Forvarnir

Forvarnir

Forvarnastarf er vaxandi þáttur í starfi Verzlunarskólans og vill skólinn með starfinu stuðla að heilbrigðum lífsháttum og jákvæðri sjálfsmynd nemenda. Áhersla er lögð á öflugt vímuefnalaust félagslíf sem er mikilvægur þáttur í forvörnum.

Hlutverk forvarna- og félagslífsfulltrúa er m.a. að sjá um skipulagningu forvarnastarfs skólans sem felst í því að fræða nemendur um skaðsemi áfengis, tókbaks og vímuefna og að ýta undir heilbrigt félagslíf og sterka sjálfsmynd nemenda.

Forvarna- og félagslífsfulltrúar eru viðstaddir flesta atburði á vegum skólans sem gæsluaðilar.

Reglur skólans varðandi tóbak og vímuefni.

  • Notkun tóbaks (reyktóbak, neftóbak og munntóbak) er stranglega bönnuð í húsakynnum skólans og á lóð hans.
  • Stranglega er bannað að hafa um hönd áfengi og önnur vímuefni eða vera undir áhrifum þeirra í húsnæði skólans og á lóð hans.
  • Neysla áfengis og annarra vímuefna er bönnuð á öllum samkomum og ferðalögum sem eru í nafni skólans.

 Tveir forvarna- og félagslífsfulltrúar starfa við skólann:

Ingibjörg Ósk Jónsdóttir       ingibjorgo@verslo.is  og 
Sigrún Halla Halldórsdóttir    sigrun@verslo.is

Til forvarna – og félagslífsfulltrúa er hægt að leita í trúnaði með hverskyns mál er tengjast forvörnum og félagslífi nemenda.

Fastir viðtalstímar fyrir nemendur, foreldra og starfsmenn eru á mánudögum frá 12.45-13.25. 

Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica