Spurt og svarað
Spurt og svarað
|
Hér sérðu nokkrar af algengustu spurningum sem við fáum. Ef þú ert með spurningu, ekki hika þá við að senda okkur hana og við höfum samband um leið og við getum. Sendu spurningar Er hægt að komast í Verzló eftir að hafa verið eitt ár í öðrum skóla?SVAR: Já, það eru fordæmi fyrir því, að settum ákveðnum skilyrðum. Gott er að setja sig í samband við námsráðgjafa VÍ varðandi frekari upplýsingar. Hver var meðaleinkunnin inn í Verzló í ár?
|
Það er nemandi hjá mér sem hefur lokið 303 í fjarnámi í ensku með yfir 8 í einkunn. Þessi nemendi hefur hug á að fara á náttúrufræðibraut og vill fá að vita hvort enskan er metin hjá ykkur og hvort hann hafi þá lokið stúdentsprófi á þessari braut?Svar: Til þess að fá áfanga metna hjá okkur þarf nemandi að hafa tekið áfangann í framhaldsskóla, með lokaeinkunn 7 eða yfir. Náttúrufræðibrautin í Verzló gerir kröfur um 9 einingar til stúdentsprófs og því getur sá sem að hefur lokið 303 í fjarnámi í ensku, með 7 eða yfir óskað eftir því að sleppa enskunni þegar hingað er komið. Er fjarnám metið?Svar: Til þess að fá áfanga metna hjá okkur þarf nemandi að hafa tekið áfangann í framhaldsskóla, með lokaeinkunn 7 eða yfir. Undantekning frá þessu er stærðfræði þar sem nemendur þurfa að taka stöðupróf hér að hausti þrátt fyrir að hafa lokið framhaldsskólaáfanga úr öðrum skóla en Verzlunarskólanum. Allt nám sem nemendur taka í fjarnámi Verzlunarskólans er að sjálfsögðu metið þótt einkunnin sé ekki 7. Hitt og þettaÞarf að senda einkunnir til skólans eða sendast þær sjálfkrafa?Svar: Einkunnir sendast sjálfkrafa til skólans frá nemendum sem koma beint úr 10. bekk. Aðrir þurfa að koma sjálfir með afrit af einkunnum þegar sótt er um skólavist. Takið þið inn nemendur sem hafa búið erlendis og eru ekki með skólaeinkunnir úr 10. bekk?Svar: Nemandi sem kemur erlendis frá er skoðaður sérstaklega. Gott er að snúa sér til námsráðgjafa varðandi frekari upplýsingar um þetta. Velur nemandi á fyrsta ári ákveðna braut eða kemur það seinna? Eru einhverjar sérkröfur inná þær brautir?Nemendur velja námsbraut og 3. tungumál við innritun. Námið er eins á öllum brautum. Við lok fyrsta námsárs fá nemendur tækifæri til að endurskoða val sitt og/eða kjósa sér undirsvið (sbr. Náttúrufræðibraut, -líffræðisvið eða eðlisfræðisvið). Inntökuskilyrðin eru þau sömu fyrir allar brautir (sjá reglur um inntökuskilyrði). Hvenær verður Verzlókynningin (Opið hús) í ár?Opið hús verður tvisvar á vorönn. Hið fyrra verður fimmtudaginn 23. febrúar frá kl. 17:00 – 19:00 og hið síðara þriðjudaginn 7. júní frá kl. 15:00 – 18:00. Er auðvelt að tengja fartölvu við rafmagn í skólastofum?Svar: Já, í kennslustofunum eru margar innstungur og alltaf hægt að fá fjöltengi hjá húsverði ef þörf er á. Er svolítið mikið snobb í Verzló? einhverjir krakkar með frekju og yfirgang o.s.frv.?SVAR: Það er ekki gott að svara því nákvæmlega hvort hér fyrirfinnist snobb. Líkast til gæti einhverjum fundist þeir finna fyrir snobbi hér á meðan aðrir myndu þvertaka fyrir það. Það er ómögulegt að segja til um svona lagað. Það er erfitt að segja til með yfirgang og frekju ungmenna en sem betur fer er yfirgnæfandi meirihluti Verzlinga yndælis fólk sem gaman er að umgangast. Getur maður tekið sænsku í staðinn fyrir dönsku? Það er að segja ef að maður hefur aldrei verið í dönsku í grunnskóla?SVAR: Já það er hægt að fara í sænsku í MH og fá hana metna inn í skólann. Það eru margir nemendur okkar sem fara ýmist í sænsku eða norsku í stað dönsku. Er góð enskukennsla í Verzló og er tekið tillit til þeirra sem eiga t.d. erfitt með að læra ensku eða eitthvað annað fag?Svar: Enskukennslan er mjög góð. Það er ekki boðið upp á sérstakan stuðning í ensku í skólanum, en námsráðgjafar eru með nöfn aukakennara sem hægt er að hringja í og kaupa sér tíma hjá ef þess gerist þörf. Er aðstaða til líkamsræktar í skólanum?SVAR: Já, það er mjög góð aðstaða til líkamsræktar í skólanum. Sú aðstaða er fyrst og fremst ætluð nemendum á skólatíma. |

