TÖN 112 - Tölvunotkun, Excel og PowerPoint
Áfangalýsing
Áfanginn Tön 112 er annar af tveimur áföngum í tölvunotkun og upplýsingatækni sem teknir eru á fyrsta námsári viðVerzlunarskóla Íslands. Unnið er með forrit sem tilheyra Microsoft Office 2010.
Í áfanganum er lögð rík áhersla á að nemandi öðlist færni í notkun tölvunnar sem tækis og geti nýtt hana í frekara námi eða starfi. Einnig er lögð áhersla á að nemandi tileinki sér vandvirkni, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Tön 112 skiptist í fjóra hluta
- Outlook 2010 – póstforrit
- Internet Explorer – vafri
- PowerPoint 2010 – glærugerðarforrit
- Excel 2010 – töflureiknir
Markmið
Nemandi
- þekki Internet Explorer vefráparann og hafi vald á leitartækni
- geti nýtt sér Microsoft Outlook póstkerfið á hagnýtan hátt til samskipta
- þekki vel til umhverfisins í PowerPoint framsetningar- glærugerðarforritinu og geti nýtt sér það til framsetningar á efni
- hafi öðlast góða þekkingu á umhverfi og möguleikum töflureiknisins Excel
- sé fær um að nýta sér það til útreikninga á flókinn máta
- geti mótað og sett fram gögn á myndrænan hátt
Námsmat
- Skilaverkefni gilda 25%
- Lokapróf gildir 75%
Til að ná áfanganum, þarf nemandi að ná 4,0 á lokaprófi.
Námsgögn
Kennslubók í Excel 2010. Ný og uppfærð útgáfa (2. útgáfa). Höfundar eru Óli Njáll Ingólfsson og Hallur Örn Jónsson.
Í bókinni eru leiðbeiningar og verkefni við einföld og flókin verkefni sem unnin verða í gegnum áfangann ásamt leiðbeiningum og verkefnum frá kennara. Bókin fæst hjá kennara áfangans, Sólveigu, GSM 864-2873.

