Innritun
Innritun
Innritun 2012-2013
Nemendur sem sækja um skólavist á 1. ári eiga að gera það rafrænt í gegnum upplýsingakerfi framhaldsskólanna á Menntagatt.is. Nemendur sem koma erlendis frá, eða af einhverjum öðrum ástæðum hafa ekki lokið grunnskóla á Íslandi, þurfa að hafa samband við skólann (yfirkennara eða áfangastjóra).
Nemendur sem sækja um skólavist á 2., 3. eða 4. ári skulu skila inn umsóknum á skrifstofu skólans. Krækjur á umsóknareyðublaðið er að finna hér að neðan. Þeir nemendur þurfa einnig að hafa samband við yfirkennara eða áfangastjóra.
- Umsókn nemenda úr öðrum framhaldsskólum á Word formi
- Umsókn nemenda úr öðrum framhaldsskólum á Pdf formi
Innritun fer að þessu sinni fram í tvennu lagi. Forinnritun hefst 12. mars og velja umsækjendur þá einn skóla og annan til vara. Umsóknir verða þó ekki afgreiddar fyrr en eftir 8. júní en þá liggja fyrir skólaeinkunnir nemenda. Nemendum gefst tækifæri til að endurskoða umsóknir sínar til miðnættis föstudaginn 8. júní.
Gert er ráð fyrir að 336 nemendur verði innritaðir í 3. bekk VÍ (1. námsár).
Meginhluti umsókna verður afgreiddur eftir þeirri röð sem meðaltal skólaeinkunna í fjórum greinum segir til um. Greinarnar eru: íslenska, stærðfræði, sem hafa tvöfalt vægi, og tvær til viðbótar, danska (eða annað Norðurlandamál), enska, náttúrufræði eða samfélagsfræði. Nemendur verða að hafa náð að lágmarki 6,0 í einkunn í hverri grein. Bent skal á að nám við Verzlunarskólann er kröfuhart og reynslan sýnir að nemendum með einkunn undir 7,0 í íslensku og stærðfræði hefur ekki vegnað vel í skólanum. Inntökuskilyrði á verslunar- og frumkvöðlabraut er að nemandi hafi lokið grunnskóla.
Þá verður ákveðinn fjöldi nemenda tekinn inn á grundvelli annarra þátta. Þar verður m.a. litið til þess úr hvaða grunnskóla nemendur koma, einkunna í öðrum greinum, hvort nemendur hafi lokið framhaldsskólaáföngum, mætingu o.fl. Einnig er það stefna skólans að reyna að hafa hlutfall kynja sem jafnast.
Opið hús í Verzlunarskóla Íslands. Á vorönn verður 10. bekkingum og forráðamönnum þeirra boðið að koma og kynna sér skólann og þá aðstöðu sem stendur til boða. Opna húsið verður fimmtudaginn 23. febrúar frá kl. 17:00 – 19:00. Kennarar, nemendur, námsráðgjafar og annað starfsfólk skólans verður til viðtals ásamt yfirstjórn skólans. Nánari upplýsingar fást á heimasíðu skólans, www.verslo.is og hjá námsráðgjöfum.

