Þarftu að leigja fyrirlestrarsal?
Skólinn leigir út fyrirlestrarsali í skemmri eða lengri tíma ásamt aðgangi að sérfræðingum skólans og framleiðsluveri. Auk fullkominnar aðstöðu þar sem öllum búnaði s.s. skjávörpum, sýningartjöldum, hljóðbúnaði, gluggum og ljósum er stjórnað með þráðlausum snertiskjám. Þá gefst flytjendum kostur á að láta taka upp námskeið sín eða fyrirlestra og setja upp á tölvutækt form til miðlunar sem myndstraum á geisladisk eða yfir internetið. Slík þjónusta eykur gæði efnisins sem flutt er og ráðstefnugestir geta notið þess og rifjað upp þegar hentar.
Upplýsingar gefur fjarnámsstjóri í síma 5 900 635 eða í tölvupósti á netfangið fjarnam@verslo.is

