áhersla á að nemandi öðlist færni í notkun ritvinnsluforritsins Word. Einnig er lögð áhersla á að nemandi tileinki sér vandvirkni, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum. Farið verður í ritvinnsluforritið Microsoft Word 2010.
Áfangamarkmið
Nemandi þekki vel umhverfi ritvinnsluforritsins Word 2010, geti aðlagað og stillt það að eigin þörfum og hafi á valdi sínu a.m.k. eftirfarandi aðgerðir:
- spássíur (Margins)
- mótun texta (Font)
- mótun efnisgreina (Paragraph)
- haus og fót (Header/Footer)
- leit og skipti (Find/Replace)
- dálka (Tabs)
- áherslumerki (Bullets), númeringar (Numbering), þrepaskipt númering Multilevel List)
- neðanmálsgreinar (Footnotes)
- jaðarlínur og skyggingu texta (Border)
- myndvinnslu
- leturlist (WordArt), textabox og ýmis form (Shapes)
- stóran upphafsstaf (DropCap)
- blaðadálka (Colums)
- efnisyfirlit (Table of Contents)
- töflur og töfluvinnslu (Tables)
- númeraðir miðar (Caption)
- röðun (Sort)
- útlitskafla (Section Breaks)
- sniðmát og stíla (Styles)
- uppsetningu ritgerða, heimilda og tilvísana
- uppsetningu heimildaskrár
- atriðisorðaskrá (Index)
- verslunarbréf
- formbréf/dreifibréf (Mail Merge)
- miðar (Labels)
- uppsetningu starfsferilsskrár og starfsumsókn
- stærðfræðiritil (Equation)
Námsmat
Í kennslubókinni eru leiðbeiningar, æfingar og verkefni til að þjálfa upp leikni í ritvinnslunni. Að auki eru æfingar, leiðbeiningar og gagnvirkar leiðbeiningar frá Tölvunámi.is á vefsíðum í gegnum kennslukerfið.
Í lok áfangans er lokapróf úr öllu efni áfangans og þarf að fá einkunnina 4,5 til að standast áfangann. Prófað verður í ritvinnsluforritinu Word 2010 sem gildir 75% og síðan gilda skilaverkefnin 25%.
Til að ná áfanganum, þarf nemandi að ná 4,0 á lokaprófi.
Námsgögn
- Tölvunotkun – Upplýsingatækni. Kennslubók með verkefnum. Office 2010. Enskt og íslenskt notendaviðmót. Haust 2011. Heftið fæst hjá kennara áfangans, Sólveigu, GSM 864-2873.

