Þórhallur

Fyrsti nemandinn sem tók verslunarpróf í fjarnámi útskrifaður frá Verzlunarskóla Íslands

Föstudaginn 23. febrúar var Þórhallur Vigfússon útskrifaður með verslunarpróf frá Verzlunarskóla Íslands.  Þetta er óhefðbundinn tími til slíkrar útskriftar hér í skólanum, enda var hér nemandi á ferð sem lauk öllum prófum með fjarnámi. 

Þetta er í fyrsta sinn sem fjarnemandi er útskrifaður með verslunarpróf frá Verzlunarskóla Íslands.  Þórhallur hóf nám hér haustið 2005 og lauk tilskildum áföngum til verslunarprófs í desember 2006.   

thorhallur     

 

Á myndinni er Sölvi Sveinsson, skólastjóri að afhenda Þórhalli prófskírteinið.

 

Þórhallur sagði að það þyrfti að skipuleggja tíma sinn vel til að stunda fjarnám með fullri vinnu.  Fjölskyldan hefði öll verið í skóla á þessum tíma og það hefði haft hvetjandi áhrif á börnin hans, sem eru á grunnskólaaldri, að sjá báða foreldra sína við nám. 

 

Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica