Skólaritarar

Nám fyrir ritara og skrifstofustjóra í grunn- og framhaldsskólum

Námið, sem er í samvinnu Framvegis og Verslunarskóla Íslands, er blanda af staðbundnu námi í Verzlunarskólanum og fjarnámi í WebCT kerfinu, en skólinn hefur góða reynslu af því og það hefur nýst vel í fullorðinsfræðslu á vegum hans. Námið er einingabært (22 einingar) þannig að þeir sem hyggjast leggja stund á frekara nám geti lagt fram þessar einingar með sér. Gert er ráð fyrir að nýr hópur hefji nám í október 2009 með fyrirvara um næga þátttöku. Vakin er athygli á framlagi endurmenntunar og þróunarsjóða ríkis og sveitarfélaga sem niðurgreiða nám af þessu tagi.

Innritun er í netfangið skraning@framvegis.is merkt  Skólaritara og skrifstofustjóranám. Taka skal fram í umsókn nafn, kennitölu heimilisfang , síma og rafpóst. Umsóknarfrestur er til  10. ágúst n.k. Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Framvegis – miðstöð um símenntun í síma 581 4914  alla virka daga milli 10 -12.

Námið dreifist á þrjár annir. Námið verður blanda af staðbundnum lotum og fjarnámi. Námið skiptist þannig:

Námsefni

  • BÓK113 Bókfærsla
    Fjallað um bókfærslu og áætlanagerð með því markmiði að fólk geti lesið úr reikningum stofnunar eða fyrirtækis, fært bókhald og merkt reikninga o. fl. þess háttar sem tengist traustu bókhaldi.
  • ENS373 Viðskiptaenska og ritað mál
    Markmiðið er að efla orðaforða og þar með læsi á ensku sem og ritun bréfa á málinu.
  • ÍSL173 Íslenska til bréfa- og skýrsluskrifa
    Farið er í almenna uppsetningu bréfa og skýrslna og margvísleg frágangs- og framsetningaratriði þjálfuð
  • LÍB101 Líkamsbeiting og vinnustellingar
  • SAM103 Samskipti á vinnustað og við viðskiptavini, samtalstækni
    Fjallað er um samskipti á vinnustað og hvernig tekið er á móti viðskiptavinum og vikið að vítum sem varast ber. Fjallað er um ýmsar vinnustaðakenningar og lausn ágreiningsmála. Vikið verður að samtalstækni.
  • SIÐ102 Siðfræði
    Fjallað um helstu gildi í öllum mannlegum samskiptum, vandamál sem upp koma, trúnaðarskyldu og sérstaklega fjallað um þá togstreitu sem getur skapast vegna upplýsinga sem starfsmenn komast á snoðir um, virðingu fyrir einstaklingnum o.fl.
  • SKY101 Skyndihjálp
    Undirstöðuatriði skyndihjálpar kennd.  Námið er í umsjón Rauða krossins.
  • STJ101 Stjórnun
    Fjallað er um helstu stjórnunarkenningar, stjórnunaraðferðir og hversu best verður hagað stjórn í skóla.
  • TÖN103 Ritvinnsla, excel og tölvupóstur
    Reynt er að mæta þörfum hvers og eins eftir því hvaða færni viðkomandi býr þegar yfir í ritvinnslukerfinu Word og öðrum tölvuforritum sem áfanginn tekur á. Vikið verður að margs konar uppsetningu bréfa og skýrslna, umbroti bæklinga, skjalavistun í tölvum og skjalavistun yfirleitt. Kennd verða tiltekin atriði í Excel, m.a. áætlanagerð. Þá verður kennd meðferð og flokkun tölvupósts.
  • TÖN141 Power Point og Publisher
    Í áfanganum er farið lauslega yfir möguleika vefráparans Internet Explorer, leit á Neti, vistun undir bókamerki o.fl.
    Lögð er rík áhersla á að nemendur geti unnið glærukynningar í glærugerðarforritinu PowerPoint og geti nýtt helstu möguleika forritsins. Einnig er lögð áhersla á að nemendur þekki grunnatriði í umbrotsforritinu Publisher og geti aðalagað tilbúin form að eigin þörfum.
  • UMH101 Umhverfisfræði
    Stefnumótun í umhverfisfræði, vistvæn umgengni, endurvinnsla.

Nánari upplýsingar: Framvegis miðstöð um símenntun, www.framvegis.is. Síðumúli 6 108 Reykjavík Sími 581 4914. Netfang: framvegis@framvegis.is

 

Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica