TÖN 103 - Tölvunotkun
Áfangalýsing
Áfanginn Tön 103 er fyrri áfanginn af tveimur sem kenndir eru í upplýsingatækni og tölvunotkun við Verzlunarskóla Íslands. Í áfanganum er farið vandlega í allar helstu aðgerðir í glærugerðarforritinu PowerPoint 2010, ritvinnsluforritinu Microsoft Word 2010 og töflureikninum Excel 2010. Að auki er stuttlega farið í gegnum möguleika póst- og samskiptaforritsins Outlook. Í áfanganum er lögð rík áhersla á að nemandi öðlist færni í notkun tölvunnar sem tækis og geti nýtt hana í frekara námi eða starfi. Einnig er lögð áhersla á að nemandi tileinki sér vandvirkni, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Markmið
Að nemandi
- þekki vel umhverfi forritanna, geti aðlagað og stillt þau að eigin þörfum
- þekki vel helstu möguleika póst- og samskiptaforritsins Outlook ásamt vefpósthluta þess
- þekki vel til umhverfisins í framsetningar- og glærugerðarforritinu PowerPoint og geti nýtt sér það til framsetningar á efni
- þekki vel til umhverfisins í ritvinnsluforritinu Word
- hafi öðlast leikni í mótun texta á ýmsan máta og átti sig á æskilegum læsileika hans
- geti sett upp heimildaritgerð ásamt yfirlitum af ýmsu tagi, s.s. efnisyfirliti, mynda- og töfluyfirliti
- geti sett upp viðskiptabréf og formbréf og nýtt til þess tilbúin sniðmát
- hafi öðlast góða þekkingu á umhverfi og möguleikum töflureiknisins Excel og sé fær um að nýta sér það til útreikninga á flókinn máta
- geti mótað töluleg gögn og sett þau fram á myndrænan hátt
Námsmat
Í kennslubókunum eru leiðbeiningar, æfingar og verkefni til að þjálfa upp notkun forritanna. Í lokin er próf sem gildir 75% og skilaverkefni sem gilda 25%.
Lokaeinkunn:
- Skilaverkefni 25%
- Lokapróf í Word og Excel 75%
Til að ná áfanganum og vinnueinkunn telji þarf nemandinn að ná 4,0 í lokaprófseinkunn.
Námsgögn
- Tölvunotkun. Upplýsingatækni. Office 2010. Enskt og íslenskt notendaviðmót. Haust 2011. Kennslubók með verkefnum tekin saman af Jóhönnu Geirsdóttur og Sólveigu Friðriksdóttur.
- Kennslubók í Excel 2010, eftir Óla Njál Ingólfsson og Hall Örn Jónsson. Gefin út 2011.
Kennslubækurnar fást hjá kennara áfangans, Sólveigu Friðriksdóttur, í síma 864-2873. Að auki fá nemendur leiðbeiningar á vefsíðum og verkefni frá kennara.

