Námsbrautir
Námsbrautir
Verzlunarskólinn er bekkjaskóli, og hefur hver bekkur sína eigin heimastofu. Þetta fyrirkomulag þykir auka mjög samheldni nemenda, auk þess sem almenn sátt er um að bekkjakerfið bæti, kæti, og gefi betri stemmningu.
Prófin, sem nemendur taka um jól og á vorin, eru lokapróf viðkomandi námsáfanga.
- 2 ár (70 einingar) Verslunarpróf
- 4 ár (140 einingar) Stúdentspróf
Hér fyrir neðan sjáum við töflur yfir einingafjölda. Það ber þó að hafa í huga að alltaf má reikna með einhverjum tilfærslum á námsgreinum milli námsára, en heildareiningafjöldi einstakra greina mun þó verða eins og sýnt er í töflunum.
Nemendur innritast á ákveðna námsbraut. Námið á öllum brautum er eins fyrsta árið, nema hvað nemendur velja á milli frönsku, spænsku og þýsku. Þetta auðveldar nemendum að skipta um braut í lok fyrsta árs.
Námsbrautir í Verzlunarskólanum eru sífellt í endurskoðun með það markmið í huga að stúdentspróf frá skólanum verði hér eftir sem hingað til framúrskarandi góður undirbúningur fyrir nám í öllum háskóladeildum og hvers konar störf í framsæknum fyrirtækjum.
Félagsfræðibraut - Alþjóðabraut
Innan félagsfræðabrautar er boðið upp á eina leið innan kjörsviðs, þ.e. alþjóðasvið. Markmið námsins er að veita nemendum góðan grunn í sögu og menningu helstu viðskiptalanda okkar. Einnig er lögð áhersla á að kynna helstu alþjóðastofnanir og starfsemi þeirra. Nám á félagsfræðabraut veitir góða undirstöðu fyrir háskólanám í þjóðfélagsgreinum, viðskiptum, almannatengslum og fréttamennsku.
Málabraut
Markmið brautarinnar er að búa nemendur undir tungumála- og hugvísindanám á háskólastigi. Lögð er höfuðáhersla á helstu þjóðtungur Evrópulanda og að veita nemendum innsýn í fræðaheim málvísinda. Slíkur undirbúningur er góður grunnur fyrir háskólanám í tungumálum og býr nemendur undir þátttöku í heimi alþjóðasamskipta. Lesa meira
Viðskiptabraut - Hagfræðisvið
Boðið er upp á tvö mismunandi svið: viðskiptasvið og hagfræðisvið. Áhersla er lögð á viðskiptagreinar og aðrar skyldar greinar þannig að nemendur geti haldið áfram námi í háskóla, í sérskólum á háskólastigi eða farið út á vinnumarkaðinn að loknu stúdentsprófi.
Viðskiptabraut - Viðskiptasvið
Boðið er upp á tvö mismunandi svið: viðskiptasvið og hagfræðisvið. Áhersla er lögð á viðskiptagreinar og aðrar skyldar greinar þannig að nemendur geti haldið áfram námi í háskóla, í sérskólum á háskólastigi eða farið út á vinnumarkaðinn að loknu stúdentsprófi.
Náttúrufræðibraut - eðlisfræðisvið
Innan náttúrufræðibrautar er boðið upp á tvær mismunandi leiðir innan kjörsviðs, þ.e. eðlisfræðisvið og líffræðisvið. Meginmarkmið brautarinnar er að búa nemendur undir frekara nám á háskólastigi í verkfræði, læknisfræði, raunvísindum og öðrum greinum þar sem stærðfræði og raungreinamenntunar er krafist. Á eðlisfræðisviði er áhersla lögð á stærðfræði og eðlisfræði. Á líffræðisviði er áhersla lögð á líffræði og efnafræði ásamt stærðfræði.
Náttúrufræðibraut - líffræðisvið
Innan náttúrufræðibrautar er boðið upp á tvær mismunandi leiðir innan kjörsviðs, þ.e. eðlisfræðisvið og líffræðisvið. Meginmarkmið brautarinnar er að búa nemendur undir frekara nám á háskólastigi í verkfræði, læknisfræði, raunvísindum og öðrum greinum þar sem stærðfræði og raungreinamenntunar er krafist. Á eðlisfræðisviði er áhersla lögð á stærðfræði og eðlisfræði. Á líffræðisviði er áhersla lögð á líffræði og efnafræði ásamt stærðfræði.Lesa meira
Verslunar- og frumkvöðlabraut
Námsbrautin býr nemendur undir störf í verslun og við þjónustu ásamt því að gefa margskonar innsýn í rekstur og stofnun fyrirtækja. Brautin er tveggja ára nám á fjórum önnum.
Þessi leið hentar vel fyrir útskrifaða nemendur úr 10. bekk sem ekki hyggjast leggja stund á nám til stúdentsprófs en vilja mennta sig til þess að auka forskot á vinnumarkaði.
Markmið brautar:
- Að búa nemendur undir störf í verslun og við þjónustu
- Að efla almenna og persónulega færni nemenda til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni á vinnumarkaði
- Að veita nemendum faglegar forsendur til að sjá um verkefnastjórnun
- Að efla kunnáttu og þor til að takast á við ný námstækifæri á vettvangi starfs eða skóla
- Að efla tölvunotkun og kunnáttu í helstu forritum sem eru notuð í námi
Fjarnám
Hægt er að taka verslunarpróf og stúdentspróf í fjarnámi. Nemendur sem hafa lokið námi frá öðrum framhaldsskólum geta fengið mat á fyrra námi sínu með því að senda gögn í skólann. Lesa meira

