Spurt og svarað um tölvukerfið
Tölvustofur:
Hvenær eru tölvustofur opnar?
Tölvustofur verða opnar til kl. 19:00 mánudag - fimmtudags, til kl. 16:00 á föstudögum og kl. 13:00 - 17:00 á laugardögum. Tölvustofur eru einnig opnar þegar eyður eru í töflum og eru ekki alltaf nýttar þótt tími sé skráður á þær t.d. í stærðfræði. Verkefnastofur eru oft lausar.
Hvernig á að ganga um tölvustofur?
Stranglega er bannað að fara með mat, sælgæti eða drykk inn í tölvustofur og skiptir engu hvernig drykkurinn er eða hvort flöskur eða dósir séu lokaðar. Þeir sem kjósa að fara ekki eftir þessari reglu missa aðgang sinn að tölvukerfinu og geta þá ekki nýtt sér tölvukerfið í námi.
Reglur um skólanetið:
Hvaða reglur gilda um skólanetið?
Mjög ítarlegar reglur um notkun skólanetsins má lesa hér.
Innskráning (login):
Hvernig er notendanafnið mitt myndað?
Þrír fyrstu stafir í nafni, einn stafur úr miðnafni (ef nöfn eru fleiri en eitt) og þrír fyrstu úr eftirnafni. Ef notendanafnið er þegar til í kerfinu þá bætist einn stafur við nafn eða miðnafn og aftur ef með þarf.
Hvernig breyti ég lykilorðinu mínu?
Þú tengist netinu, heldur niðri CTRL og ALT og ýtir á DEL. Þá birtist valmynd með valmöguleikanum Change Password. Þar skrifar þú gamla lykilorðið og síðan tvisvar nýja lykilorðið. Lykilorðið þarf að vera a.m.k. 8 enskir bókstafir og/eða tölustafir eða sértákn. A.m.k. einn hástafur þarf að vera í lykilorðinu. Ágætt er að breyta lykilorðinu reglulega og nauðsynlegt er að breyta á 180 daga fresti.
Þegar ég reyni að tengjast netinu þá birtist "Your account has been locked out. Contact your system administrator ..." og ég get ekki tengst. Hvað er að?
Ef þú eða einhver annar reynir oftar en þrisvar sinnum að tengjast netina með röngu lykilorði þá lokar kerfið sjálfkrafa á fleiri tilraunir en opnast aftur að 5 mínútum liðnum. Þetta er til að gera þeim erfiðara fyrir sem eru að reyna að brjótast inn á heimasvæði annarra.
Heimasvæði:
Hvaða reglur gilda um heimasvæðið mitt?
Þú berð ábyrgð á því að ekki sé annað á heimasvæðinu en efni sem tengist náminu. Þú berð einnig ábyrgð á því að aðrir misnoti ekki þitt svæði með því að gæta vel að lykilorðinu þínu.
Hvaða gögn mega vera inn á heimasvæðinu mínu?
Þar á eingöngu að geyma efni sem tengist náminu. Þar eiga ekki að vera myndir, lög, forrit né annað sem ekki tengist náminu.
Hvað hef ég mikið pláss á heimasvæðinu mínu?
120 MB
Ég held að einhver hafi komist inn á heimasvæðið mitt. Hvað á ég að gera?
Þú breytir lykilorðinu og lætur kerfisstjórann vita (thordur@verslo.is).
Hverjir hafa aðgang að heimasvæðinu mínu?
Enginn annar en þú og kerfisstjóri hefur aðgang að þínu heimasvæði (N: drifi). Kennarar hafa hins vegar auk þín aðgang að verkefnaskilasvæði þínu (K: drifi).
Vefsíðusvæði:
Hvað er vefsíðusvæði?
Svæði þar sem þú getur vistað gögn sem eru þá aðgengileg um Internetið. Þú getur vistað þar með því að vísa í W: drifið og aðrir geta skoðað það sem þar er með því að vísa í www.verslo.is/home/notendanafn. Nemendur verða að hafa í huga að efni sem er geymt á þessu svæði er aðgengilegt öllum sem á annað borð komast á Internetið. Því verður að gæta þess vel að ekkert sé þar sem skaðað gæti ímynd skólans.
Internetið:
Hvaða reglur gilda um Internetsamskipti?
Skólinn greiðir fyrir magnmælda utanlandsnotkun Internetsins þannig að því meira magn sem er sótt eða sent því hærri verður reikningurinn. Internetaðgangurinn er til að auðvelda nemendum nám en ekki til afþreyingar eða skemmtunar. Því er lokað á ýmsar síður sem ekki eru taldar tengjast námi og ekki er leyfilegt að sækja tónlist, myndir, forrit eða annað það sem ekki tengist námi. Jafnan er ekki leyfilegt að vera á Internetinu í kennslustund nema kennari leyfi það sérstaklega.
Póstur:
Hvert er netfangið mitt?
Notendanafnið@verslo.is
Hvað er pósthólfið mitt stórt?
250 MB. Athugaðu að aðvaranir birtast við 220 MB
Hvað get ég tekið við stórum bréfum?
15 MB
Hvernig fer ég að taka til í pósthólfinu mínu?
Bréfin sjálf taka ekki mikið pláss heldur eru það viðhengin t.d. skjöl og myndir sem taka plássið. Þú getur smellt með hægri músarhnappa á viðkomandi möppu, valið Properties og Folder size til að sjá hve mikið pláss hver mappa tekur. Síðan þarftu að eyða úr möppunni því sem þú getur verið án. Þú þarft jafnframt að eyða úr Sent Items möppunni þ.e. bréf sem þú hefur sent. Að lokum þarftu að eyða úr Deleted Items möppunni.
Hvaða reglur gilda um póstsendingar?
Ekki má senda fjöldapóst eða póst sem almennt má ætla að viðtakandinn hafi ekki áhuga á að fá.
Útprentun:
Hvar get ég prentað út?
Þegar þú tengist netinu í tölvustofum finnur tölvan í hvaða stofu þú ert og tengir þig við prentarann í þeirri stofu. Þú getur einnig valið Start - Printers and faxes - Add a printer - Next - Velja: A network printer ... - Next - Find a printer in the directory - Next - Find now - Tvísmella á prentara sem á að velja - Next - Finish
Hver er prentkvótinn minn?
150 blaðsíður á önn. Þú getur séð hve mikið eftir er af kvótanum með því að fara í upplýsingakerfið og velja Stilling - Prentkvóti. Ef prentkvótinn klárast getur þú keypt viðbótarkvóta á skrifstofunni á kr. 10 hverja blaðsíðu.
Orðabækur:
Hægt er að nálgast ýmsar orðabækur á snara.is og ordabok.is innan skólans.
Skönnun:
Hvar get ég skannað inn myndir?
Á bókasafninu.
Hugbúnaður:
Hvaða hugbúnaður er í tölvunum í tölvustofum:
Á öllum tölvum er Windows 7 professional stýrikerfið og Office 2010 professional hugbúnaðarpakkinn. Einnig eru Acrobat reader, Media Player o.fl. forrit á öllum tölvum. Víðast er DVD hugbúnaður og ýmsir forritapakkar sem eru notaðir við kennslu á tölvunum.
Myndataka:
Hvernig get ég tekið stafrænar myndir?
Hægt er að fá stafræna myndavél og myndbandstökuvél lánaða á bókasafninu.
Þráðlaust net:
Hvað þarf ég að gera?
Nemendur verða að koma með fartölvuna sína til Snorra Halldórssonar milli kl. 8:00 og 10:00 en hann er með aðsetur á skrifstofu skólans og skilja tölvuna eftir hjá honum í einhvern tíma til að hægt sé að skrá tölvuna á skólanetið.
Athugaðu að þú þarft að vera með vírusvörn á fartölvunni og uppfæra hana reglulega. Stýrikerfið þarf einnig að uppfæra reglulega. Athugið að allur kostnaður við rekstur s.s. vegna hugbúnaðar, uppsetningar og viðhalds á fartölvu fellur alfarið á eigendur þeirra en ekki á skólann.

