Foreldrafélag
Stjórn foreldrafélagsins:
| Árni Sv. Mathiesen - formaður | arnimatt@live.com |
| Anna Stefanía Magnúsdóttir | annastefania@gmail.com |
| Ásta Thorarensen | |
| Elín Thorarensen | |
| Guðrún Vala Ólafsdóttir | gudrunvala@gmail.com |
| Guðrún H. Theodórsdóttir | ght@z.is |
| Hlaðgerður Íris Björnsdóttir | hlalla@simnet.is |
| Lena K. Lenharðsdóttir | lena@simnet.is |
| Svanborg Ísberg | sisberg@simnet.is |
| Unnur Ágústsdóttir | unnuragu@gmail.com |
| Þorbjörg Bjarnadóttir | dobba696@hotmail.com |
Lög foreldrafélagsins
Heiti og aðsetur:
1. gr. Félagið heitir Foreldrafélag Verzlunarskóla Íslands. Aðsetur félagsins er í Reykjavík.
Tilgangur, markmið og leiðir:
2. gr. Tilgangur félagsins er að stuðla að auknum gæðum skólans og að bæta jafnt almenn og einstaklingsbundin skilyrði og aðstæður nemenda til menntunar og farsæls þroska.
Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því meðal annars að:
- Að vera samráðs- og samstarfsvettvangur foreldra/forráðamanna.
- Að stuðla að aukinni vitund foreldra/forráðamanna um forsjárskyldur sínar og þekkingu þeirra á réttindum og skyldum sínum og barna þeirra.
- Að vera bakhjarl skólans og auka áhrif foreldra/forráðamanna sem hagsmunahóps um bættan hag og stöðu skólans.
- Að hvetja til aukins stuðnings, aðhalds og hvatningar foreldra/forráðamanna við börn sín og nám þeirra.
- Að koma á og tryggja öflugt og gott samstarf foreldra/forráðamanna, nemenda og starfsfólks skólans.
Félagsaðild:
3. gr. Félagar eru allir foreldrar og aðrir forráðamenn nemenda skólans.
Æðsta vald og stjórn félagsins:
4. gr. Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Hann skal halda árlega
í októbermánuði. Til fundarins skal boðað bréflega, með dagskrá, með a.m.k. 7 daga fyrirvara. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum í atkvæðagreiðslu.
Dagskrá aðalfundar skal vera:
a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b) Skýrsla stjórnar um störf hennar og starfsemi félagsins.
c) Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram.
d) Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning og afgreiðsla hans.
e) Lagabreytingar.
f) Starfsáætlun lögð fram til kynningar og afgreiðslu.
g) Kosning í stjórn félagsins.
h) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
5.gr. Stjórn félagsins skipa fimm foreldrar/forráðamenn nemenda sem kosnir eru á aðalfundi til tveggja ára í senn, þrír stjórnarmenn annað hvert ár og tveir hitt árið. Tveir varamenn skulu kosnir hvert ár. Formaður skal kosinn sérstaklega en aðrir stjórnarmenn í einu lagi og skipta þeir með sér öðrum verkum. Stjórn félagsins stýrir félaginu í umboði aðalfundar í samræmi við samþykkta starfsáætlun og lög þessi. Stjórnin skal halda gerðarbók þar sem bókuð eru öll mál sem tekin eru fyrir og allar ákvarðanir stjórnar. Einfaldur meirihluti stjórnarmanna ræður úrslitum.
Fjármál:
6. gr. Tekjur félagsins eru styrkir, sem stjórn félagsins er heimilt að taka við frá opinberum aðilum og öðrum sem vilja styðja félagið og starfsemi þess og önnur fjáröflun. Reikningstímabil og fjárhagsár félagsins er frá 1. október til 30. september ár hvert.
Lagabreytingar:
7. gr. Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi félagsins. Tillögur að breytingum þurfa að berast stjórn félagsins ekki síðar en 14 dögum fyrir auglýstan aðalfund. Tillögur til breytinga á lögum þessum, sem stjórn félagsins hyggst leggja fram, skal kynna um leið og boðað er til aðalfundar og á sama hátt.
Ákvæði til bráðabirgða:
Á stofnfundi félagsins sem samþykkir lög þessi, skal kosið til stjórnar samkvæmt þeim. Þá skulu kosnir þrír stjórnarmenn til tveggja ára og fjórir til eins árs.
Lög þessi tóku gildi á foreldrafundi í Verzlunarskóla Íslands 19. nóvember 2002.

