ton202

TÖN202 - Tölvunotkun (áður TÖN302)

 

Undanfarar eru VÉL101, TÖN102 og TÖN112.

Áfangalýsing

Tön 202 er tveggja eininga áfangi og sambærilegur áfanga sem kenndur er við Verzlunarskóla Íslands og í samræmi við skólanámskrá Verzlunarskólans.

Markmið

Markmiðið er að nemendur nái að nýta sér til gagns í námi og starfi helstu atriði ritvinnsluforritsins Microsoft Word 2010 og svo grunnatriði gagnagrunnsforritsins Access 2010.

Í Word er lögð áhersla á m.a. eftirtalin atriði: Dálka, töflur, blaðadálka t.d. í tengslum við fréttabréf/ kynningarblöðung, númeraðar töflur og töflulista, númeraðar myndir og myndalista, uppsetningu verslunarbréfa, formbréf, merkimiða, gerð og notkun sniðmáta og stíla, sniðmát sem fylgja Word ritvinnslunni, hönnun auglýsinga og gerð ferilskrár. Farið í heimildanotkun og uppsetningu heimilda¬lista, myndvinnslu og einnig rætt um siðfræði/siðferði á Netinu.

Unnið er nokkuð stórt lokaverkefni með forsíðu í sama skjali, mismunandi haus og fæti, neðanmáls¬greinum, töflum úr Excel, myndritum, listum, myndatextum, liggjandi síðum, efnisyfirliti og atriðis¬orðaskrá.

Kennd eru grunnatriði í notkun gagnasafnsforritsins Access 2010. Nemendur hanna og vinna með einfaldan gagnagrunn, slá inn gögn, nota síur, breyta grunnum, læra að nota fyrirspurnir, sækja gögn úr öðrum forritum og búa til skýrslur.

Kennsluhættir

Kennslan byggist einkum á verkefnavinnu nemenda og skilum á verkefnum. Verkefnin byggjast á því að kynna nýja og þjálfa gagnlega þætti Word ritvinnslunnar og kynna grunnatriði gagnagrunnsins Access. Áhersla er lögð á vandvirkni og sjálfstæð vinnubrögð.

Námsmat

  • Skil á verkefnum:  30%
  • Próf í Access  10%
  • Lokapróf í Word 60%

Námsgögn

  • Tölvunotkun. Upplýsingatækni. Office 2010 fyrir enska og íslenska útgáfu. Haust 2010. Höfundar Jóhanna Geirsdóttir og Sólveig Friðriksdóttir. Heftið fæst hjá Sólveigu, GSM 864-2873. 
  • Einnig fá nemendur leiðbeiningar og verkefni frá kennara í kennsluumhverfi WebCT..
Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica