TÖN 302 – Tölvunotkun
Undanfarar TÖN302 eru VÉL101, TÖN102 og TÖN112.
Áfangalýsing
Tön 302 er tveggja eininga áfangi og sambærilegur áfanga sem kenndur er við Verzlunarskóla Íslands og í samræmi við skólanámskrá Verzlunarskólans.
Markmið
Markmiðið er að nemendur nái að nýta sér til gagns í námi og starfi helstu atriði ritvinnsluforritsins Microsoft Word 2007 og svo grunnatriði gagnagrunnsforritsins Access 2007.
Í Word er lögð áhersla á m.a. eftirtalin atriði: Dálka, töflur, blaðadálka t.d. í tengslum við fréttabréf/ kynningarblöðung, númeraðar töflur og töflulista, númeraðar myndir og myndalista, uppsetningu verslunarbréfa, formbréf, merkimiða, gerð og notkun sniðmáta og stíla, sniðmát sem fylgja Word ritvinnslunni, hönnun auglýsinga og gerð ferilskrár. Farið í heimildanotkun og uppsetningu heimilda¬lista, myndvinnslu og einnig rætt um siðfræði/siðferði á Netinu.
Unnið er nokkuð stórt lokaverkefni með forsíðu í sama skjali, mismunandi haus og fæti, neðanmáls¬greinum, töflum úr Excel, myndritum, listum, myndatextum, liggjandi síðum, efnisyfirliti og atriðis¬orðaskrá.
Kennd eru grunnatriði í notkun gagnasafnsforritsins Access 2007. Nemendur hanna og vinna með einfaldan gagnagrunn, slá inn gögn, nota síur, breyta grunnum, læra að nota fyrirspurnir, sækja gögn úr öðrum forritum og búa til skýrslur.
Kennsluhættir
Kennslan byggist einkum á verkefnavinnu nemenda og skilum á verkefnum. Verkefnin byggjast á því að kynna nýja og þjálfa gagnlega þætti Word ritvinnslunnar og kynna grunnatriði gagnagrunnsins Access. Áhersla er lögð á vandvirkni og sjálfstæð vinnubrögð.
Námsmat
- Skil á verkefnum: 30%
- Próf í Access 10%
- Lokapróf í Word 60%
Námsgögn
-
Tölvunotkun. Office 2007. Jóhanna Geirsdóttir og Sólveigu Friðriksdóttur. Haust 2008. Heftið fæst hjá Sólveigu, GSM 864-2873.
- Leiðbeiningar við Microsoft Access 2007. Ljósrit tekið saman af Jóhönnu Geirsdóttur og Sólveigu Friðriksdóttur. Haust 2008. Heftið fæst hjá Sólveigu, GSM 864-2873.
- Einnig fá nemendur leiðbeiningar og verkefni frá kennara í kennsluumhverfi WebCT.

