Fyrirkomulag náms

Fyrirkomulag náms

Kennslan fer fram í kennsluumhverfi á netinu sem nefnist WebCT.  Í WebCT er hver áfangi með sitt svæði, nokkurs konar kennslustofu í netheimum, þar sem nemandi er í tengslum við kennara sinn og aðra nemendur. 

Í WebCT hefur kennarinn sett inn það efni sem nemandinn þarf til námsins, svo sem:

  • námsáætlun,
  • námsefni,
  • verkefni
  • gagnvirkar æfingar. 

Í kennslukerfinu er hægt að senda póst til kennara og samnemenda, taka þátt í umræðum og spjalli.  Kennarar svara öllum fyrirspurnum innan tveggja virkra sólarhringa. 

Kennt verður á þremur önnum á ári:  Vorönn, sumarönn og haustönn.

Námsefni

Námsefni er í samræmi við Aðalnámskrá framhaldsskóla

Námsgögn

Námsefni er margskonar, svo sem:
  • Bækur og tímarit
  • Rafræn námsgögn á netinu
  • Vefsíður með efni sem öllum er frjálst að nota
Dæmi um rafræn námsgögn á neti framleidd í VÍ

Lokapróf

Lokapróf verða í lok hverrar annar.   Lokapróf á haustönn eru  í desember, lokapróf á vorönn eru í maí og lokapróf á sumarönn eru í ágúst.

Frekari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á fjarnam@verslo.is.  

Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica