Mánudaginn 21. maí afhenda umsjónarkennarar í 3. og 5. bekk nemendum sínum einkunnaspjöldin frá klukkan 11:45 – 12:00. Afhendingin fer fram í heimastofum.
Þennan sama mánudag, verður prófsýning í öllum bekkjum á milli klukkan 12:15 og 13:30.
Miðvikudaginn 23. maí klukkan 10:00 afhendir skólastjóri verslunarprófsskírteinin við hátíðlega athöfn í Bláa sal.
Brautskráningin verður klukkan 14:00 í Háskólabíói laugardaginn 26. maí.
Verzlunarskólinn varð fyrir helgi Íslandsmeistari framhaldsskóla í skák. Lið Verzlunarskólans skipuðu þeir Hjörvar Steinn Grétarsson (5-H), Patrekur Maron Magnússon (5-I), Jökull Jóhannsson (6-E) og Alexander Gautason (4-X).
Fyrirtækið Múltí var um daginn valið besta fyrirtækið í Fyrirtækjasmiðju Ungra Frumkvöðla. Fyrirtækið stofnuðu nokkrir nemendur 6-E. Múltí, sem var stofnað í janúar, framleiðir og selur hundakex og hefur gengið vonum framar.
Nemendur á hagfræðibraut heimsóttu á dögunum Seðlabanka Íslands. Í heimsókninni fengu þeir fræðslu um hlutverk og starfsemi bankans.
Skólinn verður lokaður í páskafríinu, frá 2. til 10. apríl. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 11. apríl.
Lið Verzlunarskólans mætir í kvöld liði MR í undanúrslitum Gettu betur. Keppnin fer fram í Háskólabíói og hefst klukkan 20:10.
Nemendur í 4. bekk heimsóttu í síðustu viku danska nemendur í Aarhus, en nemendur þaðan heimsóttu okkur fyrr í vetur. Um sannkallaða menningarferð var að ræða og komu allir sáttir heim.
Nemendur frá St. George´s School, sem staðsettur er á Rhode Island, heimsóttu skólann í síðustu viku. Þeir höfðu unnið verkefni um Ísland sem þeir kynntu fyrir nemendum.
Nemendur Verzlunarskólans voru áberandi í Forritunarkeppni framhaldsskólanna. Eitt lið frá skólanum sigraði sinn flokk og annað lenti í öðru sæti. Í ár var metþátttaka í keppninni, en alls tóku rúmlega 120 keppendur þátt.
Innan Versló eru nú starfrækt 11 fyrirtæki. Þessi fyrirtæki, ásamt fyrirtækjum frá öðrum framhaldsskólum, tóku þátt í Vörumessu í Smáralindinni til að kynna og selja vörur sínar.
Nýlega fór hópur nemenda af eðlisfræðibraut í heimsókn til CERN, miðstöðvar evrópskra öreindarannsókna þar sem LHC-hraðallinn er meðal annars til húsa.
Norræn goðafræði hefur verið áberandi í Verzlunarskólanum undanfarið. Í nýútgefnum Vilja var skemmtileg myndaröð unnin í kringum goðin og gyðjurnar og þá hafa þriðjubekkingar farið mikinn í túlkun sinni á verunum á myndrænan hátt.
Finnskir og færeyskir nemendur frá sambærilegum skólum og Versló eru í heimsókn í vikunni í tengslum við verkefnið „Språk og kultur“. Seinna munu nemendur úr 4. bekk heimsækja bæði Færeyjar og Finnland, níu til hvors lands.
Nemendur í 4. bekk Verzlunarskólans fara í næstu viku í heimsókn til Árósa. Þar munu þeir dvelja í eina viku sem gestir á heimil nemanda Århus Købmandsskole.
Verzló tryggði sér þátttökurétt í undanúrslitum Gettu betur með sigri á FSU. Dregið verður í undanúrslit þann 16. mars.
Verzlunarskólinn mætir FSU í átta liða úrslitum Gettu betur. Viðureignin fer fram á föstudaginn og er í beinni útsendingu á RÚV.
Sigríður María Egilsdóttir bar á dögunum sigur úr býtum í ræðukeppni ESU á Íslandi. Þetta er í annað skipti sem Sigríður vinnur keppnina sem fram fer á ensku. Halldór Atlason úr 4-X komst einnig í úrslit.
Verzlunarskólinn stendur fyrir opnu húsi 23. febrúar. Þar geta nemendur og forráðamenn þeirra kynnt sér nánar starfsemi skólans.
Vikuna 6.-10. febrúar fékk Verzlunarskólinn gesti frá Litháen og Noregi í heimsókn. Heimsóknin var liður í Nordplus verkefni sem nefnist Redesign, Innovation and Entrepreneurship.
Nemendamót VÍ fer fram fimmtudaginn 2. febrúar. Bugsy Malone og Páll Óskar halda uppi stuðinu þetta árið. Nemendamótið verður haldið í Íþróttahúsi KR þetta árið og hefst klukkan 22:30.
Fyrsti fimmtudagur febrúarmánaðar er ævinlega stór dagur í lífi Verzlinga en þann dag fer árlegt Nemendamót VÍ fram. Nemendamótsdagurinn er órjúfanlegur hluti skólans og hefðin sem honum fylgir mikil. Þessi dagur er hápunktur félagslífsins og eðlilega miklar væntingar sem honum fylgja. Algengt er að bekkirnir byrji daginn snemma og hittist yfir morgunverði í heimahúsi áður en farið er á leiksýninguna, sem að þessu sinni er byggður á kvikmyndinni Bugsy Malone.
Árlegur gleði- og forvarnadagur Verzló verður haldinn miðvikudaginn 1. febrúar. Þar gefst nemendum tækifæri til að sitja fyrirlestra og örnámskeið um fjölbreytt málefni.
Foreldrafundur verður haldinn mánudaginn 30. janúar. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir að hafa samband við umsjónarkennara til að finna hentugan tíma.
Góðgerðaráð Verzlunarskóla Íslands, G.V.Í., vinnur árlega með mismunandi hjálparsamtökum sem staðsett eru víðsvegar um heiminn.
Mánudaginn 9. janúar mætir lið Verzlunarskólans liði Fjölbrautaskólans í Breiðholti í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur. Viðureignin fer fram á Markúsartorginu í Efstaleiti og hefst klukkan 19:30.