Skólasetning 18. ágúst 2016

Verzlunarskóli Íslands verður settur fimmtudaginn 18. ágúst klukkan 10:00. Athöfnin fer fram í hátíðarsal skólans (Bláa sal) og er ætlast til þess að allir nemendur mæti tímanlega. Vegna mikillar aðsóknar er afar mikilvægt að nýnemar mæti, að öðrum kosti geta þeir átt á hættu að verða af skólavist. Nýnemar fá sérstaka kynningu á skólanum eftir skólasetningu, kynningin mun standa frá 11:00-13:00.

Bókalistann fyrir veturinn má finna undir flipanum „Námið“ en einnig er flýtivísun hér .

Sala á bókum og heftum sem ekki eru seld í bókabúðum fer fram í fundarherbergi á 3. hæð. Bóksalan verður opin á eftirfarandi tíma: 

18. ágúst (fimmtudagur)  11:00-13:00 
19. ágúst (föstudagur)  8:30-12:30 
 22. ágúst (mánudagur)  8:30-12:30

Aðrar fréttir