UPP 103 - Almenn uppeldis- og menntunarfræði
Áfangalýsing
Í þessum fyrsta áfanga í uppeldisfræði er lögð áhersla á kynningu á fræðigreininni uppeldis- og menntunarfræði. Fjallað er um rætur fræðigreinarinnar, sögu og hagnýtingu. Hugtakið uppeldi er tekið til umræðu og gildi uppeldis fyrir einstakling og samfélag. Mismunandi viðhorf til mannlegs eðlis eru skoðuð í ljósi mismunandi viðhorfa til uppeldis og menntunar. Lauslega er farið í þróun uppeldis og menntunar í Evrópu síðustu aldir. Nemendur kynnast hugmyndafræði og uppeldisaðferðum nokkurra þekktra uppeldisfræðinga sem hafa haft áhrif á uppeldis- og skólastarf í Evrópu.
Markmið
Nemandi
- geti útskýrt hverjir eru helstu áhersluþættir innan uppeldis- og menntunarfræði, hver séu tengsl greinarinnar við aðrar fræðigreinar og hverjar helstu rannsóknaraðferðir
- viti hvað felst í hugtakinu uppeldi og hvert sé gildi uppeldis fyrir einstakling og samfélag
- þekki mismunandi viðhorf til mannlegs eðlis og verði sér þess meðvitandi hvernig viðhorfin leiða til ólíkra hugmynda um gildi uppeldisaðferða
- geti í stórum dráttum gert grein fyrir þróun formlegs uppeldis (leikskóla og skóla) í Evrópu síðustu aldir
- geti fjallað af gagnrýni um hugmyndafræði og uppeldisaðferðir nokkurra viðurkenndra uppeldisfræðinga
- þekki niðurstöður valinna rannsókna á uppeldisaðferðum foreldra
- geri grein fyrir og ræði af gagnrýni um uppeldisaðferðir og sýni fram á með dæmum að hann hafi skilning á tilteknum uppeldisaðferðum
- kynni sér helstu markmið leikskóla eins og þau eru sett fram í opinberum gögnum
- kynni sér mismunandi hugmyndafræði og starfsemi leikskóla á Íslandi
Námsgögn
- Uppeldi - kennslubók fyrir framhaldsskóla
Námsmat
- 60% skriflegt próf
- 30% gagnvirkar æfingar
- 10% verkefni

