TÖN 212 - Upplýsingafræði (áður TÖN312)
Áfangalýsing
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandi læri að nota fjölbreyttan hugbúnað og upplýsingar á margvíslegu formi við lausn og framsetningu viðfangsefna í námi sínu. Hafi skilning á upplýsingaöflun og upplýsinga- og menningarlæsi og geti lagt mat á gæði og áreiðanleika upplýsinga. Átti sig á lagalegri og siðfræðilegri hlið upplýsingaflæðis, höfundarétti og upplýsingalögum.
Einnig að nemandi öðlist góða yfirsýn yfir sögu og þróun Netsins og rafrænna viðskipta. Nái færni í notkun dagbókar þar sem skráð er námsferli nemandans. Læri möguleika HTML og XHTML-forritunarmálsins til að útbúa eigin síðu og kynnist vefhönnun. Síðast en ekki síst að nemandi nái að temja sér sjálfstæði í vinnubrögðum og færni í samvinnu.
Markmið
Nemandi
- hafi á valdi sínu notkun dagbókar og ferilmöppu og geti sagt frá og metið nám sitt á málefnalegan hátt
- þekki helstu atriði í sögulegri þróun Netsins
- geti nýtt sér möguleika Netsins í námi og starfi, þ.e. hafi þekkingu á því hvernig hagnýta má upplýsingatækni í tengslum við nám og starf
- þekki aðeins til opins hugbúnaðar
- þekki vel möguleika póst- og samskiptaskiptaforrita, m.a. Outlook og Gmail
- þekki helstu tegundir upplýsingasafna, gagnasöfn og leitarvélar og geti aflað sér upplýsinga um fjölbreytt efni eftir margvíslegum leiðum
- þekki hugtökin upplýsinga- og menningarlæsi og viti hvað þau fela í sér
- geri sér grein fyrir möguleikum myndrænna upplýsinga t.d. í kvikmyndum og ljósmyndum
- þekki helstu aðferðir til skráningar heimilda og geti metið gæði, áreiðanleika, uppruna og gildi upplýsinga
- þekki aðeins til myndvinnslu
- þekki helstu lagaleg, siferðisleg og félagsleg atriði er varða söfnun, geymslu og miðlun upplýsinga
- kunni helstu skipanir HTML og XHTML forritunarmálsins og geti nýtt þær til einfaldrar vefsíðugerðar
- geti sett fram þekkingu sína og upplýsingar á tölvutækan hátt (stórar skýrslur) og á vef (miðlun efnis á ýmsa vegu) hafi á valdi sínu notkun dagbókar og ferilmöppu og geti sagt frá og metið nám sitt á málefnalegan hátt
Námsmat
- Skilaverkefni gilda 30%
- Lokapróf gildir 70%
Til að ná áfanganum, þarf nemandi að ná 4,0 á lokaprófi.
Námsgögn
- Lesheftið Upplýsingafræði (Þróað læsi) – Uppýsinga- og menningarlæsi. Ný útgáfa.
Fæst hjá kennara áfangans, Sólveigu Friðriksdóttur, GSM: 864-2873, kostar 3.500 kr. - Viðbótarlesefni og verkefni frá kennara.

