Atburðir
26.01.10. Foreldraviðtöl
Þriðjudaginn 26. janúar n.k. verður foreldrum og forráðamönnum 3. og 4. bekkinga boðið að koma í viðtal hjá umsjónarkennara. Áætlað er að hvert viðtal taki u.þ.b. en 10 mínútur og foreldrum stendur til boða að koma á milli klukkan 14.00 og 19.00. Nauðsynlegt er að tilkynna umsjónarkennara hvenær foreldrar vilja koma en netföng þeirra má finna hér.
Skólinn leggur ríka áherslu á að foreldrar fylgist með námi og ástundun barna sinna og í því skyni viljum við benda á foreldraaðgang að upplýsingakerfi skólans þar sem hægt er að fylgjast með skólasókn og sjá einkunnir í skyndiprófum.
Yfirstjórn skólans, deildarstjórar og námsráðgjafar verða einnig til viðtals.
